Vera - 01.08.2004, Blaðsíða 55
^ THE VEIL
THE SOUP
ÍUMPC, THC AUPi, iWITZtlUAND,
AUSTRIÚ . . FROM THIS I ÞCÞUUO
THAT SHt WOUID BC UKt HÍIÞI.
THIS WAS OKAV WITH M6.
I ReAtlV UKCP H6IPI.
Lornu Miller, sem er háðsádeila). Þó er ein sem hefur brotist inn á svið
ofurhetjunnar (en þær sögur halda uppi meginlínunni), Ann Nocenti
sem hefur skrifað sögur um Daredevil (Typhoid Mary) og Batman (Poi-
son Ivy). Báðar sögurnar fjalla um hin dæmigerðu tálkvendi sem eru
andstæðingar hetjanna, en í meðförum Nocenti eru þessar persónur
(og reyndar aðrar kvenpersónur) mun blæbrigðaríkari. Þess má geta
að hún hefur unnið mikið sem ritstjóri myndasagna, en konur hafa
haslað sér völl á því sviði á undanförnum árum.
Manga - japanska myndasagan
Það kann kannski að koma á óvart að það er í Japan sem helst er að
leita eftir myndasögum sem eru skrifaðar bæði af konum og fyrir kon-
ur. Þar njóta kvenhöfundar verulegrar virðingar (líkt og myndasagan
almennt) og stór hluti japanskra myndasagna, manga, er ætlaður
kvenlesendum. Áhrif manga á bandarískar og evrópskar myndasög-
ur hafa aukist mjög á allra síðustu árum og með vaxandi fjölda þýð-
inga á manga hefur hlutur kvenlesenda einnig vaxið.
Með hæfilegri bjartsýni mætti því hugsa sér að viðtökur bóka
Satrapi sé dæmi um aukinn áhuga á verkum kvenna og að Persepol-
is sé aðeins upphafið að öðru og meira. Allavega er framhaldið vænt-
anlegt í búðir nú í haust.
Sjá umfjöllun Úlfhildar um Persepolis á bokmenntír.is og greinar um
Grant Morrison og The Sandman I Lesbók Morgunblaðsins.
Norska myndasagan Nemi eftir Lizu Myhre er ein af fjölmörgum myndasög-
um eftir konur sem ekki tókst að koma að í greininni! Nemi birtist í dag-
blaðaskrípó-formi og segir fá goth-píunni Nemi og vinum hennar. Þetta eru
skemmtilega kómískar svísusögur, með snörpum töktum. Sögurnar eru að-
gengilegar á netinu (en það hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir konur
til að koma sér á framfæri) og birtast einnig í myndasögublöðum sem heita
Nemi. Eitthvað hefur líka verið tekið saman og gefið út á bókum.
vera / 4. tbl. / 2003 / 55