Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 17

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 17
MIKILL SIGUR FYRIR KYENNALISTANN“ segir Kristín Astgeirsdóttir þingkona Kristín Ástgeirsdóttir í Lýðveldisgarðinum. »Sérstaða Kvennalistans er fyrir bí. Kvennalistinn er að líða undir lok.“ Fullyrðingar sem þessar hafa heyrst oft síðustu vikur í kjölfar þess að Kvennalistinn tók þátt í sameiginlegu framboði til borgarstjórnar í vor. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í sjónvarpssal daginn eftir kosn- lngar að Kvennalistinn væri búinn að vera. Hann væri kominn í valda- brölt rétt eins og hinir flokkarnir. Hann þakkaði Kvennalistanum vel unnin störf, meðal annars það að hafa kennt gömlu flokkunum þá lexíu að það borgar sig að hafa konur með. Ingibjörg Rafnar sagði á fundi sem sjalfstæðiskonur héldu rétt fyrir kosningar að hún hlakkaði til þegar Ingibjörg Sólrún kæmi aftur inn á þing í haust eftir að hafa tapað kosn- ingunum og fylgjast með því hvemig hún rcyndi að rökstyðja það að hún hefði ennþá cinhverja sérstöðu. Ingibjörg Rafnar fær ekki þann draum sinn uppfylltan, þar sem nafna hennar Sólrún var kjörin borgarstjóri, en eitt er víst að kastljósunum er beint eina ferðina enn að Kvennalistanum og þess krafist að hann réttlæti tilvist sína. Vera tók Kristínu Astgeirs- dóttur, þingkonu Kvennalistans og talskonu sameiginlegs framboðs í Reykjavík, tali til að spjalla um kosningarnar, Kvennalistann og kvenna- baráttuna.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.