Vera - 01.12.1991, Qupperneq 25
JÓLIN • EINFALT MÁL
Það er sjálfsagt að endurbirta
uppskriftina af jólasmákökunum
hennar Kristínar Einarsdóttur úr
jóla-Verunni í fyrra. Smákökurn-
ar eru mjög góðar og auk þess er
einfalt og skemmtilegt að baka
þær.
Grunndeig:
750 g hveiti
600 g smjörlíki
200 g sykur
Þetta er hnoðað saman og sett í
ísskáp í a.rn.k. eina klukku-
stund. Deiginu er síðan skipt í
jafn marga parta og sortirnar eiga
að vera. Hæfllegt er að skipta
einni uppskrift í fjóra hluta og fá
t.d.:
■ Finnsk smábrauð: Rúlla
deiginu í lengjur, u.þ.b. langa-
töng á þykkt og skera þær í 3 cm
löng stykki. Pensla stykkin með
hrærðu eggi og setja muldar
möndlur og perlusykur ofaná.
Bakað í 10-15 mín.
■ Súkkulaðikökur: Suðu-
súkkulaði brytjað smátt og
hnoðað saman við. Einnig er gott
að setja riflnn appelsínubörk
með. Búnar til litlar kúlur sem
settar eru á plötuna og ýtt ofan á
með gaffli. Bakað í 8-10 mín.
■ Kókoskökur: Kókosmjöli
hnoðað saman við. Búnar eru til
kúlur sem eru flattar út t.d. með
spaða eða skeið þegar þær eru
komnar á plötuna. Penslað með
eggi og perlusykur settur ofan á.
Bakað í 8 mín.
■ Hnetukúlur: Valhnetukjarn-
ar hakkaðir og hnoðaðir saman
við. Búnar til kúlur. Bakað í 8
mín.
- Allt er bakað við 200 gráður.
Einnig má setja rúsínur, marsi-
pan eða núggat í deigið. Mögu-
leikarnir eru óþijótandi, en gætið
þess að móta tegundirnar á mis-
munandi vegu.
Sykurkringlur
Þessar kringlur eru með ein-
faldari og bragðbetri smákökum.
Þær eru gerðar úr smjördeigi sem
hægt er að kaupa frosið i flestum
stórmörkuðum.
Þetta þarftu í 20 kringlur:
2 plötur ftyst smjördeig,
ca 1 dl strásykur
1. Þýddu smjördeigsplöturnar.
Stilltu ofninn á 250 gráður.
Stráðu hveiti á borðið og
breiddu deigið út með köku-
kefli þar til plöturnar verða
u.þ.b. 25 cm að lengd.
2. Skerðu plöturnar langsum í
u.þ.b. sentimetra breiðar
ræmur. Þú færð 10 ræmur úr
hvorri plötu. Búðu til kringlur
úr ræmunum.
3. Helltu köldu vatni í skál og
sykri á disk. Dýfðu kringl-
unum örstutta stund í vatnið,
hristu af þeim mestu bleytuna
og dýfðu þeim í sykurinn.
4. Settu þær á plötu með bökun-
arpappír. Bakað í miðjum ofni
í 6-7 mínútur. Kringlurnar
geymast í margar vikur í
lokuðu íláti.
JÓLASÆLGÆTI
Það sem til þarf: marsipanmassi
(sá ódýri er mjög góður), rúsínur,
hnetur, möndlur, núggat og
hjúpsúkkulaði.
Gott er að leggja rúsínur í
bleyti daginn áður t.d. í koníak,
sherry eða romm.
Marsipanbrauð
300 g marsipan
125 g núggat
25 g pistacio kjarnar
eða heslihnetur
1-2 msk koníak
100 g hjúpsúkkulaði
Marsipanrúllan skorin í tvo
hluta, hverjum hluta rúllað út í
lengju. Núggatið skorið í passleg
stykki og sett í miðjuna og bleytt
með koníaki, pistacio hnetur eða
rúsinur þar ofan á. Hinn helm-
ingurinn af marsipaninu er
settur ofan á, þrýst saman, búið
til brauð. Penslað með hjúp-
súkkulaði, byrjið á botninum,
látið hann þorna, hjúpið þá efri
hlutann. Skreytið eftir smekk.
Hægt er að frysta brauðið.
Þegar brauðið er borið fram er
það skorið í sneiðar.
Marsipankúlur
Rúsínum eða möndluspænum
hnoðað saman við marsipan og
búnar til litlar kúlur. Hjúpaðar
með súkkulaði.
Núggatsnittur
Marsipan og núggat skorið i
sneiðar. Núggatið, sem er haft
þykkara, sett á milli marsipan-
sneiða, þrýst saman, hjúpað.
Konfektrúsínum dýft i hjúp-
súkkulaði.
Marsipanmassi fæst i mörgum
bakaríum. Hann er tilbúinn til
baksturs og þarf aðeins að móta
kransakökurnar...
25