Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 25

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 25
1983 Samtök um kvennalista stofnuð og bjóða fram til Alþingis á Akureyri, Reykjanesi og í Reykjavík. Konum fjölgar á Alþingi úr 5% í 15%! Það er gam- an að vera kona. Færist fram um 4 reiti. 1982 Það eru bjartir tímar! Kvennaframboð til sveita- rstjóma í Reykjavík og á Akureyri. Þú tekur virkan þátt í framboðinu, eignast nýjar akhressar vinkonur og telur allt vera að mjakast í rétta átt. Kcmur harkalega niður á jörðina þcgar þú sclur merki fyrir nýstofnað Kvennaathvarf og konur ráðast á þig og segja að engin kona sé barin nema hún eigi það skil- ið. Betur iná ef duga skal, þú spýtir í lófana og gef- ur öllum sem þú þekkir áskrift að Veru, nýstofnuðu málgagni kvennabaráttu, í jólagjöf. Ferí> eins langt fram og þú vilt. 1980 Vigdís Finnbogadóttir kjörin forscti íslands og er þar með fyrsta konan í heiminum, sem kjörin er for- seti þjóðríkis í lýðræðislegum kosningum. Feib fram um 2 reiti. 1979 Bók Auðar Haralds Hvunndagshetjan kcmur út. Vekur mikla hneykslan almennings scm hcldur að hún sé að tala um mömmu sína. Þú stynur upp í saumaklúbbnum að þér hafi þótt húan þrælgóð og færð illt auga. Akveður að finna þér skcmmtilegri félaga. Ferö fram um 3 reiti. 1976 Setning jafnréttislaga! Jafnréttisráð sett á laggirnar. Þú ert sannfærð um að jafnrétti sé í höfn! Kaupir plötuna „Afram stelpur“ og kyrjar lögin öllum stundum. Ferö fram um 4 reiti. 1975 24. októbcr - kvennafrí eða kvcnnaverkfall? Þú ferð á einn fjölmcnnasta útifúnd scm haldinn hefur verið hér á landi og verður uppnumin. Gengur heim með vinkonunum og hásyngur: Já ég þori get og vil. Ekkert verður cins og áður, þú miðar tímatal þitt við fyrir og eftir 24. október. Fagnar endumýjun á fóst- ureyðingarlöggjöfinni og því að samþykkt hafa ver- iö lög um 3ja mánaða fæðingarorlof fyrir allar kon- ur. Fer& fram um 5 reiti. 1985 Islcnskar konur kaupa Hlaðvarpann og þú lætur ekki þitt cftir liggja og geíúr öllum konum hlutabréf í skímar-, fenningar-, stúdents-, afmælis-, brúðar- og skilnaðargjöf. Þú tekur virkan þátt í Listahátíð kvenna og verður stórhrifin af því hvað konur leggja gjörva hönd á margt eins og sést í Kvenna- smiðjunni í Seðlabankanum. Þú situr ráðstefnu um kvennarannsóknir í H.í. og ákvcður að fara aftur i nám. íslendingar eignast íyrstu alheimsfegurðar- drottninguna, Hólmfríði Karlsdóttur. Þú veltir fyrir þér tilgangi fcgurðarsamkeppna og hvort þær sam- rýmist hugmyndum þínum um kvcnfrelsi. Situr hjó eina umferö, ferb aftur á bak um 5 reiti eba fram um 4 - allt eftir eigin mati. 1986 Guðrún Erlendsdóttir verður fyrst kvenna hæsta- réttardómari. Fjórum ámm síðar verður hún forseti Hæstaréttar. Fimmþúsundkróna konan lítur dagsins ljós. Ferb fram um 2 reiti. 1987 Samtök um kvcnnalista bjóða fram í öllum kjör- dæmum til Alþingiskosninga, tvöfalda fylgi sitt og fá scx konur kjömar. Þingkonum Ijölgar í 20,6%. Ferb fram um 2 reiti. 1988 Þú ferð ásamt rúinlega áttahundmð íslenskum kon- um á Nordisk Fomm í Osló. Margar konur em í sinni fyrstu utanlandsferð. Krafturinn og lífsglcðin cm þvílík að þú hefur aldrei kynnst öðm cins. Guð- rún Helgadóttir verður forscti Sameinaðs Alþingis fyrst íslenskra kvcnna. Fæðingarorlofið er lengt í sex mánuði og þú notar tækifærið og eignast enn citt bamið. Mátt velja hvort þú bíður 1 umferb, ferb aftur á bak eba áfram. 