Ritmennt - 01.01.1999, Side 91
RITMENNT
BEETHOVEN I TJARNARGOTUNNI
Jón hóf nám við Tónlistarháskólann í
Leipzig þetta sama haust, og enn virðist
hrifning hans á Beethoven hafa farið vax-
andi. Árið 1920 samdi hann kadensu við 3.
píanókonsert Beethovens og tileinkaði heit-
konu sinni, Annie Riethof. Eins og önnur
verk Jóns frá námsárunum er ltadensan í
nokkuö hefðbundnum stíl og hefur að öll-
um líkindum ckki verið flutt nema af
Annie sjálfri á þriðja áratugnum. Eftir að Jón
lióf nám í Leipzig breyttust framtíðaráform
hans að noldtru leyti. Nú stefndi hugurinn á
frama á stjórnandapallinum, og sá ásetning-
ur lrélst þar til að námi loltnu þegar Jón
áltvað að helga líf sitt tónsmíðum. Eins og
við var að búast voru sinfóníur Beethovens
meðal þeirra verlta sem fón lagði mesta
stund á að læra í tengslum við nám sitt í
hljómsveitarstjórn. Á þriðja áratugnum
stjórnaði hann sinfóníum og forleiltjum
Beethovens við fjölmörg tæltifæri og ritaði
sömuleiðis um þær greinar í ýrnis tímarit og
hlöð. Þegar Jón ltom með Fílharmóníu-
liljómsveit Hamborgar til Reyltjavíltur sum-
arið 1926 var Beethoven það tónskáld sem
flest verlt átti á efnissltránni. Þá voru fluttar
í fyrsta sinn á íslandi sinfóníur Beethovens
nr. 2, 3, 5 og 7, ault Egmont- og Coriolan-
forleiltjanna. Noltltrum árum síðar hafði Jón
uppi stórlruga hugmyndir um tónlistar-
flutning í tilefni Alþingishátíðarinnar árið
1930 þar sem tónlist Beethovens ltom með-
al annars við sögu. í bréfi til Páls Isólfsson-
ar sagði hann m.a.:
Eins álít ég að vel væri mögulegt að flytja jafnvel
níundu hljómkviðu Beethovens í Fríltirkjunni.
Þó staltlt ég upp á í fyrsta bréfi mínu til [Alþing-
ishátíðarjnefndarinnar að reistur yrði t.d. í
Reykjavík nolckurskonar skúr, sem rúmað gæti
t * v ' '
(f'
(öi.
f
SKEMTISKRA
G A GHFBÆÐADETLD M ENTASKÓlÍNS
19. DESEMBER 1914, KL. 8. E. H.
I.
1. Skemtnniri sctt: Tlannca Guðmundnson
2. Minni íslands: Jón Imleiflt
9. Minni skólana: PúU JOnsson
O^CCl í t t lt .
II.
Jón ÞoGcifs: Pínnospil
1. Sonato Patotiquo. op. 13 «. Boethoicen
2. Folkovise
Margvcthos Vuggovito Gticg
3. Mavcia Fuuebro v. Beethoicen
Vuggesang Gtieg
III.
1. Minni Framsóknnr: Jietgur Jón/tson
2. Minni kvoriúa: Árni Pétursson
-VB. Veitingar. Spil og töfl liggja frcwnnn.
%
sIC'H
Skemmtidagskrá í Menntaskólanum í Reykjavík, 19.
desember 1914 (límd inn í dagbók Jóns Leifs).
alt að 2000 manns, en það mætti nota þann slcúr
sem fislcpakkhús eða geymsluhús á eftir, ef hann
yrði þá ekki notaður stöðugt til sýninga áfram.8
Þessum hugmyndum tókst Jóni ekki að
lirinda í framkvæmd, frekar en öðrurn ráða-
gerðum sínum varðandi Aiþingishátíðina
árið 1930.9
8 Bréf Jóns til Páls ísólfssonar, Baden-Baden, 25.
nóvember 1927. (Handritadeild Landsbókasafns.)
9 Líkt og í öðrum málum sem vörðuðu framkvæmd
hátíðarinnar virðist Jón hafa kennt þeim Páli ísólfs-
syni og Sigfúsi Einarssyni um að honum gafst ekki
færi á að stjórna 9. sinfóníunni árið 1930. í upp-
kasti að grein frá árinu 1953 sem ber heitið „Sögu-
87