Vera - 01.12.1991, Blaðsíða 8
LESENDABRÉF
HVENÆR BREYTA KONUR RÉTT?
í ágústblaði VERU segir ógift
og barnlaus kona frá því
hvernig fólk gerir stöðugt
athugasemdir við það líf sem
hún lifir. Ég upplifði svona
athugasemdatímabil þegar
ég gekk með þriðja barnið
mitt. Ég átti eitt stórt barn og
annað sem varð tveggja ára
um það leyti sem hið þriðja
fæddist. Þegar ég eignaðist
barn númer tvö gerði enginn
athugasemd en þegar ég
sagði að ég ætti von á því
þriðja fékk ég glósur á borð
við „þetta er nú bara leið til
að losna úr vinnunni" og „þú
ert bara alltaf í barnseignar-
fríi" og sama meining en sett
fram með skilningsríkum
tóni sem mér fannst engu
betri: „það er von, þú ert í svo
erfiðu starfi." Þessar athuga-
semdir komu mest frá kon-
um en einstaka karl lét þetta
einnig í ljós. Ég varð. mjög
reið, ég hafði valið að eignast
þessi börn og var tilbúin að
leggja mikið á mig þess
vegna. Átti ég að neita mér
um að eignast börn vinn-
unnar vegna? Þá spurði ég
sjálfa mig þessara spurn-
inga: Breyta konur einhvern
tíma rétt? Hvernig stendur á
því að við leyfum okkur að
gera athugasemdir við það
hvernig aðrir haga lífi sínu?
Ættum við ekki að huga
frekar að okkur sjálfum en
þykjast vita hvað öðrum er
fyrir bestu?
Ég gæti jú alveg hugsað
mér stöku sinnum að hafa
meiri tíma fyrir sjálfa mig en
það verður ekki bæði sleppt
og haldið í þessu lífi. Það
truflar mig ekkert að sumar
konur velja að vera ógiftar og
barnlausar, þær velja fyrir
sig og ég fyrir mig.
María Játvarðardóttir.
VIÐ ERUM EKKI ALLAR EINS
Kæra Vera
Umræðan um fjölskylduna í
ágústblaðinu fannst mér sú
besta sem ég hef séð í ís-
lenskum fjölmiðlum. Mér
fannst jákvætt hvernig þið
tókuð málið frá öllum hugs-
anlegum sjónarhornum og
félluð aldrei í þá gryfju að
skilgreina „eðlilega" fjöl-
skyldu. Það sló mig hvað mér
fannst margt í grein „ein-
hleypu og barnlausu" kon-
unnar eiga við um mig, þó
hef ég verið hamingjusam-
lega gift í fimmtán ár. Við
viljum ekki eignast börn og
þrýstingur samfélagsins er
óþolandi. Einkum eru það
mág- og svilkonur mínar
sem geta ekki sætt sig við
lífsstíl okkar. Ég er sannfærð
um að framkoma tengda-
fjölskyldu minnar við mig
væri allt önnur ef ég ætti
börn. í þeirra augum er ég
ekki fullkomin kona og mér
finnst oft sem líf mitt sé ekki
eins mikils virði og mæðr-
anna í kringum mig. Skyldi
eitthvað vera til í þvi sem ein
vinkona mín sagði, sem varð
ólétt eftir níu ára hjónaband
og tengdamóðir hennar og
mágkonur mættu með blóm
þegar þær heyrðu fréttirna:
„þær elska í mér eggja-
stokkana". Er ekki kominn
tími til að konur viðurkenni
fyrir sjálfum sér og öðrum að
við erum ekki allar eins — og
það er allt í lagi. Ég efast ekki
um að börn veiti mörgum
konum (og körlum?) lífs-
fyllingu, en það er ekki þar
með sagt að okkur sem erum
barnlaus skorti lífsfyllingu.
Hún er bara öðruvísi, ekkert
betri en að minnsta kosti
jafngóð.
Stina
Dregið 24. des.
104 vinningar
H A U
K R A B
VERTU MEÐ
T I L VI
I N G S
STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN
FORD EXPLORER XLT
3 BIFREIÐAR AÐ VERÐMÆTI
1.000.000 KR.
EÐA JAFNHÁ GREIDSLA
UPPÍÚBÚD
Í
50 VINNINGAR A 130.000 KR.
50 VINNINGAR Á 80.000 KR.
VÖRUR EÐA ÞJÓNUSTA FRÁ BYKO,
HAGKAUPUM, JAPIS,
SAMVINNUFERÐUM-LANDSÝN,
HÚSGAGNAVERSL. EDA KAUPFÉLAGI
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ
SAMEIGINLEGUR VINNINGUR OKKAR ALLRA - ÖFLUGRI KRABBAMEINSVARNIR