Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Page 13

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Page 13
VERKEFNI FRÁ NÁMI í LJÓSMÓÐURFRÆÐI Fæðingarsaga úr saumaklúbbi Formáli Það er orðinn fastur liður að í Ljós- mceðrablaöinu birtist verkefni Ijós- niœðranema sem ritstjórn fmnst eiga erindi til Ijósmœðra m.a. til að örva faglega oggagnrýna umrœðu. Af mörgu er að taka en í þetta sinn er sögð fœð- ‘ngarsaga sem hefur áhrif á umhverfi sitt með ýmsu móti. I inngangsnámskeiði Ijósmóður- fi'œðinnar felst eitt af verkefnunum í að safna fœðingasögum úr nánasta um- hverfi i óformlegu samtali og endur- segja síðan í umrœðutíma, ræða hvaða viðhorf og hugmyndir um barneignir endurspeglast í sögunum. Verkefnið hyggir aldrei þessu vant ekki á frœði- iegri heimildavinnu heldur er áhersla l°gð á aó hlusta á og draga lœrdóm af fi'ásögninni. Og hafa jafnframt í huga hvaða áhrif sagan hefur, hvernig túlka niegi hana í samhengi við hugmynda- fi'œði Ijósmœðra og hvaða áhrif hún hafi á verðandi Ijósmœður. Síðastliðið vor birtist í Morgunblað- 'nu athyglisverð grein eftir nýútskrif- nða Ijósmóður Esther Ósk Armanns- dóttur þar sem hún velti jyrir sér hvort hetra vœri að fœóa börn í Danmörku en a Islandi. Hugleiðingar hennar byggðu a reynslu hennar af klínísku námi á Skejby sjúkrahúsinu í Árósum, þar sem nðstœður á fœðingadeild eru mun betri en við þekkjum hér á fœðingadeild hSH, en aðstœður þar eru barn síns tiina frá því fyrir 30 árum og eru í raun °viðunandi. Það er því áhyggjuefni að ekki er gert ráð jyrir nýrri byggingu fyi'ir fœðingaaðstöðu þegar nýtt há- shólasjúkrahús verður byggt. Nauðsyn- íegt er að bœta aðbúnað verðandi nxceðra og feðra, ennfremur er afar ’nikilvœgt að ná því markmiði að hver hona hafi sína Ijósmóður í fœðingunni. Samantekt Auðbjargar I. árs Ijós- 'noðurnema og fœðingarsaga þeirra Onnu og Stjána sem hér er sögð styður fietta og segir sig sjálf. Ólöf Ásta Ólafsdóttii; lektor í Ijósmóðurfrœði Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir; I. árs Ijósmóðurnemi í þessu verkefni segi ég fæðingarsögu vinkonu minnar. Ég kalla hana Önnu og er hún þrítug. Maki Önnu er einnig um þrítugt og kalla ég hann Stjána. Ég heyrði þessa fæðingarsögu fyrst þegar ég var stödd í saumaklúbbi og fangaði hún athygli mína þar sem að ég er ljós- móðurnemi og vakti spurningar hjá mér hvernig ég hefði tekist á við aðstæður sem þessar. í lokin er stutt samantekt um það sem læra má af þessari sögu og skilaboðin sem í henni felast. Það er ýmislegt í umhverfinu sem við getum haft áhrif á, sem aftur hefur áhrif á upplifun foreldra af fæðingunni. Margir hlutir eru ef til vill svo sjálfsagðir að við gerum okkur oft ekki grein fyrir mikilvægi þeirra. Fæðingin fór fram sumarið 2005 á fæðingadeild LSH. Anna var gengin 38 vikur og 2 daga og hafði verið í reglu- bundnu meðgöngueftirliti á heilsu- gæslustöð. Engin vandkvæði komu upp á meðgöngunni. Móðir og faðir eru í sambúð og eiga fyrir eina 3ja ára dóttur. Fyrri meðganga og fæðing gekk að óskum og heilsaðist móður og barni vel. Einn góðan veðurdag þegar litla fjöl- skyldan var að labba heim frá leik- skólanum fékk Anna hláturskast upp úr þurru. Stuttu síðar fór vatnið, Anna hló enn meira og lagðist i grasið. Stjáni náði í bílinn, því vatnið hélt áfrarn að seytla, ekki gat hún labbað heirn þar sem að hún var í ljósum buxum! Auk þess skildi dóttir hennar ekkert í því að mamma hennar væri að pissa í sig. Anna var verkjalaus og segir að vatnið hafi verið tært. Þegar heim var komið flýtti hún sér að pakka niður dóti fyrir dóttur sína og sendi manninn sinn út í búð að kaupa nesti. Klukkutíma síðar eða nánar tiltekið um sexleytið gefur Anna sér tíma til að setjast niður. Eftir skamma stund fer hún að fá væga verki. Hún ákveður að láta vita af sér og hringir á fæðinga- gang. Ljósmóðirin og hún eru sammála um að hún bíði bara róleg heima og komi seinna um kvöldið. Hálftíma síðar verða hríðamar skyndilega harðari og Önnu finnst vera stutt á milli þeirra og óttast að fæðingin geti verið hröð. Anna hringir því aftur á fæðingagang og er ákveðið að hún komi. Um sjö leytið er Anna komin á fæðingagang og það er brjálað að gera, „Ljósmœðurnar voru þarna á harða- hlaupum fram og aftur... ég heyrði þœr segja við eina konuna ...farðu bara út í bíltúr og fáðu þér ís... sennilega verið frumbyrja!" Þeim er vísað í mónitor herbergi frammi. Anna var komin með fimm í útvíkkun. Þar voru þau í um tvær klukkustundir en af og til kíkti einhver inn til þeirra og sagði þeim að það væri brjálað að gera og hún væri m.a. að taka á móti tvíburum. Eftir tvo tíma eru þau beðin urn að fara ffarn og bíða þar því að önnur kona þurfi að komast í monitor. Þeim er vísað inn í pabbaherbergið. Anna átti erfitt með að labba úr stofunni vegna verkja. Þegar hún kíkti í pabbaherbergið voru nokkrir pabbar þar og eitthvað par sem var „ógeðslegt“ eins og hún orðaði það. Anna gat ekki hugsað sér að vera þarna með öllum hinum og settist framan við lyftuna ásamt manninum sínunt. Hún átti fullt i fangi með að „tcekla verkina og halda andlitinu. Við hittum fullt af fólki sem við þekktum... ég var ekki alveg í stuði fyrir það... allir voða hressir. Hœ! Hvenœr eigið þið að eiga?- og svona... ég sagði alltaf það verður annaðhvort fyrir eða eftir mið- nætti og reyndi að vera „ jolly “. Ég var Ljósmæðrablaðið nóvember 2005 1 3

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.