Ljósmæðrablaðið - 15.11.2004, Page 5
Kaup og kjör
og Ijósmæður nútímans
Það hefur vafalaust ekki farið framhjá
neinum að framundan eru kjaraviðræð-
ur ljósmæðra við ijármálaráðherra og
er vinna við undirbúning kröfúgerðar á
lokasprettinum.
Ljósmæðrafélagið leggur áherslu á
það að samninganefnd rikisins fyrir
hönd íjánnálaráðherra viðurkenni að
nám ljósmæðra skuli metið til launa.
Það er einnig ein af okkar megin-
kröfúm að vinnuvika verði stytt og
teljum við í kjaranefnd og stjórn LMFf
að ef hægt verði að fá fram styttingu
vinnuvikunnar verði um að ræða mikla
kjarabót. Það hefur lengi verið rætt um
það að vaktavinnufólk ætti að skila
færri vinnustundum á viku heldur en
þeir sem vinna reglubundna dagvinnu.
Það fer enginn í grafgötur með það að
vaktavinna er slítandi og einnig hafa
rannsóknir hafa sýnt að hún er
beinlínis óholl. Við leggjum mikla
áherslu á að þörfin fyrir að létta
vinnuálagi af vaktavinnuhópnum verði
viðurkennd.
Mikil vinna liggur í því að undirbúa
kröfúgerð og ekki síður að vinna að
samningsgerðinni sjálfri. Sá tími sem
nú fer í hönd er að mörgu leyti óhentug-
Ur til samninga en það má líka spyrja
sig hvort einhver tími henti betur en
annar.
Kjaranefnd er með uppbrettar errnar,
tilbúin í slaginn um kaup og kjör
Ijósmæðra.
Undanfarið ár hefur verið viðburðar-
'íkt hjá okkur í Ljósmæðrafélagi ís-
Unds. 85 ára afmæli félagsins var hald-
■ð hátíðlegt í framhaldi af aðalfúndi fé-
Ugsins 21. apríl s.l. á Grand Hóteli og
var gerð skil á í síðasta blaði í máli og
niyndum.
Þing norrænna ljósmæðra var haldið
á Nordica Hóteli dagana 20.-22. maí,
þar sem komu saman á fimmta hundrað
Ólafía M. Guðmundsdóttir,
formaður LMFI
ljósmæðra til að kynna sér nýjustu
verkefni ljósmæðra á norðurlöndum.
Ennfremur voru aðalfyrirlesarar bæði
íslenskir og erlendir.
Mikil ánægja var með þetta þing og
hafa ljósmæðrafélaginu borist þakkir
fyrir það bæði bréflega og símleiðis.
Eins og ljósmæður sem komu á þingið
sáu, voru ljósmæður sem unnið hafa að
listsköpun með verk sín til sölu - þar var
um að ræða glermuni Svanborgar Egils-
dóttur og leirmuni Helgu Birgisdóttur.
Helga tók að sér hönnun merkis ráð-
stefnunnar og voru munir þeir sem hún
var með til sölu einkum með því merki.
Ég vil nota tækifærið og þakka ráð-
stefnunefndinni og fýrirtækinu íslands-
fundum frábær störf og óska íslenskum
ljósmæðrum til hamingju með glæsi-
lega ráðstefnu.
Fæst í apótekum
Ljósmæðrablaðið nóverrtber 2004 5