Vera - 01.08.1999, Blaðsíða 50

Vera - 01.08.1999, Blaðsíða 50
í janúar sl. varð Veronica Gaikovich, íbúi í Eistlandi, 65 ára gömul. Undanfarin ár hefur einkadóttur hennar, sem einnig býr í smábænum Kohtla-Jarve, reynst erfitt af finna afmælisgjöf handa móður sinni. „Mig vantar ekkert" endurtók móðirin í sífellu. "Ég á allt sem mig vantar. Allt!" „En er þá ekki eitthvað sem þig langar í ?" spurði fertug dóttir henn- ar. „Aðeins betri heilsu, en hana geturðu ekki keypt handa mér," svaraði móðirin og málið var útrætt að hennar mati. Dóttirin andvarpaði. Hin þverlynda móðir brosti og eitt tár rann niður vinstri vanga hennar. „Ég þarf að láta athuga í mér augun. Vinstra augað tárast að ástæðulausu," sagði hún og fór svo út í aðra sálma. Dóttirin vissi að tárin féllu ekki að ástæðulausu. Heilsa Veronicu fór versnandi en henni fannst hún ekki hafa efni á því að deyja fyrr en hún hefði safnað nóg í arf dótturinnar. Veronica hefur engu ráðið um framvindu sögunnar og aldrei komst nafn hennar í fyrir- sagnir dagblaðanna. En hún hefur borið byrði sögulegra breytinga á herðum sér og hefur ætíð reynt að gera það besta úr öllu. Þegar hún komst að því að ég ætlaði að skrifa um hana varð hún afar undrandi og sagði: „Af hverju ætlarðu að skrifa um mig? Ég er ofur venju- leg." Það er dagsatt, því líf hennar er svipað lífi margra kvenna frá löndum Sovétríkjanna gömlu. Þess vegna er vert að segja sögu hennar. Veronica býr í Eistlandi en talar ekki eistnesku, aðeins rússnesku. En hvar fæddist hún? Svo einföld spurning ruglar hana í ríminu. Fyrir árið 1991 var svarið einfaldlega - „í Sovét- ríkjunum.” Það stóð a.m.k. í vegabréfinu hennar og þar sást að hún var sovéskur þegn. Rugl- ingurinn hófst eftir fall kommúnismans í Sovétríkjunum, 1991. Þorpið sem hún fæddist í, árið 1934, tilheyrir Hvíta Rússlandi. Það gerði það einnig fyrir 1991, en þá tilheyrði Hvíta Rússland, líkt og Eistland og 13 önnur ríki, Sovétríkjunum svonefndu. Nú eru þessi ríki öll sjálfstæð. Og það sem veldur frekari ruglingi er að þorpið hennar var í Póllandi þegar hún fæddist. Var hún þá fædd í Póllandi, Hvíta Rússlandi eða i Sovétríkjunum? Foreldrar Veronicu voru sjálfseignarbændur en árið 1940 breyttu Sovétmenn býlinu í samyrkjubú. Veronica var ein fimm systkina og á hugljúfar æskuminningar frá þeirri tíð er hún vann daglangt úti á ökrunum. Alla vikuna hlakkaði hún til dansleiks næsta laugardags- kvölds. Hún átti aðeins einn kjól og eina góða skó sem hún brúkaði í dansinn og í kirkjuferð- ir. Hún gekk alltaf berfætt á leið sinni til kirkju og hélt á skónum á leið þangað. Áður en hún gekk inn þvoði hún fæturna og smeygði sér í skóna. Veronica átti marga kærasta en var vandfýsin þegar að því koma að festa ráð sitt. Hún var orðin 25 ára, og talin nokkuð fullorðin, þegar hún ákvað ioks að giftast. Eiginmaður hennar kom frá sama þorpi og hún. Hann var gæðablóð og fannst gott að fá sér í staupinu annað slagið. Árið 1957 fór unga parið norðurtil Eistlands. Þá var mikil gróska þar í náma- gerð og verkamönnum frá Sovétríkjunum gömlu boðin vinna. Unga fjölskyldan hreiðraði um sig í nýreistum bæ þar sem flestir íbúanna voru rússneskumælandi innflytjendur frá ýms- um sovéskum ríkjum. Veronica eignaðist barn tveimur árum síðar. Hún grét þegar henni var sagt að hún hefði alið dóttur. Henni fannst líf karlmanna svo miklu auðveldara en líf kven- Hún vann við steypugerð í steinsteypuverksmiðju, við sömu störf og karlmenn. Hún vildi sýna og sanna að hún væri jafnoki þeirra en dag einn lenti hún á spítala, með miklar blæð- ingar. Hún hafði misst fóstur. Eftir lífshættulegan uppskurð var henni sagt að hún gæti ekki eignast fleiri börn og henni var ráðlagt að finna sér léttari vinnu. Veronica snéri aftur til verksmiðjunnar og hóf störf við salernishreinsun. Þá var dóttir hennar 10 ára gömul og þá þegar betur menntuð en móðir sín. Veronica hafði aðeins tveggja ára skólagöngu að baki, því síðari heimsstyrjöldin hafði komið í veg fyrir frekara nám. Hún er illa læs og léleg í staf- setningu. Dóttir hennar fór í þekktan háskóla, varð blaðamaður og skrifar nú fyrir bæjar- blaðið. Mömmu hennar finnst gaman að sjá sögur hennar á prenti en getur aðeins lesið þær stystu. Hún hefur einkum áhuga á sögum um útlendinga, því fyrir skömmu varð hún sjálf út- lendingur í landi þar sem hún hefur búið í 42 ár. Samkvæmt vegabréfi Veronicu er hún útlendingur. Gamla, sovéska vegabréfið hennar féll úr gildi við hrun Sovétríkjanna sem voru. Þar sem hún talar ekkí eistnesku gat hún ekki orðið eistneskur ríkisborgari. Veronica og eiginmaður hennar fá ellilaun sem samsvara sam- tals 200 bandaríkjadölum á mánuði. Þetta dugar þeim til framfærslu. Hún man vel mynt- 11 | ’frfl 111 Bgl| | | [ \ 1 J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.