Ritmennt - 01.01.1999, Page 99

Ritmennt - 01.01.1999, Page 99
RITMENNT blaðsíðurnar bera yfirskriftina „Óráðinn draumur": Að morgni þess 21. apríl 1958 dreymdi mig draum þenna: Mér þótti tónskáldið Beethoven vera enn á lífi og kominn í nokkurskonar opinbera heimsókn til íslands og bjó hann, að því er virtist, í ráð- herrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík, - en þó voru húsakynnin ólík og miklu stærri þeg- ar inn var komið. Fólk streymdi þangað til að sjá hann og tala við hann, og tók hann öllum vel. (Kunnugt er hinsvegar hve önugur hann var í Vínarborg, þegar einhver vildi heimsækja hann þar.) Ég fór nú líka að heimsækja hann, og var hann vingjarnlegur, rólegur og ánægður í viðmóti, - augun dökk og ljómandi af lífi, en andlitið rauð- þrútið og maðurinn á bezta aldri. Ekki man ég um hvað við ræddum, en samtalið stutt, af því að mér fannst ekki koma til mála að trufla lengi slíkan mann. Þegar ég svo geng þaðan á móti strjálum straumi forvitinna, sem allir vilja heimsækja hann, þá er eins og mér sé sagt af ósýnilegri röddu: „Hann ætlar að setiast að á íslandi ov mun búa hér í næstu tuttugu ár." Mikill fögnuð- ur grípur mig við tilhugsun þessa, en jafnframt kemst ég eins og í nokkuð uppnám, vegna þess að mönnum sé leyft að trufla hann. Sterk löngun grípur mig til að láta menn vita þetta og sjá um að hann fái að vera ótruflaður. Jafnframt hugsa ég: „ísland verður fvrir braeðið heimsfrægt land. og því oe siálfstæði bess er nú borgið beear af þeim sölcum. - Þetta þarf að fréttast út um allan heim sem fyrst!" Þessi hugsun var svo ákaflega sterk og draum- urinn svo skýr, að um leið og ég vaknaði var ég lengi að átta mig á því að þetta væri ekki veru- leiki. Móðir mín, sem er draumareynd kona á 85. ári, óskaði eftir að ég ritaði niður draum þenna, og er það nú gert.25 Það má vel vera, að Jón hafi aðeins skrifað niður þennan draum að áeggjan móður sinn- BEETHOVEN í TJARNARGÖTUNNI ar. Þó bendir framsetning Jóns á draumnum (í beinu framhaldi af draumi sem Jón taldi að hefði ræst) tii þess að Jón hafi sjáifur talið þennan síðari draum vera annað og meira en marldeysu. Það kemur líka í ljós þegar draumurinn er skoðaður nánar að ýmsar kringumstæður og atburðir minna óneitan- lega á ósldr og langtímatakmörk Jóns sjálfs. Ein af kenningum Gustavs Freuds var á þá ieið að í draumum birtist fuilnæging þeirra ósl<a sem við viðurkennum ckki og reynum að bæla í daglegu lífi oldcar, og í þessu til- felli væri eflaust liægt að heimfæra l<enn- inguna um ósl<a-uppfyllingu á draum Jóns.26 Það er hins vegar ekki síður mildlvægt að Jón skyldi sjálfur skrifa upp drauminn, og bendir það tvímælalaust til þess að hann hafi búist við að í draumnum væri fólgin dýpri merking sem tíminn myndi síðar leiða í ljós. Auk þess gefa tónsmíðarnar sem Jón vann að næstu vikurnar eindregið til kynna að honum hafi gengið illa að hreinsa hugann frá efni draumsins eins og rakið verður nánar hér að neðan. Nokkur atriði í draumnum hljóta að vekja sérstaka athygli og er því vert að 25 „Tveir draumar", handrit dags. í Reykjavík, 25. apríl 1958. (Handritadeild Landsbókasafns, gjöf Þorbjargar Leifs.) 26 Sjá t.d. bók Freuds, Die Traumdeutung, sem kom út í fyrsta sinn árið 1900. Sjá einnig skrif Carls Gustavs Jung um sama efni, t.d. í „L'analyse des réves" (Année psychologique 15 [1909]): „Freud says that the wishes which form the dream- thought are never desires which one openly admits to oneself, but desires that are repressed ... and it is because that they are excluded from conscious reflection that they float up, indirectly, in dreams". Þýðingin er eftir R.F.C. Hull, úr bókinni Dreams, sem er safn greina eftir Jung (Princeton: Princeton University Press, 1974). 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.