Ritmennt - 01.01.1999, Page 49
RITMENNT
ÞORGEIR í LUNDINUM GÓÐA
gætu farið í fótspor Baldvins að skrifa fyrir
alþýðu manna. Þorgeir sagði að Baldvin
hefði fengið sig til að vera meðútgefandi
ritsins en hann hefði ekkert í það skrifað,
þess hefði ekki heldur þurft meðan Baldvin
var ofar moldu. Með tímanum hefðu þeir
hugsað sér að Áimann yrði málgagn dug-
andi og reyndra íslendinga sem vildu koma
skoðunum sínurn á framfæri.48 Þannig birt-
ist grein eftir séra Guðmund föður Þorgeirs
í síðasta árganginum sem hét Um íláta-
mælir og tilbúning.
Forsetastörf í Hafnardeild og útgáf-
ur Bókmenntafélagsins
Þorgeir kom mikið við sögu Hafnardeildar
Bókmenntafélagsins fram til þess dags að
hann vígðist að Glólundi og Grashaga 1839.
Þess er áður getið að hann annaðist bóka-
vörslu félagsins 1820-24. Hinn 15. júní
1826 var hann kjörinn gjaldkeri Hafnar-
deildar á aðalfundi og gegndi því embætti til
15. mars 1831 að hann varð forseti deildar-
innar.
Auk stjórnarsetu lagði Þorgeir sitt af
mörkum varðandi útgáfustarfsemi Bók-
menntafélagsins alla tíð meðan hann átti
heima í Höfn. Þegar sá fyrir endann á útgáfu
félagsins á Sturlungu bauðst því að gefa út
Árbækui íslands í sögu formi eftir Jón
Espólín. Höfundur var þá langt lcominn með
samningu ritsins. Hinn 3. nóvember 1820
var ákveðið á fundi í Hafnardeild að ráðast í
prentunina. Nefnd var kjörin til að annast
útgáfuna og var Þorgeir valinn í hana auk
Bjarna Þorsteinssonar og Þórðar Svein-
björnssonar. Þetta var í fyrsta skipti sem
nafn Þorgeirs kom fyrir í sambandi við
bókaútgáfu Bókmenntafélagsins. Það voru
Finnur Magnússon og Raslc sem báru hita
og þunga þessarar útgáfu og henni var end-
anlega lokið 1843.
Á fundi í Hafnardeild 9. maí 1821 var
fundarefnið að ákvarða „hvört félagið vildi
álylcta prentun útvaldra kvæða skáldsins
síra Stefáns Ólafssonar". Fundargerðin
greinir svo frá að Finnur Magnússon forseti
deildarinnar hefði látið skrifa þau upp sem
fyrsta hluta „hins íslenska kvæðasafns
hvörs þrykkingu félagið hefur ásett sér". í
bréfi til Bjarna Þorsteinssonar 31. (svo) apríl
1822 vék Þorgeir að þessari áætlun félagsins
og greinir frá því að Hafnardeild hefði keypt
safn kvæðahandrita í 14 bindum af Bene-
dikt Bergssyni stud. chirurg. fyrir 20 dali.49
Samkomubók Hafnardeildar greinir svo frá í
fundargerð 21. janúar 1822:
Þar það kvæðasafn, félagsdeildin á íslandi hefir
sent oss engan veginn er í því tilstandi að það án
frekari atgjörða prentað verði, ályktaði þessi
deild í tilliti til fengins samþykkis deildarinnar á
íslandi, að prentun kvæðasafns sra Stephanar
Ólafssonar verði byrjuð í vor eftir þeirri afskrift,
sem núverandi forseti prófessor Finnur Magnú-
sen hefir semja látið og félaginu lcauplaust til-
boðið, svoleiðis að hann á hendur takist val og
Redaction téðra kvæða.50
Á fundi Hafnardeildar 13. janúar 1823 var
rætt um undirbúning að prentun kvæða
Stefáns Ólafssonar. Ekki voru allir á einu
máli hvort í hana skyldi ráðist. Um það seg-
ir svo í fundargerð:
48 Lbs 339 b fol.
49 Sama handrit.
50 Samkomubók Hafnardeildar, 1816-74.
45