Vera - 01.07.1994, Síða 21

Vera - 01.07.1994, Síða 21
Það hefur verið geri grín að Kvennalistakonum fyrir að líta á það sem hlutverk sitt að vera siðbœtandi afl í pólitík. - Já, en þá hefur verið snúið út úr málum. Við erum ekki að setja ofan í við óknytta- drengi - eins og ein orðaði það - málið er al- varlegra en það. Kvennalistinn hefur alltaf gagnrýnt spillingu, misbeitingu valds og skort á lýðræði, t.d. setningu bráðabirgða- laga og aðrar aðgerðir gegn vinnandi fólki. Einnig höfum við gagnrýnt annarlegar stöðuveitingar og nýlega kom þingflokkur- inn með tillögu um að útlán bankanna verði rannsökuð. Þar eru mýmörg dæmi um hreina og klára spillingu þar sem enginn er dreginn til ábyrgðar. Það hefur borið nokkuð á því í vetur að þing- konur greiði atk\’œði sitt á hvað. Hér áður vakti það athygli að Kvennalistakonur komust að sameiginlegri niðurstöðu um nœr öll mál, heyrir samstaðan fortíðinni til? - Auðvitað erum við sammála í stórum dráttum, cn það hefur gerst á þessu kjörtímabili að við höfum gert það sem hverri og einni finnst rétt. Það hefur gerst í kjölfar Laugarvatnssam- þykktarinnar 1992. Sú samþykkt var leið til að leysa stórt og mikið á- greiningsmál, en að gera það að almennri reglu að hver og ein megi gera það sem henni sýnist gengur ekki. Eg sé það alltaf betur og betur að það sem skiptir máli í stjórnmálastarfí er samstaða, það að geta unnið saman og tryggð gagnvart hreyfingunni og hver annarri. Auðvitað geta komið upp stór mál sem þá þarf að fara með inn í Kvennalistann, en að þetta eigi að vera reglan gengur ekki. Það er ekki hægt að halda sarnan pólitískri hreyfíngu ef við erum ekki sameinaðar um stefnu, starfs- hætti og áherslur. Svo að ég vitni í Jón Baldvin þá skiptir stefnufesta rnestu máli í stjórnmálum þannig að fólk viti að hverju það gengur í kosningum. Við vitum að Kvennalistinn hefur byr í þjóðfélaginu og við verðurn að undirbúa næstu kosningar vel, móta stefnuna, taka á þeim málum sem við þurfurn að taka á, undirbúa okkar vel í sjávarútvegsmálum, velferðannálum, land- búnaðarmálum og Evrópumálunum - sem eru e.t.v. þau mikilvægustu sem Island hef- ur þurft að takast á við. Við þurfum enn á ný að spyrja okkur fyrir hvað Kvennalistinn stendur, að hverju stefnir hann og um hvað sameinumst við? Hversu mikla áherslu á að leggja á samstöðuna og hvenær verður hún svo útvötnuð að hún eyðir allri pólitík? Það er löngu tímabært að krytja hugmyndafræðina, sem hefur staðið lítið breytt frá 1982, til mergjar - þó það kunni að kosta átök, en mikilvægast er að komast að sameiginlegri niðurstöðu og standa saman um hana. Viðtal RV Ljósmyndari Bára Laufey Jakobsdóttir og Ingibjörg Þorgeirsdóttir Gerum hreintí umferðinni! BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF. ^að er eitthvað bogið við nvi'J 'sskápalínuna frá Whirlpool HLUTFÓLL HURD HÆÐ BREIDDDÝPT VERDst.GR. 190/122 2 180 60 60 82.555 242/83 2 180 60 60 82.555 202/96 2 179 55 60 66.405 204/60 2 159 55 60 61.655 Bogadregin línun í hurðunum ;i nvju ískápalínunni frá \\ hirpool gefur nútímalegt yfirbragö. I ni leið er |>að afturhvarf til fortíðar og því má segja að gainli og nýi tíininn niætist í nýju Soft Look línunni Irá W hirlpool. % W* jgg gs? fig SfK 9 KOMDU OO 5*°° Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO :Ar- ;.4S^ Umboösmenn um land allt.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.