Ritmennt - 01.01.1999, Page 42
AÐALGEIR KRISTJÁNSSON
RITMENNT
Finnur Jónsson prófessor skrifaði grein um
Fornfræðafélagið í tilefni af aldarafmæli
þess. Þar segir hann að í upphafi hafi forn-
ritaútgáfan verið aðalmarkmið þess. Um
„fornritadeildina" kemst hann svo að orði
að hún hafi verið með dálítið undarlegu
móti:
Það var skipuð nefnd til þess að sjá um og vinna
að útgáfunum, það var þó eiginlega ekki félagið
sjálft, sem kostaði ritin, en skuldbatt sig til að
lcaupa svo og svo mörg eintök. Annars áttu þeir í
nefndinni upplagið og ágóðann af því, sem inn
kom - þó greiddi félagið þeim nokkurt fé.19
Útgáfa Fornmanna sagna hófst árið 1825
þegar fyrsta bindi af Sögu Ólafs konungs
Tryggvasonar kom út. í formála var þeirra
getið sem unnið höfðu að útgáfunni og
hvernig þeir skiptu með sér verlcum:
Sveinbjörn Egilsson, kennari við Bessastaða-
skóla, hefir skrifað út skinnbókina A., sem fylgt
hefir verið, veturinn 1818-19, þá hann dvaldist
hér í Kaupmannahöfn. Löjtenant Rafn og candid.
theol. Þ. Guðmundsson hafa nákvæmlega saman
borið þessa útskrift við hinar áðurnefndu skinn-
bækur og valið þann orðamun, er þurfa þótti.
Prófarkirnar eru leiðréttar eftir sjálfri skinnbók-
inni A., og hefir cand. Guðmundsson lesið þá
fyrstu, löjtenant Rafn þá aðra, og próf. Rask, fé-
lagsins forseti, þá þriðju og eftirsjónarörkina; en
tileinkunarkvæðið hefir Sv. Egilsson ort.20
í þriðja bindi Ólafs sögu Tryggvasonar voru
prentaðir tíu þættir „er annað tveggja heyra
einmitt sjálfri sögunni til, eður því tíma-
rúmi, er sagan yfirgrípur", eins og segir í for-
mála.
Allir þessir þættir eru prentaðir eftir því hand-
riti, sem cand. theol. Þorgeir Guðmundsson hef-
ir skrifað eftir bókum þeim, er lagðar hafa verið
til grundvallar, og hafa prófessorarnir R. Rask og
C.C. Rafn, í sameiningu með honum, samanbor-
ið það við hinar bækurnar, hvörra getið er hér að
framan við sérhvörn þátt út af fyrir sig, og tekið
þar af þann orðamun, er merkiligur þótti. Þessir
þrír hafa eins nú sem áður leiðrétt prófunarörk-
in, en Þorgeir hefir samið registrið yfir manna
nöfn þau, er finnast í þessari sögu af Ólafi kon-
ungi Tryggvasyni og þáttum hennar.21
Árið 1829 kom út fyrra bindið af Sögu Ólafs
konungs hins helga og það síðara árið eftir
ásamt þáttum sem tengdust sögunni. í lok
formála kernur fram að Þorgeir hafði „af-
slcrifað alla söguna líka viðuraukana og
þættina" að einum undanteknum. Hafði
hann og lesið fyrstu og þriðju próförlc og
gert registrin. í formála að sjötta bindi Forn-
manna sagna segir að Þorgeir hafi „útslcrif-
að allan textann" og borið saman við hand-
rit og lesið fyrstu próförk ásamt Rask. Aulc
þess unnu þeir Þorgeir og Þorsteinn Helga-
son við útgáfu ellefta bindisins sem lcorn út
1828. í því voru fómsvíkinga saga og Knyt-
linga saga með tilheyrandi þáttum. Þorgeir
fór til Svíþjóðar sumarið 1827 til að vinna
að útgáfunni og skrifaði þá upp ýmislegt
sem nýttist útgáfustarfsemi Fornfræðafé-
lagsins enda var ferðin farin á vegum þess.22
Samkvæmt þeim upplýsingum um út-
gáfustörf Þorgeirs á vegum Fornfræðafélags-
ins sem er að finna í Almindeligt Forfatter-
Lexicon hjá Erslew átti Þorgeir verulega
19 Finnur Jónsson: Hið konúnglega norræna forn-
fræðafjelag, bls. 2-3.
20 Fornmanna sögurl, formáli, bls. 15.
21 Sama rit III, formáli, bls. 8.
22 Aðalgeir Kristjánsson: Carl Christian Rafn, bls.
33-34.
38