Vera - 01.12.1991, Qupperneq 13

Vera - 01.12.1991, Qupperneq 13
ÞINGMAL frídagar, langt jólaleyfl, páska- leyfl og sumarleyfi o.s.frv. Með þessu er þó ekki verið að segja að engar breytingar hafi átt sér stað - alls ekki. Aukin atvinnuþátttaka kvenna hefur m.a. haft það í för með sér að þær geta ekki einar og óstudd- ar sinnt ýmsum verkefnum sem áður voru nær eingöngu á þeirra hendi. Þetta á ekki síst við um umönnun ungra barna, sjúkra og aldraðra. Þarna hefur velferðarkerfið orðið að koma til sögunnar. Innan vel- ferðarkerflsins eru sterk tregðulögmál að verki en engu að síður býður velferðarkerflð upp á ýmsa þjónustu sem ekki verður með neinu móti séð fyrir með öðrum hætti. Þannig hefur dagvistun barna breyst úr því að vera eingöngu fyrir börn einstæðra mæðra og í að þjóna líka börnum giftra kvenna - þó að i takmörkuðum mæli sé. Þjónusta við aldraða hefur líka aukist þó að enn búi margir aldraðir við algerlega óviðunandi aðstæður þrátt fyrir að dætur, eiginkonur og tengdadætur reyni að gera sitt besta. Segja má að tengsl kvenna við velferðarkerfið séu þau, að þeim mun minni þjónustu sem velferðarkerfið veitir, þeim mun meira verða konur að leggja cd mörkum - og öfugt. Breytingar á velferðarkerfinu hafa þvi mun meiri áhrif á líf og stöðu kvenna en karla. Verkalýðshreyfingin átti á sínum tíma drjúgan þátt í því að festa velferðarkerfið í sessi og af sjálfu leiðir að hún hefur reynt að standa vörð um það. Ýmsar fræðikonur erlendis hafa sett fram þá kenningu að velferðarkerfið sé í raun mála- miðlun milli karia í verkalýðs- hreyfingunni og karla í at- vinnurekendastétt. Þegar kon- ur gátu ekki lengur sinnt öll- um þeim verkefnum sem lögð- ust á íjölskylduna í síbreyti- legum heimi hafi karlarnir orðið ásáttir um að búa til kerfi sem gæti tekið þau að sér og þar með væru þeir sjálfir lausir allra mála. Með öðrum orðum: Þeir gerðu þetta af hyggindum sem i hag komu. Þessar fræðikonur segja þvi að ef til standi að skera niður vel- ferðarkerfið, verði karlar að taka á sig þann niðurskurð og bera ábyrgð á þeim tilflutningi verkefna sem af honum hlýst. Þetta sé löngu hætt að vera mál kvenna. En þetta er sjálfsagt hæg- ara um að tala en í að komast. Engu að síður væri ekki úr vegi fýrir konur að benda á þann hag sem t.d. atvinnurekendur hafa af velferðarkerfinu. Þeir tala gjarnan um þetta kerfi eins og botnlausa hít sem þjóni íjölskyldunum i landinu en ekki atvinnulifinu. Staðreynd- in er auðvitað sú að þetta kerfi hefur alla tíð þjónað atvinnu- lífinu vel og dyggilega. Vegna tilvistar þess hafa atvinnu- rekendur losnað við að gera gagngerar breytingar á skipu- lagi vinnunnar og ekki þurft að taka tillit til búsorga starfs- manna sinna. í gegnum þetta kerfi hefur verið hægt að stjórna framboði á vinnuafli á markaðnum, ýmist með þvi að bæta þjónustu þess eða draga úr henni. Þær breytingar sem núver- andi ríkisstjórn hyggst gera á íslenska velferðarkerfinu eru eiginlega þríþættar. í íýrsta lagi ætlar hún að auka hlutdeild þeirra sem nota þjónustuna í kostnaðinum við hana. Með þessu segist hún ætla að koma í veg fýrir skattahækkanir og hún boðar í raun skattalækkanir sérstaklega á atvinnurekstri. Með þessu er m.a. verið að flytja kostnaðinn af velferðar- kerfinu af atvinnurekstrinum yfir á fjölskyldurnar. Það eru nefnilega einstaklingarnir sem eru neytendur í velferðar- kerfinu þó að það þjóni ekki síður atvinnulífinu. í öðru lagi ætlar hún að skera niður í velferðarkerfinu eða fresta endurbótum sem

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.