Vera - 01.07.1994, Side 47
Hverjir hafa lagt sitt á vogarskál jafnréttis undanfarið?
Hverjir hafa unnið jafnréttisbaráttunni mest gagn og ógagn?
HVAÐ FINNSTÞÉR?
Sendu Veru linu eða taktu upp símtólið og láttu skoðun þína í Ijós.
PLÍJS
Reykvíkingar
I nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum nýttu Reykvíkingar sér það
gullna tækifæri að kjósa konu sem borgarstjóra. Ingibjörg Sólrún er
fyrsta konan sem er kjörin borgarstjóri í Reykjavík. Jafnframt kornust
konur í fyrsta skipti í meirihluta í borgarstjórn. Nú sitja átta konur í
borgarstjóm, fimm fyrir Reykjavíkurlistann og þrjár fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Vera óskar þeim öllunr velfarnaðar í starfi.
Eitt samfélag fyrir alla
A alþjóðlegri ráðstefnu um málefni fatlaðra, sem haldin var í Háskóla-
bíói í júní, vora konur mikið í sviðsljósinu. Á setningarathöfninni töl-
uðu Ásta B. Þorsteinsdóttir fonnaður landsamtakanna Þroskahjálpar,
Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands, Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra og Ólöf Ríkarðsdóttir fonnaður Öryrkjabandalagsins.
Loks þegar þær höfðu talað, komst fyrsti karlmaðurinn að, Guðmundur
Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra. Það vakti athygli að aðalræöumað-
urinn á fyrsta degi ráðstefnunnar var kona í hjólastól. Hún heitir Jeanne
Elliott og er lögfræðingur frá Kalifomíu og talaði urn mikilvægi mann-
réttindabaráttu fatlaðra.
Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir, sem skipaði 14. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, skrifaði grein í
Morgunblaðið 29. apríl sl. um mikilvægi sveigjanlegs vinnutíma fyrir
ijölskylduna og samfélagið. Það er gleðilegt að fleiri en kvennalista-
konur leggi þessu baráttumáli kvenna lið. En Kvennalistinn heíúr ítrek-
að flutt tillögur til þingsályktunar um sveigjanlegan vinnutíma en þær
hafa ekki verið afgreiddar.
íslenskar konur
Þrettán hundruð íslenskar konur ætla á Nordisk forum í Ábu í sumar!
Jafnrétti
Það er jákvætt hversu mikla umíjöllun málefni ijölskyldunnar og jafn-
réttis fengu í nýafstöðnum sveitarstjómarkosningum. Svo virðist sem
ráðamenn séu loksins að gera sér grein fyrir vilja kjósenda.
Saenskir karlar
Sænskir karlmenn hafa nú verið skikkaðir til að taka fæðingarorlof og
þurfa að greiða sekt ef þeir sinna ekki föðurlegum skyldum sínum.
Hvemig væri að taka Svía til fyrirmyndar í þessu?
MÍMU2
ÁrniJohnsen y
Árni Johnsen skrifaði í Morgimblaðió 8. júní sl.: „Það hefur verið deilt
um [í kosningabaráttunni] hve hratt ætti að eyða biðlistum á dagheim-
ilum í Reykjavík fyrir 2 - 5 ára böm, ... borgarstjóraefni R-listans
sagðist... telja að vandamálið væri ekki aðeins bundið við þann aldur,
heldur einnig öll böm á fyrstu tveimur áram ævinnar. Er það sem sagt
markmiðið að sótt sé um fyrir ófædd börn á stofnunum samfélagsins,
hvemig þjóðfélag ætlar þetta fólk að skapa inn í framtíðina?"
Ámi ætti frekar að spyrja sig hvernig þjóðfélagið er nú, sérstaklega
þar sem hann er alþingismaður. Veit hann ekki að fæðingarorlof er sex
mánuðir og að það heyrir til undantekninga að það sé á færi feðra að
nýta sér það? Hvað á að gera við börnin frá sex rnánaða til tveggja ára
aldurs? Ætlar Ámi að passa eða gerast talsmaður lengingar fæðingar-
orlofs sem foreldmm verði frjálst að skipta á milli sín?
Listahótíð í Reykjavík
Á vegum Listahátíðar eru tíu einkasýningar myndlistannanna. Ekki
ein einasta kona er í þeirn útvalda hópi.
Sveitarstjórnarkosningarnar
Konum í sveitarstjórnum íjölgaði aðeins um 3% á landsvísu í nýaf-
stöðnum kosningum og eru þær nú um Ijórðungur fulltrúa.
Hugsun í kreppu
VSÍ, Morgunblaðið og ríkisstjórnin hafa sameinast um að taka undir
mjög vafasamar hugmyndir ættaðar frá Nýja-Sjálandi. Nú keppast þeir
við að sannfæra hver annan urn að velferðarkerfið og of há laun verka-
fólks séu stærstu vandamál eíhahagskerfísins. Nú þarf bara að lækka
launin og losa okkur við samtryggingu velferðarkerfisins, og hókus
pókus, þá fáum við óleysanleg vandamál, enn fleiri en við glímum við
nú.
Atvinnuleysi
Mesta atvinnuleysi sem mælst hefur á árinu var 22. rnars sl. en þá voru
3606 á skrá. Þann 9. júní hafði sú tala lækkað í 2700. Á þessu tímabili
hafði körlum á skrá fækkað urn 836 en konurn aðeins um 70. Hvemig
væri að sinna atvinnulausum konur betur, t.d. með átaksverkefnum
sem henta þeim?
Skagfjörð
„Ódauðleikinn byggir ekki á skyndilausnum, heldur úthugsaðri blöndu
næringar- og styrkingarefna sem jafnvel tíminn vinnur ekki á. ... Kon-
an er eilíf með vandaðri viðarvörn frá Woodex." Þökkunr ábending-
una, gott að vita hvernig við geturn orðið eilífar.
íslenska þjóóin
Samkvæmt skoðanakönnun Gallups líta lslendingar, einkum í yngri
kantinum á ofbeldi á eiginkonunr því næst sem sjálfsagðan hlut! Við
sláum út Bandaríkjamenn þar sem glæpir og ofbeldi em eitt
alvarlegasta þjóðfélagsmeinið.