Vera - 01.12.1991, Síða 8
LESENDABRÉF
HVENÆR BREYTA KONUR RÉTT?
VIÐ ERUM EKKI ALLAR EINS
í ágústblaði VERU segir ógift
og barnlaus kona frá því
hvernig fólk gerir stöðugt
athugasemdir við það líf sem
hún lifir. Ég upplifði svona
athugasemdatímabil þegar
ég gekk með þriðja barnið
mitt. Ég átti eitt stórt barn og
annað sem varð tveggja ára
um það leyti sem hið þriðja
fæddist. Þegar ég eignaðist
barn númer tvö gerði enginn
athugasemd en þegar ég
sagði að ég ætti von á þvi
þriðja fékk ég glósur á borð
við „þetta er nú bara leið til
að losna úr vinnunni" og „þú
ert bara alltaf í barnseignar-
frii“ og sama meining en sett
fram með skilningsríkum
tóni sem mér fannst engu
betri: „það er von, þú ert í svo
erfiðu starfi." Þessar athuga-
semdir komu mest frá kon-
um en einstaka karl lét þetta
einnig í ljós. Ég varð mjög
reið, ég hafði valið að eignast
þessi börn og var tilbúin að
leggja mikið á mig þess
vegna. Átti ég að neita mér
um að eignast börn vinn-
unnar vegna? Þá spurði ég
sjálfa mig þessara spurn-
inga: Breyta konur einhvern
tíma rétt? Hvernig stendur á
því að við leyfum okkur að
gera athugasemdir við það
hvernig aðrir haga lífi sínu?
Ættum við ekki að huga
frekar að okkur sjálfum en
þykjast vita hvað öðrum er
fyrir bestu?
Ég gæti jú alveg hugsað
mér stöku sinnum að hafa
meiri tíma fyrir sjálfa mig en
það verður ekki bæði sleppt
og haldið í þessu lífi. Það
truflar mig ekkert að sumar
konur velja að vera ógiftar og
barnlausar, þær vefja fyrir
sig og ég fyrir mig.
María Játvarðardóttir.
Kæra Vera
Umræðan um fjöfskyfduna í
ágústblaðinu fannst mér sú
besta sem ég hef séð í ís-
fenskum fjöimiðium. Mér
fannst jákvætt hvernig þið
tókuð málið frá öllum hugs-
anlegum sjónarhornum og
félluð aldrei í þá gryfju að
skiigreina „eðlilega" fjöl-
skyldu. Það sló mig hvað mér
fannst margt í grein „ein-
hleypu og barnlausu” kon-
unnar eiga við um mig, þó
hef ég verið hamingjusam-
lega gift í fimmtán ár. Við
viljum ekki eignast börn og
þrýstingur samfélagsins er
óþolandi. Einkum eru það
mág- og svilkonur mínar
sem geta ekki sætt sig við
lífsstíl okkar. Ég er sannfærð
um að framkoma tengda-
fjölskyldu minnar við mig
væri allt önnur ef ég ætti
börn. í þeirra augum er ég
ekki fuffkomin kona og mér
finnst oft sem fíf mitt sé ekki
eins mikiis virði og mæðr-
anna í kringum mig. Skyldi
eitthvað vera tii í þvi sem ein
vinkona min sagði, sem varð
óiétt eftir níu ára hjónaband
og tengdamóðir hennar og
mágkonur mættu með blóm
þegar þær heyrðu fréttirna:
„þær eiska í mér eggja-
stokkana". Er ekki kominn
tími til að konur viðurkenni
fyrir sjáifum sér og öðrum að
við erum ekki allar eins — og
það er allt í lagi. Ég efast ekki
um að börn veiti mörgum
konum (og körlum?) lifs-
fyllingu, en það er ekki þar
með sagt að okkur sem erum
barnlaus skorti lífsfyllingu.
Hún er bara öðruvísi, ekkert
betri en að minnsta kosti
jafngóð.
Stína
Dregið 24. des.
104 vinitingar
HAUSTHAPP
KRABBAMEINSF
D R Æ T
É L A G S I
T I
N S
VERTUMEÐ
TIL VINNINGS
STUÐNINGUR YKKAR E R OKKAR VOPN
| 50 VINNINGAR Á 130.000 KR.
| 50 VINNINGAR Á 80.000 KR.
VÖRUR EÐA ÞJÓNUSTA FRÁ BYKO,
HAGKAUPUM, JAPIS,
SAMVINNUFERÐUM-LANDSÝN,
HÚSGAGNAVERSL. EÐA KAUPFÉLAGI
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ
■ SAMEIGINLEGUR VINNINGUR OKKAR ALLRA - ÖFLUGRI KRABBAMEINSVARNIR
FORD EXPLORER XLT
3 BIFREIÐAR AÐ VERÐMÆTI
1.000.000 KR.
EÐA JAFNHÁ GREIÐSLA
UPP í ÚBÚÐ
é
8