Vera - 01.08.2004, Blaðsíða 53
Guðrún M. Guðmundsdóttir / FEMINÍSKT UPPELDI
Femínisti syndgar
» í heilabrotum síðustu daga um val á viðfangsefni í þennan Verupistil opnuðust augun mín
fyrir því að femínískar áherslur í uppeldi barna minna hafa verulega minnkað að undanförnu. í
Ijósi þess ætla ég að nýta þennan pistil í að gera hreint fyrir mínum dyrum, viðurkenna mistök
og greina ástæður að baki þess að jafn staðfastur femínisti og ág villist út af sporinu. Nýlega
virðist ég hafa festst í femínísku uppgjafar- eða lágdeyðuástandi án þess að gera mér minnstu
grein fyrir. Þetta ástand hefur einkennst af þverbrotnum prinsippum, minnkun á jafnréttisum-
ræðu á heimilinu og almennu gagnrýnisleysi á kvenfyrirlitningu.
Ég virðist t.a.m. vera steinhætt að framfylgja
reglum um Popptíví-gláp hjá börnunum og
ómaka mig varla við að benda þeim á hlut-
gervingu á líkömum kvenna í myndböndun-
um. Snyrtivörulagerinn minn hefur nýlega
verið endurnýjaður og mér hefur áskotnast
töluvert af nýjum tískufötum þar að auki.
Sjálfa mig hef ég svo heyrt biðja dæturnar, 14
og 12 ára, um álit á því hvaða augnskuggi
eða gloss fari mér best og hvort rassinn minn
sé stærri í þessum eða hinum buxunum.
Svona rétt til þess að undirstrika gríðarlegt
mikilvægi augnayndishlutverks kvenna, ef
ske kynni að popp-/dægur-/unglingamenn-
ingin komi þeim skilaboðum ekki nógu ræki-
lega á framfæri til þeirra nú þegar. Alvarleg-
ustu afglöp mín til þessa hygg ég þó vera g-
strengsnærbuxnaundirgefnin. Því í stað þess
að fleygja g-strengsnærbuxum í eigu
eldri dóttur minnar (sú yngri myndi
ekki einu sinni láta sig dreyma) rak-
leiðis í ruslið eins og ég áður gerði hef
ég nú staðið mig að því að setja þær í
þvottavélina, í þurrkarann og meira að
segja koma þeim fyrir í skúffum. Ég
neyðist því til að játa mig sigraða af
popp-, dægur-, unglingamenning-
unni sem treður þeim skilaboðum nið-
ur í kokið á unglingsstúlkum að
sexxxapílið sé undirstaða sterkrar
sjálfsmyndar og velfarnaðar í lífinu al-
mennt. G-strengurinn; eitt æðsta tákn
kvenfyrirlitningar í samtíma okkar hef-
ur semsagt borið sigur úr bitum gagnvart femínistanum!
Vonast eftir syndaaflausn
Eftir þó nokkrar vangaveltur um hvað hafi valdið þessari afvegaleið-
ingu, svikum við málstaðinn og meðvirkni með útlitskröfum samfé-
lagsins detta mér þrír meginþættir í hug. Mig
grunar að útskrift mín úr Háskólanum, gagn-
rýni eldri dóttur og athafnir núverandi
menntamálaráðherra eigi þar helst sök að
máli. Slík hætta getur nefnilega skapast þeg-
ar kona yfirgefurfélagsvísindadeild H( og þar
af leiðandi dagleg samskipti sín við aðra rót-
tæka femínista. Mér sýnist kona verða að
rækta og jafnframt næra femínismann innra
mér sér því annars verður hún samdauna ríkj-
andi hugsun þar sem karllægni er normið. í
kjölfar þess að femínískt bakland mitt veiktist
hafa kvartanir eldri dóttur minnar um að ég
neyði femínískri hugsun upp á hana öðlast
aukinn styrk. Hún heldur því fram að hún sé
sjálfstæð kona sem langar bara að hugsa og
haga sér vertjulega og ég hef látið sannfær-
ast. Vitandi mæta vel að sjálfstæða hugsun
sína mótar hún út frá menningu sem
staðsetur konur sem hluti
(object), augnayndi og skrautmuni og
að venjuleg hegðun miðast auðvitað
útfrá því. Menntamálaráðherra hefur
svo smám saman laumað þeim „sann-
leika" að mér að það nægi konu ein-
faldlega ekki að vera gáfuð, vel
menntuð og gegna einu æðsta emb-
ætti landsins heldur verði hún að taka
þátt í ýmsu sem opinberlega undir-
strikar fegurð hennar, sexapíl og
sjarma í hvítvetna. Samanber t.d. þátt-
töku hennar i teymisverkefni sérfræð-
inga á sviði fegurðar, hönnunar og
stíls en afraksturinn birtist í Tímariti Morgunblaðsins ekki alls fyrir
löngu þar sem forsíðan skartaði þessari frábæru útkomu.
Eftir að hafa nú skriftað vonast ég til að öðlast syndaaflausn bæði
hjá lesendum Veru og umfram allt sjálfri mérog kraft til að snúa þess-
ari óhugnanlegu þróun við. Amen!
MENNTAMÁLARÁÐHERRA HEFURSVO
SMÁM SAMAN LAUMAÐ ÞEIM „SANN-
LEIKA" AÐ MÉR AÐ ÞAÐ NÆGI KONU EIN-
FALDLEGA EKKI AÐ VERA GÁFUÐ, VEL
MENNTUÐ OG GEGNA EINU ÆÐSTA EMB-
ÆTTI LANDSINS HELDUR VERÐI HÚN AÐ
TAKA ÞÁTT í ÝMSU SEM OPINBERLEGA
UNDIRSTRIKAR FEGURÐ HENNAR,
SEXAPÍL OG SJARMA í HVÍTVETNA
vera / 4. tbl. / 2003 / 53