Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 15

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 15
ingjar og niðjar þeirra virð- ast fastheldnir á stóla sína. Að sjálfsögðu háir þetta körlunum sem ekki eru ættaðir af óðölum sveitanna, en hver er þá skýringin á því að kven- leggur forystuættanna tekur ekki þátt í hreppapólitíkinni? Annað sem hamlar konum til sveita er að oft er langt að fara á fundi og lítið freist- andi fyrir „veikara" kynið að fara út í hríðarbylji um hávetur og moka farar- tækinu leið á fundinn. Vinnuálagið og launa- misrétti kynjanna er ekki það eina sem allir viðmælendur Veru nefna, heldur einnig skortur kvenna á sjálfstrausti. Sumar þeirra sem hafa þó haft frumkraftinn og hellt sér út í hringiðuna verða oftar fyrir rætnari og persónulegri gagnrýni en karlar. Fleiri ástæður þess að konur hverfa fljótt af vett- vangi aftur, iðulega eftir eitt eða tvö kjörtímabil, er að lítið hefur á- unnist í þeim málum sem þær börðust fyrir, einnig er nefnt skortur á samstöðu og að starfshættir séu of þungir í vöfum. Það má velta því fyrir sér hvort konur koma ekki inn á þennan vettvang með stærri hugsjónir en karlar og gefist hreinlega upp þegar undirtektirnar eru litlar sem engar - því viðmælendur Veru sögðu konur vera alltof krítlskar á eigin frammistöðu sem og annarra kvenna. Hér verður engin allsherjar úttekt gerð á ástæðum þess að kon- ur sitja heima þegar lagt er á ráðin um aðstæður þeirra og hins kynsins í samfélaginu, það myndi æra óstöðug- an. Ein viðmælenda sagði reyndar að þátttaka í sveitarstjórnum gæti ver- ið upplögð fyrir heima- vinnandi fólk, ef aðstæð- ur leyfðu, því það er ekki með öllu ólaunað. En ytri og innri hindranir eru ■b margar, jafnt innan sem 'o utan hefðbundinna C/3 :§ stjórnmálasamtaka, og ^ konur eru jafnan mun a færri í öruggum sætum á n framboðslistum. í bæk- .1 lingi Jafnréttisráðs, um ’J stöðu kvenna í stjórnmál- um, segir: Það er lögð áhersla á að þarna séu einstaklingar sem „fulltrúar" einhverra hópa. Gæti verið eitthvað tii í þeirri tilgátu, að litið sé á konur sem fulltrúa „kvenna" en karla sem fulltrúa allra annarra hópa sem þurfa að vera á listanum? Fjöldi kvenna sem sitja í nefndum og ráðum í umboði samborg- ara sinna nefna að karlar sem sátu þar fyrir, kvenmannslausir, hefðu margoft lýst yfir ánægju sinni með samstarfskonur sínar og þótt sjónarmið þeirra hafa vantað áður. Tími raunverulegra viðhorfsbreyt- inga hjá fjöldanum er löngu runninn upp. Það styttist í aldarafmæli kosningaréttar kvenna. Skyldum við þá hafa náð þeim áfanga að konur og karlar verði jafningjar á vettvangi stjórnmála? NH

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.