Vera - 01.12.1991, Page 27

Vera - 01.12.1991, Page 27
HLAÐVARPINN Ljósmynd: Kristín Bogadóttir Fyrir sex árum mátli sjá aug- lýsingar um allan bæ þar sem konur voru hvattar til að kaupa hlutabréf í Hlaðvarpan- um. Konur ætluðu að kaupa hús sem átti að verða miðstöð kvenlegrar sköpunar og hug- vits. Þar sem konur gætu látið drauma sína rætast, sýnt verk sin, troðið upp með leiksýn- ingar eða ljóðalestur, átt at- hvarf til að lesa bækur og skrifa þær, eða stundað fræði- störf, því í Hlaðvarpanum er hægt að fá leigð „sérherbergi". Það hefur verið á brattann að sækja hvað varðar íjármögnun húsakaupanna, þvi eins og allir vita eiga konur nóg af öllu nema peningum. En með mik- illi elju og útsjónarsemi sér loks fyrir endann á húsa- kaupabaslinu og þá er svigrúm til að endurnýja húsakostinn, nú er vérið að skipta um þök á hluta húsanna og ýmsar aðrar viðamiklar viðgerðir standa íyrir dyrum. Það er óhætt að segja að með kaupum á Hlaðvarpanum hafi draumurinn um kvennahús ræst. Starfsemin þar, sem frá upphafi hefur verið bæði öflug og íjölbreytt, snýst um konur og er rekin af konum. Ymsir hópar sem starfa að málefnum kvenna hafa aðstöðu á Vestur- götunni, Kvennaráðgjöiln, Kvennaathvarflð og Stígamót eru t.d. þarna með skrifstofu. í Hlaðvarpanum eru líka versl- anir og verkstæði rekin af konum. í Spútnik er hægt að fá alls konar „öðruvisi“ fatnað, notaðar Levi’s 501, ódýra leð- urjakka og „sixties” föt. Friða frænka er löngu orðin þekkt antíkvöruverslun og þarna er líka gullsmíðaverkstæðið Gull- smiðjan sem rekin er af Önnu Mariu Sveinbjörnsdóttur. í bakhúsunum hefur einnig ver- ið rekin fjölbreytt starfsemi. í haust hefur verið leikið í kjallaranum, nýtt kafflhús er að flnna á miðhæðinni ásamt listmunamarkaði og á annarri hæð er fundarsalur sem hægt er að fá leigðan út og hentar vel íyrir ýmiskonar samkomur og sýningar. Alþýðuleikhúsið sýndi Undirleik við morð í kjallaranum í haust við góðar undirtektir, en nú er sýningum lokið og þar er nú starfræktur jólamarkaður. Þær Þóra Har- alds og Elín Traustadóttir reka kafflhúsið sem þær nefna Lyst og list, með miklum myndar- brag. Kaffið er sterkt og gott, kökurnar ljúffengar og auk þess er boðið upp á smárétti á vægu verði í hádeginu. Ég mæli með rjómalöguðu sveppasúpunni, hún er mörg- um gæðaflokkum fyrir ofan þessar venjulegu hveitisúpur sem alls staðar fást. Þær stöllur hafa haft opið á kvöldin í tengslum við leiksýningarnar í kjallaranum og einnig taka þær á móti hópum sem vilja snæða saman í hádegi eða um kvöld, til dæmis fá þær konur úr Netinu (samtök kvenna í atvinnulíflnu) í mat til sín fyrsta föstudag í hverjum mánuði. Þær konur sem fá útrás fyrir sköpunarþörfina í handverk- inu hafa líka athvarf í Hlað- varpanum. Á Listmunamark- aðnum, sem nú hefur verið starfræktur í á þriðja ár, er að flnna muni eftir rúmlega tvö hundruð konur og nokkra karla. Konurnar hafa ólíkan bakgrunn og menntun og ber vöruúrvalið þess glöggt rnerki, en það er vægast sagt mjög ijölbreytt. Nokkuð er um það að konur af landsbyggðinni notfæri sér aðstöðuna í Hlað- varpanum, það hlýtur að vera gott að hafa aðgang að markaði á Reykjavikursvæðinu fyrir vörurnar sínar. Markaðurinn er rekinn með umboðssölu og eflaust ærinn starfl fyrir hana Kristínu umsjónarkonu að halda utan um bókhaldið. Á listmunamarkaðnum er að flnna allt frá handmáluðum silkijökkum til handpijónaðra barnahúfa. Ýmislegt skart er áberandi, eyrnalokkar, nælur og hálsfestar, en einnig er þar að finna fallegt keramik, bolla og tekatla, kertastjaka, skálar og skrautmuni, alls konar fatnað, peysur og púða, barna- föt og handgerð leikföng. Svo eru þarna munir komnir lengra að, til dæmis rakst ég á hræódýr hengirúm frá Mexikó. Þær markaðskonur gleyma ekki andanum þvi þarna eru einnig til sölu ljóðabækur, skáldsögur og tímarit. Svo eru auðvitað til kort af öllum stærðum og gerðum sem nota má við hin ýmsu tækifæri. Verðlagið er jafn misjafnt og úrvalið er fjölbreytt, sumt kostar marga þúsundkalla og annað einungis nokkra hundr- aðkalla, en yfirleitt er verðið mjög sanngjarnt miðað við gæði og hægt er að gera góð kaup. í jólamánuðinum verður mikið um að vera hjá þeim Hlað- varpakonum. Þær eru búnar að skipuleggja alls konar uppákomur, skáld koma og lesa upp úr verkum sínum, listamenn og músíkantar troða upp, það verður boðið upp á jólaglögg á kaffistofunni og eflaust verður eitthvað við hæfl yngstu kynslóðarinnar. Það er þvi hægt að slá margar flugur í einu höggi með þvi að heim- sækja Hlaðvarpann í desem- ber. Þar verður hægt að fá allt sem þarf til að halda jól (nema ef til vill matvöru). Jólakort og kúlur, jólapappír og jólagjafir, jólatré verða seld í portinu og svo mætti lengi telja. Það er líka hægt að taka sér frí frá amstrinu og setjast inn á kaffistofuna, drekka gott kaffl, kíkja í blöðin og tímaritin sem liggja þar frammi og njóta þess bara að vera í kvennahúsinu sem komið var á fót fyrir atorku og eljusemi svo margra kvenna. Konur sem vilja taka þátt í þessari blómstrandi starfsemi kaupa auðvitað hlutabréf í Hlaðvarpanum og svo eru þau líka tilvalin til jólagjafa og annarra tæki- færisgjafa! DHK 27

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.