Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Side 36
• •
HUGLEIÐINGAR LJÓSMÓÐUR
Oryggi
Loksins, loksins kom þessi fina og stóra
rannsókn sem ég hef beðið eftir í mörg
ár. Niðurstöður hennar komu mér ekki
á óvart, en gott er að geta vitnað i rann-
sókn þessa þegar fordómafullir og
þekkingarlitlir fagmenn eða leikmenn
ráðast að ljósmæðrum sem aðstoða
börn við að konia í heiminn heima hjá
sér. Fyrir það eitt að taka á móti börn-
um í heimahúsum að ósk foreldra!!!
Enn verra er þó þegar ráðist er að for-
eldrum sem telja það best að börnin
þeirra að fæðist heima hjá sér.
Rannskóknin sem ég er að tala um,
var birt í sumar í hinu virta læknatíma-
riti British Medical Journal á þessu ári.
Rannsóknina gerðu Kenneth C.
Johnson, faraldsfræðingur og Betty-
Ann Daviss, Ijósmóðir og verkefnis-
stjóri. Hún fór fram í Norður -Ameríku
og Kanada árið 2000 og tilgangurinn
var að meta öryggi í heimafæðingum. í
úrtaki voru 5.418 konur sem höfðu
ákveðið að fæða heima með aðstoð
löggildrar Ijósmóður og samanburðar-
hópur var sambærilegur hópur kvenna,
fleiri en þriggja milljóna sem ákváðu
sjúkrahúsfæðingu. Allt voru þetta svo-
kallaðar „low risk“ konur sem fæddu
barn í höfustöðu við meira en 37 vikna
meðgöngu.
Rannsóknin sýndi að börnin komu
jafn vel út í báðum hópum og burðar-
málsdauði var svipaður. Nú geta barna-
læknar andað léttar. Staðreyndin er sú að
börn sem fæðast í heimahúsum eru
nrjög spræk og í góðu ástandi við fæð-
ingu, enda lyijalaus og fæðast inn í
umhverfi sem er barnvænt. Líklega eru
þau einu börnin á íslandi sem fæðast
inn í slíkt umhverfi, því ekki hefur eitt
einasta sjúkrahús í landinu uppfyllt
þann staðal að geta kallað sig „Barn-
vænt sjúkrahús" samkvæmt ábending-
unr frá Alþjóða heilbrigðismálastofnun-
inni, eins og nánast öll sjúkrahús sem við
berum okkur saman við í nágrannalönd-
unum hafa fengið og það meira að segja
fyrir mörgum árum.Vantar eitthvað upp
á hinn faglega metnað?
Minni streita er í kringum heima-
fæðingar og konur sem velja þann kost
eru oftast mjög vel lesnar um fæðingar
og gera sér grein fyrir kostum og göll-
36 Ljósm
í heimafæðingum
Áslaug Hauksdóttir;
Ijósmóðir
um bæði heimafæðinga og sjúkrahúss-
fæðinga og velja af nrikilli kostgæfni
það sem þær telja að passi þeim sjálfum
best, Ijölskyldum þeirra og litla barninu
sem boðar komu sína.
Það er dásamlegt að vita til þess að í
heimafæðingum sé verið að stuðla að
áfallaminni fæðingu og ánægjulegri
upplifun foreldra. Rannsóknin sýndi
mjög afgerandi hve miklu betur kon-
urnar koma út úr heimafæðingum en í
sjúkrahússfæðingum með tilliti til inn-
gripa. Keisaratíðni í heimafæðingahópn-
um var 3,7% á móti 19% í samanburðar-
hópnum, spangarklippingar 2,1% á nróti
33%, sogklukkufæðingar voru 0,6% á
móti 5,2%, tangarfæðingar voru 1% á
móti 2,2, gangsetningar voru 9.6% en
21 % í samanburðarhóp. Mænurótardeyf-
ingu fengu 4.7% kvenna í fyrirhugaðri
heimafæðingu á móti 63% allra þeirra
(líka áhættufæðingar) sem fæddu á
sjúkrahúsi og svo mætti lengi telja.
Ekkert kom betur út í samanburðar-
hópnum. Hlutfall þeirra kvenna sem
þurfti að flytja á sjúkrahús úr heima-
fæðingu var 12.1%.
Áberandi er hversu ánægðir heima-
fæðingaforeldrar eru með fæðingar
sínar. Það er talið að það hafi áhrif á
konuna allt hennar líf að vera ánægð
með fæðinguna sína og að hafa fundið
að það var hún sjálf sem stjórnaði fæð-
ingunni. Sú kona hefúr meira sjálfs-
traust og hlýtur það að stuðla að því að
líf hennar verður betra. Konur sem
fæða heima eru ekki þær sem hafa þurft
að leita sér hjálpar hjá „Ljáðu mér
eyra“. Ljósmóðir ætti alltaf að hafa í
huga þegar hún annast konu í þessu
ferli að það er óttalaus, glöð og afslöpp-
uð kona sem gerir fæðinguna eðlilega
en ekki tækni og tæki. Tæknin er góð
þar sem hennar er þörf en hún getur líka
skaðað hið eðlilega ferli sé hún of-
notuð.
Eiga ljósmæður ekki að fara að gera
alvöru úr því hér á Reykjavíkursvæðinu
að koma eðlilegum fæðingum út úr
hátækninni og sporna við þeirri þróun
sem hefur verið undanfarin ár, þ.e.a.s.
aukin tíðni inngripa sem síðan leiðir til
annarra vandamála? Ljósmóðir má aldrei
gleyma því að eðlileg fæðing er ekki
sjúkdómur. Nú þegar ég hef starfað
sjálfstætt í heimahúsum síðastliðin átta
ár hugsa ég mikið um hvort það sé
æskilegt að fæðingar fari fram að mestu
leyti á hátæknisjúkrahúsum hér á Is-
landi. Eg hef komist að þeirri niður-
stöðu að slíkt sé alls ekki æskilegt og
styður svona rannsókn þá niðurstöðu
ásamt öðrum minni rannsóknum sem
gerðar hafa verið.
Eiga ljósmæður ekki að skilgreina
sig sem stétt sem stendur vörð um
heilbrigði skjólstæðinga sinna? Getur
stéttin til dæmis horft upp á það þegj-
andi að um leið og vatnsfæðingar eru
bannaðar á Akranesi, þar senr vatns-
fæðingar hafa farið fram slysalaust í
mörg ár, þá geysist upp keisaratíðnin-
Getur þar verið orsök? Verður ekki að
skoða þetta og stemma stigu við svona
þróun? Láta verkin tala?
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin 1
Genf mælir hvorki á móti heimafæð-
ingum né vatnsfæðingum. Vatnsfæð-
ingar fara fram alls staðar í heiminum
og stuðla þær einmitt að því að fæð-
ingin verður eðlilegri og börn og mæður
koma vel út úr þeim fæðingum, sé rétt
að þeim staðið eins og reyndar á við
með allar fæðingar.
Eru ljósmæður fordómafullar eða
kjarklausar? Fagleg heilindi geta ekki
byggt á fordómum, þau verða ætíð að
byggjast á þeirri þekkingu sem til er. Et
það ekki skylda Ijósmæðra að kynna ser
allar aðferðir sem geta stuðlað að
eðlilegri fæðingu og sjá til þess að þau
úrræði séu til staðar?
iæðrablaðið nóvcmbcr 2005