Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Page 3
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
51
Norðurlandaþing Ijósmœðra
1979
Hér á eftir fara umsagnir nokkurra ljósmæðra um þingið, sem haldið
var í Osló, dagana 12.—15. júní í sumar. Myndirnar tóku Ása
Marinósdóttir og Margrét Þórhallsdóttir.
Kristín I. Tómasdóttir, yfirljósmóðir.
Þingið fór hið besta fram og var til fróðleiks,
skemmtunar og aukinna kynna ljósmæðra
á Norðurlöndunum.
Þingið var sett við hátíðlega athöfn í Lovísenborgkirkju í
Osló. Voru þar samankomnar flestar eða allar ljósmæður,
sem þingið sátu. Var þetta fríður hópur og föngulegur,
glaðlegur yfirlitum og skartklæddar margar, því hér sá
maður þjóðbúninga Norðurlandanna í allri sinni dýrð. Var
það óneitanlega skemmtileg sjón að sjá svo margar Ijós-
mæður, komnar um langan veg, klasddar sínum þjóðbúning-
um. Norðmenn, Svíar og Finnar eiga margar gerðir þjóð-
búninga og fer slíkt eftir héruðum. Eru þeir yfirleitt
skrautlegri en okkar. Fáir munu þó fínni, né gull- eða
silfurslegnari en sá íslensku, enda fengum við íslenskar
ljósmæður mikla athygli er við mættum svo márgar saman í
okkar þjóðbúningum og urðu margir til að smella af okkur
myndum, bæði á þingstað og götum úti. En þennan fyrsta
dag léku veðurguðirnir við ljósmæður.
Eftir setninguna var haldið á þingstað, lá staðurinn vel við
til þess að hægt væri að nota lest frá náttstað. Þennan fyrsta
morgun vorum við þó sóttar í stórum bílum, þar sem fyrst
var stansað í kirkju, en milli hennar og þingstaðar er talsverð
leið. Flestar bjuggu ljósmæður á Panorama sumarhóteli, sem
er rétt hjá Sognsvatni á fögrum útivistarstað í útjaðri
Oslóborgar.