Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 18
Er sérstaðan
horfin og
h e y r i r
Kvennalistinn
brátt sögunni
til?
- Það er rangt
að leggja
þetta svona
upp. Það varð
niðurstaða
okkar að eina
leiðin til að ná
Kvennalistinn er sagður vera kominn á kaf i valdabrölt og margir telja
það honum til lasts.
- Við erum auðvitað í pólitík til að hafa áhrif. Við hljótum auðvitað að
vega og meta
hvaða leiðir
eru færar
hverju sinni til
að ná áhrifum.
Eg fæ ekki
séð að þó að
við fórum i
sameiginlegt
framboð hér í
R e y kj a v í k
með okkar
áherslum sé
s é r s t a ð a
Kvennalistans
þar með fyrir
bí. Okkar sérstaða felst fyrst og fremst í því að við erum samtök kvenna
með kvenffelsisbaráttu sem megin markmið. Við beitum okkur fyrir
henni og munum gera það áfram þótt baráttan taki á sig mismunandi
form.
„Eins og ég hef margbent á þá er fram-
boðsleiðin engin eilíf leið í kvennabarátt-
unni. Við hljótum alltaf að spyrja okkur
þeirrar spurningar hvernig kvennabarátt-
unni verði best borgið."
Margir töldu kosningabaráttuna
mjög ,, ókvennalistalega “.
- Það hve mikil áhersla var lögð á
persónur, ekki síst á persónu borg-
arstjóraefnisins, var „ókvenna-
listalegt". Það gengur þvert á þær
áherslur sem við höfum haft hing-
að til og við hljótum að velta því
fyrir okkur hvaða áhrif það muni
hafa á baráttu okkar í framtíðinni.
Hvaða áhrifheldurþú að það hafi?
- Það er erfitt að segja á þessu stigi málsins. Mér finnst að málefnin eigi
að sitja í fyrirrúmi þó að einstaklingarnir skipti að sjálfsögðu miklu því
það er ekki bara stefnan sem skiptir máli heldur líka hvemig hún er bor-
in fram og hvernig unnið er að henni. Foringjadýrkun er mér ákaflega lítt
að skapi og því var ég ósátt við þessar áherslur. Það sem skiplir máli í
meirihluta í
borgarstjórn
Reykjavíkur
væri að fara í sameiginlegt framboð. Við komum mikilvægum stefnu-
málum okkar inn í stefnuskrá Reykjavíkurlistans og ég minni á að yfir-
skrift þeirrar stefnu er að listinn ætlar m.a. að berjast fyrir kvenfrelsi.
Reykjavíkurlistinn ætlar að vinna
að bættum hag kvenna, bama og
fjölskyldna í borginni og ef eitthvað
er þá er það mikill sigur fyrir
Kvennalistann hversu rík áhersla
var lögð á málefni fjölskyldunnar
og félagslega þjónustu í þessari
kosningabaráttu. Þau málefni sem
Kvennalistinn hefúr alltaf barist
fyrir vom kosningamálin. í fyrsta
skipti á tólf ára ferli sínum á
Kvennalistinn þrjá fulltrúa í borgar-
stjórn Reykjavíkur, þar af borgarstjórann sjálfan. Auk þess eigum við
fjölda kvenna í nefndum og ráðum borgarinnar sem vinna í þágu þeirra
málefna sem við höfúm alltaf barist fyrir.
>