Vera - 01.12.1991, Síða 23

Vera - 01.12.1991, Síða 23
því að taka ljósmyndir sem fylgja viðtölum og greinum. Mig langar að vera eitthvað áfram hér í New York og þreifa frekar fyrir mér með mögu- leika á sýningum. Þetta er áhlaupaverk þvi að á þessu sviði er gífurleg samkeppni, rétt eins og hjá öðru listafólki hvort sem það eru málarar eða myndhöggvarar. Spurningin er ævinlega sú sama: Vill einhver kaupa verkin mín. Það er í raun mun auðveldara að fá sér vinnu í öðrum greinum ljósmyndunar eins og aug- lýsinga- og fréttaljósmyndun svo dæmi séu tekin. Flestir sem leggja listljósmyndun íýrir sig selja engin verk til að byrja með, í raun ekki fyrr en þeir hafa skapað sér nafn. Þetta er svo mikill viðskiptaheimur að það liggur við að bisnessinn skipti meira máli en listrænt gildi verkanna sjálfra. EIN KLASSÍSK AÐ LOKUM, HVAÐ MEÐ FÓSTURJÖRÐINA? - Mig langar til að setja upp vinnustofu á íslandi. Draum- urinn er að geta unnið heima hluta úr árinu og hinn hlut- ann í útlöndum jafnframt því að halda sýningar erlendis. Ég held að ég muni alltaf sækja á önnur mið til að fá innblástur, ísland er jú svo smátt og eins- leitt í menningarlegu tilliti. Hér í New York mætast hins vegar menningarstraumar úr öllum áttum og borgin telur jafnmarga ef ekki ileiri útlend- inga en Ameríkana. Mér flnnst þetta íjölbreytta mannlíf vera einhver stærsti sjarmi borgar- innar. Þessi reynsla, eins og öll önnur reynsla, hlýtur alltaf að skila sér í einhverju formi í verkum manns. Þó ef til vill sé ekki hægt að benda á eitt fremur en annað þá er næsta óhugsandi að halda áhrifa- völdum úr umhverfinu að- skildum frá listsköpun manns. Ég þakka Björgu fýrir skemmti- legt spjall, við yflrgefum kaffl- húsið og göngum saman út í Austurþorpið sem iðar af fjölskrúðugu mannlífi. New York í október Hallfríður Þórarinsdóttir LISTRÆN LJÓSMYNDUN 23

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.