Vera - 01.07.1994, Síða 35
Flugfreyja
Þórdís hefur unnið sem flugfreyja öðru-
hvoru eftir stúdentspróf, en getur ekki
hugsað sér að vinna eingöngu við það.
Aðalástæðan er sú að hún hefur meiri
áluiga á öðru, auk þess sem ílugfreyju-
starfið er slítandi, vinnutíminn óregluleg-
ur og starfið frekar einhæft þegar til
lengdar lætur. Þórdís telur viðhorf
almennings til flugfreyjustarfsins undar-
leg, til dæmis voru margir hissa þegar hún
gerðist flugfreyja því hún var talin svo
jafnréttissinnuð en það þótti ekki sam-
rýmast starfínu. Hún segist hafa m.a. litið
á þetta sem leið til að komast oftar út í
heim, eins og margar flugfreyjur gera.
- Að vissu leyti hentar fíugfreyjustarfíð
nútímakonum vel, þær hafa visst frelsi,
eru alls ekki illa launaðar, fá dagpeninga
og frímiða og geta þar af leiðandi ferðast.
Þær standa því jafnari karlmönnum held-
ur en margar aðrar konur. En þessi ímynd
af fallegu, ungu flugfreyjunni lifir góðu
lífi. Þvílík ihaldssemi! Það eru margs
konar konur í þessu starfí sem eðlilegt er.
Það eina sem er mikilvægt í sambandi við
líkamlegt atgervi flugfreyju er að hún sé
ekki of feit, til að komast þægilega á milli
sætaraðanna. Annað sem viðkemur feg-
urð er aukaatriði.
Fyrirsæta
Þórdís var í stoppi í New York þegar
maður frá umboðsskrifstofú fyrir fyrir-
sætur stoppaði hana á götu og bauð henni
að verða fyrirsæta.
- Þannig slæddist ég útí þetta fyrir tilvilj-
un. Mér datt í hug að þetta gæti verið góð
leið til að eignast peninga. En þessi bransi
á ekki við minn karakter. Þetta snýst allt i
kringum útlitið og maður verður að fórna
öllu fyrir það. Frá morgni til kvölds, alltaf
að vera hugguleg, alltaf að vera indæl,
þessi brosandi, sæta og fína stelpa, sem
Þefur engar áhyggjur og pælir ekki í neinu
öðru. Þá var drengjalegur vöxtur í tísku,
stelpurnar urðu að vera eins og þráður í
laginu og voru þess vegna með megrun á
heilanum. Ég var 23 ára og með stóran
Þrjóstkassa, brjóst og mjaðmir og þurfti
því að hafa mikið fyrir þessu, helst ekki
uö borða ncitt nema salat, eina jógúrt og
e>tt epli á dag.
Þórdís stoppaði ekki lengi í fyrirsætu-
starfinu. Henni fannst þetta ekki fyrir-
hafnarinnar virði.
' Dagurinn fór í viðtöl. Ég var á hlaupum
milli skrifstofa og mér fannst fremur litið
a 111 ig seni hlut en manneskju, það var
horft á mig en aldrei talað við mig.
«Farðu úr iotunum, snúðu þér í hring,
hver eru málin, hvað crtu há, hvað ertu
þmig, hvernig er húðin?“ Fyrirsætur
verða að hafa töluverða peninga á bak við
sig til að halda sér uppi meðan þær byggja
upp möppu með myndum af sér, því fæst-
ar fá vinnu strax og það er dýrt að búa í
Ncw York. Ég hætti, kannski af því að
þetta var ekki það sem ég hafði ætlað mér
eða þráð allt mitt líf, og fór heim til Is-
lands. Hér fór ég að vinna á framköllunar-
stofu og siðan sem leiðsögumaður, en ég
lauk Leiðsögumannaskólanum vorið
1984.
Ljósmyndun
- Ég hafði lengi haft áhuga á ljósmyndun
og kom mér snemma upp ágætri mynda-
vél og myrkraherbergi. Seinna fór ég að
lcita fyrir mér með skóla og langaði jafn-
vel til Finnlands en fór til Frakklands,
enda hafði ég verið skiptinemi þar og
kunni málið. Fyrir valinu varð ríkisljós-
myndaskólinn École Nationale de la Pho-
tographie í Arles.
Skólinn er bæði bóklegur og verklegur og
Þórdís segir að mikil áhersla hafi verið
lögð á hvaða tilgangi myndin þjónar í
samfélaginu, hvemig hægt er að lesa
myndir og hvaða skilaboðum er verið að
koma á framfæri með þeim.
- Við lærðum merkingarfræði, heimspeki,
félagsfræði, lista-, ljósmynda- og kvik-
myndasögu, en allt í tengslum við mynd-
ina sem miðil. Það var lögð jafn mikil
áhersla á þennan þátt eins og þann verk-
lega. Við lærðum alla myrkraherbergis-
vinnu, úti- og innimyndatökur og vorum i
vikunámskeiðum, t.d. í blaða- og tísku-
ljósmyndun. Við lærðum einnig að setja
upp sýningar með öllu sem því fylgir.
Nemendurnir hittust vikulega í litlum
hópurn og ræddu það sem þeir voru að
gera hver fyrir sig.
Að vasast í mörgu
- Eftir að ég lauk námi árið 1989 hef ég
aðallega starfað sem „free-lance“ ljós-
myndari, en líka sem leiðsögumaður og
flugfreyja. Þannig hef ég skipt mér niður
á milli verkefna og eiginlega landa því að
maðurinn minn er franskur. Mér finnst
stundum þreytandi að lifa svona „skiptu“
lífí. Maður hefur ekkert ljárhagslegt ör-
yggi og annað slagið finnst mér sem ég
nái ekki nægilegri dýpt í neinu en þetta
gefur manni á hinn bóginn mikla reynslu
og íjölbreytt líf.
Hvernig gengur að tengja þessi ólíku
störfsaman?
- Flugfreyjustarfið gefur mér tækifæri til
að fara með myndavélina mína á staði
sem ég gæti ekki farið til annars. Ég hef
lengi verið með mikla ferðabakteríu og fæ
vissa útrás fyrir hana í leiðsögninni og
flugfreyjustarfinu. En ljósmyndunin er
aðal ástríða mín.
í Sousse, norðausturhluta Túnis. Þar eru konur sveipaðar
blæjunni hvort sem er á ströndinni eða annars staðar.
Hægt er að fara í nokkurra daga ferðir á úlföldum um
eyðimörkina og er þá gist í tjöldum.
Börnin á leið úr skóla. í Túnis ganga nær öll börn í skóla,
sem er nokkuð ólíkt því sem gerist víða í löndunum í kring.
Yfirvöld í Túnis hafa fengið sérstaka viðurkenningu frá
UNICEF fyrir uppbyggingu í skóla- og menntunarmálum.
I'