Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 13

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 13
til að móta nýja skólastefnu. Kerfið er í molum og alltof víða sem böm verða undir á leið sinni í gegnum það.“ Helga ákvað þó að gefa kost á sér í bæjarstjóm og upplifði góðar stundir í kosn- ingabaráttunni, sem þó féll að nokkru í skugga Reykjavíkurframboða. Mest áhersla var lögð á fjölskyldu-, atvinnu-, og launamál, og svo skipulags- og umhverfísmál. „Það jákvæðasta við þessa vinnu er þó að fylgjast með þeim flölda nýrra kvenna sem koma á vettvang og æfa sig í ræðumennsku og greinaskrifum. Kosn- ingar geta í raun verið eins konar félagsmála- skóli fyrir konur.“ Helga Erlingsdóttir, Landamótsseli situr í hreppsnefnd Ljósavatnshrepps í annað sinn og gegnir nú stöðu oddvita. Hún hefur unnið í Sparisjóði Suður-Þingeyinga á Fosshóli og er ekki frá því að vinna hennar að félagsmálum, m.a. fyrir Handverkskonur milli heiða og for- mennska í skólanefnd Stómtjamarskóla hafí veitt henni brautargengi inn í hreppsnefnd. Mik- ilvægustu málin telur hún vera atvinnu- og fé- lagsmál. „Hér er töluvert dulið atvinnuleysi í landbúnaði þar sem ekki er vinna fyrir bæði hjónin við búskapinn. Félagslegi þátturinn verður sífellt stærri og enn er hér enginn félags- málafulltrúi. Og það vill verða þannig að við konurnar tökum sæti í nefndum sent þurfa að taka á viðkvæmum málum, eins og oft vill verða t.d. í barnavemdamefnd. Það er líklega í takt við það sem gerist í mörgum sveitarfélög- um, konumar taka að sér tilfinningamálin og karlamir peningamálin.“ Ingibjörg Daníelsdóttir stundar búskap á Fróða- stöðum en kennir jafnframt við grunnskólann á Varmalandi. Hún er fýrrverandi varaþingkona Kvennalistans á Vesturlandi og er að heija sitt annað kjörtímabil í hreppsnefnd Hvítársíðu- hrepps, fyrst kvenna til að sitja í nefiidinni. Hún fór út í pólitík „til að rétta hlut kvenna en með árunum hef ég öðlast almennan áhuga á stjóm- málum.“ Ingibjörg telur karla vera meira áber- andi í málefnum sveitarfélagsins þar sem þeir séu skrifaðir fyrir búunum í flestum tilvikum, konurnar séu hæverskari en hafí jafnframt minni tíma fyrir félagsmálavafstur. Sameining- armálin verða efst á baugi á næstunni og svo at- vinnumálin. „Það má lítið út af bera til að allt fari á verri veg. í fremri hluta sveitarinnar, nær Húsfelli, er horft til ferðamanna og þjónusta við þá er þegar komin vel á veg. I þeim hluta sveit- arinnar þar sem hefðbundinn búskapur er al- gengari er frekar möguleiki á að sækja vinnu í nærliggjandi þéttbýli.“ Jóhanna Rögnvaldsdóttir var kjörin óhlutbund- 'nni kosningu í hreppsnefnd Bárðdælahrepps og þar sitja nú í fyrsta sinn konur í meirihluta, eða þrjár af fímm fulltrúum. „Sveitarfélagið er lítið °g peningaleg umsvif því ekki mikil, þetta snýst að mestu um að halda uppi skóla og eiga fyrir snjómokstri á veturna, en hreppurinn þarf einnig að styðja við atvinnusköpun eða halda nti atvinnu part af árinu.“ Jóhanna býr á Stóruvöllum og stundaði hefðbundinn búskap fram til ársins 1987, þá tóku loðdýrin við en sá búskapur var aflagður fyrir nokkrum árum. Jóhanna hefur þó ekki set- ið auðum höndum og rekur bókhaldsþjónustu heima fyrir, meðfram því að reka litla matvæla- vinnslu, ásamt eiginmanni sínum. Hún er í for- ystu fyrir Handverkskonum milli heiða sem er fyrirtæki kvenna í sveitinni en þær tóku sig til þegar búskapur dróst saman og vinna nú að ým- iss konar framleiðslu. Fljótlega voru 99 konur komnar í félagið, „meirihluti þeirra eru virkir framleiðendur og þetta er því athyglisverðara sem haft er í huga að ekki búa nema um 600 manns á svæðinu. Konumar vildu skapa sér vinnu sjálfar og nýta þau verðmæti sem felast í kunnáttu þeirra á handverki. Hér hafa konur því ekki orðið undir í samdrættinum, heldur tóku þær málin í eigin hendur“. Drífa Kristjánsdóttir situr ein kvenna í hrepps- nefnd Biskupstungnahrepps. Drífa er kennari að mennt og hefur rekið meðferðarheimili fyrir unglinga að Torfastöðum undanfarin 11 ár. Hún hóf stjómmálaferil sinn þegar Kvennalistinn bauð fram á Suðurlandi 1987, en var nú í 2. sæti á lista óháðra (sem bætti við sig manni en verð- ur áfram í minnihluta) og er að hcfja sitt annað kjörtímabil. „Kosningabaráttan var markviss, við unnum stefnumálin vel og tímanlega. Hóp- urinn á listanum er mjög góður, jafnt hlutfall kynja „þrátt fyrir“ prófkjör og rödd Kvennalist- ans er sterk þama. Við viljum fyrst og fremst berjast fyrir breyttum starfsháttum. Það vill loða við að þeir sem sitja lengi líti á mál hreppsins sem sín prívatmál og aðkomufólk á oft erfitt með að komast til áhrifa þrátt fyrir áralanga bú- setu í sveitinni. Við erum gjaman kölluð „töskufólkið“, gerðum reyndar óspart grín að því í kosningabaráttunni og mættum öll með töskur á framboðsfundi. Bráðskemmtileg kosn- ingabarátta.“ Inger Helgadóttir var kjörin persónukjöri í hreppsnefnd Skorradalshrepps, fyrst kvenna, en var varamanneskja síðasta kjörtímabil. Hún er ættuð frá Akureyri en hefur búið að Indriða- stöðum í Skorradal í 17 ár, ásamt eiginmanni og þremur dætrum, og stundað hefðbundinn bú- skap. Hún hefur starfað með Kvennalistanum frá stofnun hans á Vesturlandi 1984 og var kosningastjóri þegar þær buðu fyrst fram til þings 1987. Inger segir að skipulagsmál séu of- arlega á baugi i hreppnum þar sem mjög mikil sumarbústaðabyggð er á svæðinu. Hún hefur einnig mikinn áhuga á sameiningu sveitarfé- laga, „lítil sveitarfélög eru svo lítils megnug hvert fyrir sig, auk þess sem mál verða gjarnan yfírþynnandi persónuleg á kostnað faglegrar þekkingar. Það hlýtur að vera betra að sækja alla félagslega þjónustu á skrifstofu í stærra sveitarfélagi heldur en inn á bæi þess fólks sent situr í sveitarstjóm.“ NH Jóhanna Rögnvaldsdóttir Helga A. Erlingsdóttir Ingibjörg Danielsdóttir 13 Drífa Kristjánsdóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.