1989 Akureyrarbær samþykkir jafnréttisáætlun og ræður í kjölfarið jafnréttisíúlltrúa árið 1991. Þú gleðst yfir framtaki bæjaryfirvalda, færist upp um launaflokk og fram uml reit - en spáir í hvort þeir fyrir sunnan, í stærsta bæjarfélagi landsins, geri svo vel við kon- ur að jafnréttisfulltrúa sé þar ekki þörf! (Ónci... en Reykvíkingar fá sinn fúlltrúa ekki fyrr en 1994). 1994 Björk Guðmundsdóttir fær helstu tónlistarverð- laun Breta, er valin besta alþjóðlega söngkonan og besti nýliðinn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er kjörin borgarstjóri Reykjavíkur. Konur em í meirihluta í stjóm borg- arinnar í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Þetta er sigur kvenna! Til hamingju. Þú kemst þangab sem þú vilt. 1993 Kvennalistinn fagnar 10 ára afmæli sínu á Hótel Borg og þú crt meðal gesta. Magdalena Schram segir m.a. í hátíðarræðu sinni að ungar stúlkur taki réttindi sín sem gcfnum hlut án þess að vita að for- mæður þeirra gcngu af sér skóna til að öðlast þau. Þær muni bregðast harkalega við þcgar þær upp- götva að réttindin em ekki sjálfgefin heldur Qöregg sem alltaf þarf að standa vörð um. Hún heldur því fram að sú tilhneiging kvenna að gera lítið úr sjálf- um sér og sú árátta að taka meira mark á öðmm cn sjálfum sér sé ásamt karlveldinu mesti þrándur í götu kvenna til draumalandsins. Þessi orð hafa mik- il áhrif á þig og þú ákveður að gera cins og hún boð- ar: Að hlusta grannt eftir þinni innri rödd og hlýða henni! Þér fínnst svo gaman ab þú vilt helst ekki færast úr stab. 1992 Fæðingarheimili Rcykjavíkur lokað af borgaryfir- völdum. Vestnorræna kvennaþingið haldið á Egils- stöðum. Þú ferð til Akureyrar á ráðstefnu kvenna í atvinnusköpun og hittir þar m.a. bændur sem hafa nýverið tekið sig til og stofnað félagið Handverks- konur milli heida til að bregðast við niðurskurði í landbúnaði. Það cr hugur í þeim og þú spáir í hvers vegna þær og aðrar framsýnar konur ráði ekki ferð- inni í Stéttarsambandi bænda. Friða Á. Sigurðar- dóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Guðrún Helgadóttir fær Norrænu bamabókaverð- launin og Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir vinnur Leikskáldaverðlaun Norðurlanda. Þú lest um bíikslagið í Veru, kaupir þér bók Susan Faludi og heitir því að lcggja þitt af mörkum. Ferb fram um 3 reiti. 1991 Sigríður Snævarr verður sendiherra íslands í Sví- þjóð og séra Hanna María Pétursdóttir er ráðin þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, fyrstar íslcnskra kvenna til að gegna slíkum embættum. Þú veltir því fyrir þér hvort kvennabaráttan gangi út á það að fagna litlum áfangasigmm. í alþingiskosningunum fjölgar konum nokkuð og ná því að verða 25% þingmanna á kjörtímabilinu. Þú fylgist af ákefð með Norræna jafnlaunaverkefninu. Afram um 2 reiti. 1990 75 ára kosningaréttar kvenna minnst með ýmsum hætti. Kvennalistinn kemur illa út úr sveitarstjóma- kosningum og þér finnst hann vera dottinn í mæðra- hyggju. Þú finnur þig ekki í baráttunni, en fagnar því að Stígamót em stofnuð 8. mars. í kjölfarið opnast umræðan um kynferðislegt ofbcldi gegn konum. Færist fram um 4 reiti.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.