Vera - 01.12.1991, Blaðsíða 28
FLÓAMARKAÐUR
KJALLARANUM A Ð
HAFNARSTRÆTI
/
1 7
Ljósmynd: Kristín Bogadóttir
„Eg finn íyrir líkamlegum
sársauka þegar ég heyri fólk
segjast henda dóti. Mér finnst
svo sjálfsagt að gefa það sem
ég get ekki notað og það virðist
vera smitandi þvi að fólk sem
ég kynnist fer yfirleitt fljótlega
að gefa okkur á flóamarkað-
inn“, segir Jórunn Sörensen
formaður Sambands dýra-
verndunarfélaga íslands.
Ágóðinn af ílóamarkaðnum
sem samböndin reka i kjallara
hússins við Hafnarstræti 17
eru einu tekjur þeirra.
„Ef við hefðum hann ekki
væru okkur allar bjargir
bannaðar. íslensku dýravernd-
unarsamtökin er eina dýra-
verndunarfélag sem ég þekki
til sem ekki nýtur opinberra
styrkja, heldur vinna félagar
þess íyrir hveijum eyri. Það er
í rauninni rugl, því að við
höfum svo margt annað að
gera. En ilóamarkaðurinn er
nauðsynlegur bæði vegna dýr-
anna og kúnnanna. Við eigum
stóran hóp af föstum við-
skiptavinum sem þarfnast
okkar. Og hér er unnið af
mikilli ánægju því að við vitum
að við erum að gera gagn. Þessi
markaður er svo stór hluti af
samtökunum og þess vegna vil
ég halda áfram að standa hér
einu sinni í viku og afgreiða“,
segir Jórunn.
Flóamarkaðurinn er opinn
milli klukkan tvö og sex á
mánudögum, þriðjudögum og
miðvikudögum. Þá er tekið við
gjöfum, en einnig er hægt að
hringja og biðja um að þær séu
sóttar. Auk þess má skilja þær
eftir á Borgarbílastöðinni, en
bílstjórarnir eru svo almenni-
legir að taka við þeim og geyma
þær.
„Okkur berst alltaf talsvert
af gjöfum, en mikið vill meira“
segir Jórunn og vill koma því á
framfæri við þá lesendur Veru
sem eru að taka til í skápunum
sínum iyrir jólin að fleiri taki
fegnir við gömlu dóti en rusla-
haugarnir.
Það eru tólf ár síðan Samband
dýraverndunarfélaga opnaði
markaðinn. Hann var íyrsti
flóamarkaður hér á landi sem
hafði opið reglulega — eldri en
sjálf Flóin. Yfirleitt hafa fjórar
til flmm konur staðið þar við
afgreiðslu í sjálfboðavinnu.
Þær hafa sína föstu daga og
föstu kúnna, kalla sig Flær og
kenna sig við dagana.
„Þessar konur eru alveg
meiri háttar“, segir Jórunn.
„Þær eru allar í vinnu annars
staðar, en reka markaðinn
eins og hann sé þeirra einka-
fýrirtæki. Þriðjudagsflóin vann
einu sinni annars staðar, auk
þess að afgreiða á markaðnum
á þriðjudögum. Svo fannst
manninum hennar að hún ætti
að fara að vinna við heildsölu
sem þau áttu. ,Allt í lagi, góði
minn, en ekki á þriðjudögum",
sagði hún.
Öðru hveiju setjast kon-
urnar niður til að ræða málin
og verðleggja vörurnar. En
oftast hækka þær ekki verðið
mánuðum og árum saman.
Mest ber á fatnaði á flóamark-
aðnum, enda seljast hörðu
hlutirnir strax. Og fötin eru
ódýr — hægt er að fá flíkur fyr-
ir hundrað krónur! Ef vel
liggur á afgreiðslustúlkunum
má reyna að prútta við þær og
svo veita þær þeim afslátt sem
kaupa mikið. Þeir eru margir
sem kaupa notaða hlufi, en
Jórunn hugsar sig lengi um
þegar hún er spurð að þvi
hvort hún verði vör við fátækt.
„Svei mér þá, ég held að það sé
hægt að orða það svo“, segir
hún að lokum. „Við verðum
miklu meira varar við fátækt
núna en þegar við byrjuðum.
Þá var meira áberandi að
hingað kæmi menntaskólalið
og svo fólk sem hafði kynnst
flóamörkuðum erlendis. Það
fer vaxandi að fólk versli hjá
okkur vegna þess að það þarf
að gera það. Við verðum til
dæmis varar við að fólk kaupi
hér jólagjafir og jólaföt. Svo
koma hingað þessar ótrúlega
duglegu konur sem breyta og
bæta, pils verður að áklæði í
höndunum á þeim og áklæði
að pilsi. Ég hélt bara að þetta
væri útdauður þjóðflokkur
síðan ég hætti þessu sjálf. Og
svo koma hingað áhuga-
manna- og nemendaleikhúsin,
sem ég kalla öreigaleikhúsin.
Ég er viss um að við erum betri
en enginn að styðja við slíka
menningarstarfsemi. “
Jórunn dregur upp þessa svip-
mynd af viðskiptavinum
markaðarins:
„Um daginn komu hingað
nokkrir leðurklæddir pönkarar
með keðjur og gadda, einn var
með keðju um hálsinn sem
læst var með hengilás. Þeir
voru að skoða buxur og peys-
ur. Þá var hér fyrir miðaldra
kona sem hafði verið í róleg-
heitum í nokkra klukkutima
að máta. Svo kom inn eldri
kona i ullarkápu með pijóna-
húfu og fór líka að máta. Þá
kom maður sem var á því stigi
28