Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Síða 6
54
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Og til umhugsunar: Nú eigum við að halda næsta mót. Er
þetta eitt af mörgu, sem þarf að hugsa um, að þingstaður og
gististaður séu i nágrenni hvors annars eða líggi vel við
vagnaferðum.
Eftir opnunina snæddu þingkonur og var síðan tekið til
við þingstörf. Fróðlegir fyrirlestrar og umræður fóru þarna
fram. Mun ég ekki rekja þau efni, því það er ekki hægt að
gera þeim skil í örfáum línum. Læt ég fyrirsagnir aðeins
fylgja hér með til þess að sýna hversu yfirgripsmikið þingið
var:
1. Virkninger av legemikler pá barnet prenatalt og natalt.
2. Om behovet for genetisk vejledning og prenatal diagno-
stikk efter födsel av barn með arvelig sykdom eller
misdannelse.
3. Forberedelse til foreldreskap og jordmorens andel.
4. Paneldebatt om jordmorens kompetanseomráde.
5. Blödningar í öjenbunnen hos nyfödte.
6. Den gravide misbruker og hennes barn.
7. Smábarn og ulykker.
Er þetta gott til umhugsunar fyrir okkur, og allur sá
undirbúningur, sem þarf fyrir slíkt mót.
Fyrsti dagur mótsins var óneitanlega langur. Flestar
munu hafa farið á fætur um kl. sjö eða fyrr (til þess að klæða
sig í skartið). Síðan var dagurinn ásetinn, því að um kvöldið
var aðalveisla þingsins. Var hún haldin i Rokokkosal Grand
Hotel, sem þykir einhver fínasti staður í Oslóborg til
veisluhalda. Þarna var mikil veislustemmning ríkjandi.
Ljósmæður lausar við amstur og erfiði hversdagsins en
ákveðnar í að gleðjast og blanda geði hver við aðra, án
nokkurra landamerkja. Veitingar voru bæði góðar og miklar
og rikti gleði í sölum. Ræður voru fluttar, sungið og spjallað.
Yfir kaffinu og koníakinu eftir matinn komu söngvarar góðir
og skemmtu okkur. Geta má þess, að annar söngvarinn,
Reidun Sörensen, var dóttir einnar ljósmóðurinnar, sem
þingið sat. Mátti hún vera stolt af dóttur sinni og hefur
örugglega verið það.