Vera - 01.08.1999, Qupperneq 55
boy Junkies, sömuleiðis hollenska hljómsveitin
K's Choice með sína söngkonu og líka Six-
pence Non The Richer, þessi nýfræga sveit sem
flytur sitt vinsæla lag Kiss Me á diski númer þrjú.
Og auðvitað spila strákar í hljómsveitum sumra
kvennanna sem koma fram sem sólóistar, t.d.
með Bonnie Raitt, söngvara og gítarleikara.
Ég ætlaði nú ekki að fara sérstaklega út í
frammistöðu hvers og eins á þessum diskum, en
ég get samt ekki sleppt að nefna glæsilega frammi-
stöðu hjá Bonnie Raitt (á 3). Hún flytur með sinni
sveit lagið Spit Of Love og það er ekki nóg með að
hún syngi þetta lag hörku vel og í stíl við textann,
heldur (h)rífur hún mann gjörsamlega með sér með
slide-gítarleiknum. Það heyrist svo sannarlega að
þessi kona er búin að vera næstum stöðugt spilandi á hljómleikum með sveitum sfnum sfð-
an snemma á 8. áratugnum, og þar áður ýmist sem sólóisti eða með gömlu frægu blúslista-
fólki sér til lærdóms og gleði.
En Lilith Fair er ekki bara hátíð fyrir frægar tónlistarkonur og aðdáendur þeirra. Lögð er
áhersla á að fá tónlistarkonur á þeim stað sem hátíðin er haldin á til að troða upp, og sömu-
leiðis og ekki síður er hátíðin haldin til styrktar ýmsum góðgerðarstofnunum á hverjum
stað, svo sem Amnesty International, kvennaathvörfum, barnahjálp ýmis konar, alnæmis-
samtökum, til baráttu gegn brjóstakrabbameini, ólæsi, heimilisofbeldi, nauðgun og hvers
kyns kynferðisofbeldi og svo mætti lengi telja. Einnig er hafin markviss kynnig á bókmennt-
um eftir konur á þessum hátíðum og þá lögð sérstök áhersla á rithöfunda frá viðkomandi
stað. Lilith Fair er þannig víðtæk kynning á kvennamenningu, en það sem forsprakkarnir
eru ánægðastir með er að engu síður karlmenn en konur sækja þennan viðburð, enda sýna
aðsóknartölur það.
Hátíðin var skírð eftir gyðjunni Lilith, sem fyrst er getið í sköpunarsögu Gyðinga og þar ekki
að góðu. Hins vegar breyttist goðsögnina um hana í gegnum aldirnar, t.d. í meðförum
Goethe (Lamía í Faust), Keats og Dantes Gabriels Rossetti, sem í myndlist sinni og skáldskap
túlkaði Lilith þannig að auðvelt varð fyrir feminista að gera hana að sinni konu/gyðju. En ég
ætla að láta frumkvöðul hátíðarinnar, hina ágætu tónlistarkonu Söruh McLachlan, segja í
stuttu máli söguna um Lilith:
„Adam bað Guð að senda sér félaga, maka, eins og hinum dýrunum. Guð samþykkti, skap-
aði Lilith og sendi hana til Adams. I fyrstu var Adam ánægður, en svo opnaði Lilith munn-
y inn og sýndi að hún hafði sjáifstæðar skoðanir. Hann vildi að hún sýndi sér undirgefni i öll-
um skilningi en hún neitaði, sagði að þau væru jöfn og hún mundi ekki verða undir hann
gefin. Adam varð ofsareiður, svo að Lilith fór til friðsælli lendna..."
Rétt er að geta þess að Japis flytur þessa diska til landsins, en þeir heita LILITH FAIR: A
Celebration of Women in Music, Volume 1, 2 og 3. Líka að netfang fyrir Lilith Fair er:
http://www.lilithfair.com
SECURITAS
¥111
í hópjnn?
Agnes hefur unnið í
5 ár hjá Securitas
við ræstingar, Helgi
hefur starfað í 7 ár
við öryggisgæslu
Securitas.
Þau eru verðugir
fulltrúar
Securitas.
Við erum stolt
af starfsfólki
okkar.
Leitaðu upplýsinga
á skrifstofunni eða í
síma 580 7000.
Síðumúla 23