Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 14

Vera - 01.07.1994, Blaðsíða 14
AÐ LÆRATIL SVEITAR- STJÓRNAR HVARERU KONURNAR? ( Á Akureyri var á liðnum vetri haldið námskeiðið „Konur og stjórnmál“, að tilhlutan Jafnréttisnefndar Akur- eyrar. Það vakti mikla lukku meðal þeirra nítján kvenna sem þar tóku þátt en margar þeirra höfðu ekki haft opinber afskipti af stjórnmálum áður. Jafnréttisnefnd þótti nauð- synlegt að vekja áhuga kvenna á stjórnmálum almennt og virkja kon- ur á þeim vettvangi með því að efla sjálfstraust þeirra og þekkingu á sveitarstjórnarmálum. Námskeiðið var því í senn hvatning og fræðsla. Árangurinn kom strax í Ijós því nokkrar kvennanna tóku sæti á framboðslistum og aðrar sitja nú í nefndum á vegum sveitarfélaga sinna. Þátttakendur voru sammála um að þetta væri eitthvað sem ætti að endurtaka og vera í boði á hverju ári, ekki barafyrir kosningar. Það er tilvalið verkefni fyrir jafn- réttisnefndir um land allt að taka norðanmenn sér til fyrirmyndar í þessum efnum og það strax. NH VERA Fyrir þig! Áskrift 3000 kr. á ári (2800 ef borgað með greiðslukorti), greitt tvisvar á ári. Áskriftarsími 91-22188 Nýafstaðnar sveitarstjórnakosningar urðu mörgum vonbrigði því konum fjölgaði afar lít- ið í sveitarstjórnum og eru nú aðeins um fjórðungur fulltrúa, á landsvísu. Hlutfall þeirra hefur vaxið nokkuð undanfarnar kosningar. Það hækkaði til muna þegar Kvennafram- boðið bauð fyrst fram 1982, en þá fjölgaði konum um helming og hlutfall þeirra fór í rúm 12%. Árið 1986 fór það upp í 19% og árið 1990 í 22%. Vissulega er hægt að gleðjast yfir þessari þróun sem orðið hefur á ekki lengri tíma en tólf árum þar sem konur voru vart sjáanlegar á þessum vettvangi fyrir þann tíma. En - þetta breytist einfaldlega alltof hægt og hver er skýringin? Gamla tuggan um að konur gefi ekki kost á sér er löngu orðin svo oftuggin að það tekur því varla að kyngja. Og segir ekki nema hálfa söguna. Vera leitaði álits nokkura núverandi og fyrrverandi kvenfulltrúa í sveitarstjórnum og nefndum, og flestallar töldu meginskýringuna vera geysilegt vinnuálag kvenna og launa- misrétti kynjanna. Þegar konur taka, að lokn- um vinnudegi utan heimilis, bakvaktina heima fyrir er oftast lítið um aukreitis tíma og orku til að stússast í félags- og stjórnmálum. En þær sem láta áhugann á pólitíkinni ráða, þekkja hið viðvarandi samviskubit hvort sem það er raunverulegt eða ástæðulaust. Launamisréttið verkar í mót bæði konum og körlum þar eð þeir eru enn í aðal-fyrirvinnu- hlutverkinu og axla því ekki ábyrgðina heima fyrir til jafns við konur og missa fyrir bragðið af verðmætri reynslu. Þetta á kannski sér- staklega við um konur með ung börn og margar viðmælenda bentu á að afskipti af stjórnmálum væru varla nema fyrir barnlaus- ar konur eða konur með uppkomin börn, en þær síðarnefndu væru þó engu betur settar. Margar þeirra sinni í raun fjórum kynslóðum; foreldrum sínum eða öðrum öldruðum ætt- ingjum, sem fá ekki þá aðhlynningu sem þeir þurfa innan velferðargeirans, eiginmanni sem er ekki alveg fær um að sjá um sig sjálfur, börnum sínum og svo barnabörnunum sem aldrei virðast eiga öruggt skjól í þjóðfélagi þar sem yfirleitt þáðir foreldrar verða að vinna úti og einstæða foreldrið vinnur óhóflega langan vinnudag til að eiga fyrir salti í grautinn. Þetta er gömul saga og ný, frá þeim tíma er konur tóku að hasla sér völl á vinnumark- aði. Og innan þeirra veggja þar sem for- gangsröðin er ákveðin, hvort sem það er í gufubaðinu í karlatímunum, eða í hinum og þessum aflokuðu félögum eða hópum um borg og bý, er haldið áfram að láta sem lýð- veldið sé tvítugt, eða þaðan af yngra. Úti um landið, þar sem kosið er óhlut- bundinni kosningu, stendur konum ekki að- eins þetta fyrir þrifum. Þar sitja hefðir og venj- ur í fyrirrúmi og mætti líkja sumum hrepps- nefndum við goðorðin til forna. Sveitahöfð- Ljósm. Birgit Guðjónsdóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.