Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 17
hvatt hana til áframhaldandi skrifa um
skyld efoi. Hún sagðist ekki ætla að
gefa sig út fyrir að skrifa eingöngu um
ákveðna tegund málefna en hvatti
heilbrigðisstarfsfólk til að skrifa sjálft
greinar um þessi efoi. Henni fannst í
raun skrýtið hve tregt heilbrigðisstarfs-
fólk virðist vera til að skrifa greinar í
eigin nafni um jafnmikilvæga og oft á
tíðum umdeilda hluti eða aðgerðir. Á
það ekki síst við um ljósmæður. Hún
velti því fyrir sér hvort þar væri um að
kenna ótta við að þurfa að svara fyrir
greinar sínar á opinberum vettvangi.
„Heilbrigðiskerfið er ekki hafið yfir
gagnrýni. Almenningur hlýtur að mega
ijalla um eins algengar aðgerðir og epi-
duraldeyfingu á opinberum vettvangi ef
það er gert á ábyrgan hátt, eins og ég
taldi mig vera að gera, án þess að fá á
sig ómálefnanlega gagnrýni þar sem
farið er út á þá braut að draga úr
trúverðugleika fólks og gera lítið úr
viðkomandi“ sagði Helga Dís að lok-
um.
Ritnefnd þakkar henni fyrir góðar
móttökur og fyrir að vekja athygli á
þessum málum. Glöggt er gests augað,
stendur skrifað og eflaust er það svo að
heilbrigðisstarfsfólk sér hluti sem því
standa nærri oft í öðru ljósi en þeir sem
koma að málum úr annari átt. Skrif
Helgu Dísar ættu að verða hvati fyrir
ljósmæður til að tjá sig, taka afstöðu og
ræða fagleg mál á opinberum vettvangi.
Aðgengilegu fræðsluefoi um epi-
duraldeyfingar er ábótavant og vonandi
verður þessi umræða til þess að bætt
verði úr því.
Viðtalið tók Bergrún Svava
Jónsdóttir, Ijósmóðir
Eirberg
www.eirbergjs
"j- Ljósmæður kvaddar
Jóhanna Margrét Þorsteinsdóttir, fædd á Syðri Brekkum á Langanesi í Norður Þingeyjasýslu 7.
september 1912. Útskrifaðist frá LMSÍ 30. september 1939. Lést 4. október 2005.
Valgerður Guðmundsdóttir, fædd í Reykjavík 24. ágúst 1924. Útskrifaðist frá LMSÍ 30. september
1946. Lést 23. september 2005.
Guðrún Jóna Dagbjartsdóttir, fædd að Hvestu í Ketildölum í Arnarfirði 8. júlí 1921. Útskrifaðist
frá LMSÍ 30. september 1943. Lést 23. ágúst 2005.
María Karólína Magnúsdóttir, fædd að Njálsstöðum í Vindhælishreppi 22. nóvember 1909.
Útskrifaðist frá LMSÍ 30. júní 1930. Lést 10. febrúar 2005.
Jónína Þórunn Jónsdóttir, fædd að Sleif í Vestur-Landeyjum í Rangárvallasýslu 18. febrúar 1913.
Útskrifaðist frá LMSÍ 30. september 1941. Lést 29. janúar 2005.
Ragnheiður Magndís Guðrún Finnbogadóttir, fædd á Þiðriksvöllum í Strandasýslu 7. september
1915. Útskrifaðist frá LMSÍ 30. september 1936. Lést 19. desember 2004.
Blessuð sé minning þeirra
Ljósmæðrablaðið nóvember 2005 17