Vera - 01.07.1994, Qupperneq 32
ATHAFNAKONUR
TENGSLANETIÐ
KÖNGULLÓIN
Tengslanetið Köngullóin er gagnabanki
fyrir konur á Islandi. Markmið Köngul-
lóarinnar eru að hvetja konur til frum-
kvæðis í atvinnumálum, koma á tengsl-
um milli kvenna sem reka fyrirtæki eða
starfa að menntunar-, félags- og atvinnu-
málum kvenna og sfyðja konur til at-
vinnusköpunar. Safna skal víðtækum
upplýsingum um konur - m.a. um mögu-
leika þeirra til eigin atvinnusköpunar -
og miðla þeim milli kvenna, t.d. með
fréttabréfi til félagskvenna.
Köngullóin er fyrir allar konur sem
vilja skapa sér betri möguleika á atvinnu
og menntun. Félagar í Köngullónni eru
nú á þriðja hundrað. Fréttabréfið Vefur-
inn kemur út sex sinnum á ári. Þar er
meðal annars kynning á fyrirtækjum
kvenna, fúndum, ráðstefnum, útgefnu
efni sem viðkemur konum, félagasam-
tökum og námskeiðum. Askrift er
ókeypis. Verkefnisstjóri er Þóra Þórar-
insdóttir sem býr á Skeggjastöðum i
Bakkafírði.
„Köngullóin er einn afrakstur ráðstefn-
unnar Að taka málin í eigin hendur sem
haldin var á Akureyri i júní 1992. Þar
hélt ég erindi um nauðsyn á tengslaneti
fyrir konur. Konumar átján sem hlýddu á
erindið ákváðu að hrinda hugmyndinni í
framkvæmd og Köngullóin varð til eftir
að skipuð hafði verið framkvæmdastjórn
og sótt um sfyrk í 15 milljón króna sjóð-
inn,“ segir Þóra.
Félagsmálaráðuneytið hefúr staðið
straum af kostnaði við Köngullóna fram
að þessu. Nú hefur verið sótt um styrk til
atvinnu- og iðnþróunarfélaganna, en þau
eru tiu á landinu. Segist Þóra vonast eftir
góðum undirtektum.
„Nýsköpunin og ferskleikinn er hjá kon-
um,“ segir Þóra. „En margar þeirra em
einangraðar. Félagar í Köngullónni fá
upplýsingar um það sem aðrar konur em
að gera í atvinnumálum sínum og um
möguleika kvenna til að afla fjármagns
og rekstrarráðgjafar vegna verkefna. Þær
komast í kynni við aðrar konur sem em
að vinna að samskonar málefnum, fá
fréttir af námskeiðum, klúbbum og fé-
lagastarfsemi fyrir konur. Og þar fást
upplýsingar um ýmis verkefni sem unnin
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Handavinna fyrir alla
Heimilisiðnaðarskólinn
Laufásvegi2
Sími 17800
eru um eða fyrir konur.
I hverjum Vef kynnum við nokkur
fyrirtæki. Þannig geta konur séð hvort
einhver er að gera eitthvað svipað og
þær, haft samband og skipst á upplýsing-
um. Nú eru að spretta upp handverks-
hópar um allt land og það er mjög mikil-
vægt að þeir hafi samstarf sín á milli svo
allir séu ekki að gera það sama. Með því
að koma handverkshópunum í samband
við hvem annan geta þeir miðlað af
reynslu sinni, t.d. í sambandi við upp-
byggingu og skipulag félagsskaparins og
haft samráð um vöruval og vöruþróun.
Það er kominn vísir að sérhæfingu milli
hópanna og er það vel, því allir eru jú að
framleiða fyrir heimamarkað. Það sem
háir flestum em markaðsmálin og þau
þarf að taka föstum tökum, t.d. með
sölusamtökum sambærilegum við SIF
(Sölusamband íslenskra fiskframleið-
enda). Mikilvægt er fyrir konur að ein-
beita sér að völdum verkefnum í stað
þess að vera alltaf að breyta til. Þannig
þróast hluturinn og vinnutækni við fram-
leiðslu hans svo hámarks afköst og vöru-
vöndun náist. Fyrir sumum er þetta at-
vinna, fyrir öðmm afþreying. Það hefúr
auðvitað sín áhrif á viðhorfið til vinn-
unnar og þá ekki síst á verðlagningu
hennar. Konur verða að fá eitthvað fyrir
sinn snúð og það er ekkert vit í því að
vera með atvinnustarfsemi sem skilar
ekki hagnaði. Köngullóin sinnir öllum
konum og við þjónustum nánast hvað
sem er. Nýlega hringdi t.d. í mig kona
sem er skólabílstjóri og hún vildi komast
í kynni við aðrar skólabílstýmr. I næsta
Vef verður nýr dálkur, smáauglýsingar.
Það ætti að auðvelda konum að finna
sina líka, konur sem em að fást við það
sama í vinnu- eða frítíma.
Það er mikil þörf fyrir tengslanet,
ekki aðeins úti á landi heldur einnig á
höfuðborgarsvæðinu. Það er tímafrekt
og dýrt að hver og ein sé að finna upp
hjólið. Þess vegna, meðal annars, er
Köngullóin svo mikilvæg. Þar er safnað
upplýsingum um konur fyrir konur, til að
auðvelda þeim að ná settu marki.“
Viðtal og ljósmynd: RV