Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 21

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 21
uni kosti og ókosti deyfingarinnar, fylgi- kvilla og útkomu. Greinarhöfúndur vill einnig taka fram að mikilvægt er að fræða verðandi foreldra um áhrif mænu- rótardeyfingar á bamið og láta þá vita uð rannsóknir vanti um frekari áhrif. Olíkar skoðanir virðast vera meðal ijósmæðra og lækna sem sinna barns- hafandi konum, hvort ráðleggja eigi konum með tvíbura að fá mænurótar- deyfingu í fæðingu. Læknar virðast ffekar vera þeirrar skoðunar að hvetja konur með tvíbura til að fá deyfinguna m.a. vegna hættu á inngripum á borð við sogklukkur og keisaraskurði en ljós- niæður virðast hafa ríkari tilhneigingu hl að meta hvort konan þurfi deyfing- una (Hofmeyr og Drakeley, 1998; Evans, 1997). Samkvæmt Mann og Albers (1997), Virðist mismunandi eftir heilbrigðis- starfsmönnum hvaða og hversu miklar uPplýsingar þeir gefa. Svæfingalæknar virðast gera minna úr aukaverkunum deyfingarinnar á meðan ljósmæður §era mikið úr þeim. Sú spuming vaknar kvort ekki þurfi að auka þátt svæfinga- Iskna i fræðslu um mænurótardeyfingu a rneðgöngu, þar sem þeir leggja deyf- *nguna og þekkja hana best, bæði fræði- lega og „klínískt“. Almenningur á rétt á aó fá hlutlausar upplýsingar frá heil- Erigðisstarfsfólki. Ljósmæður sem sinna tueðgönguvemd veita konum sem það k'8gja, fræðslu um deyfinguna. En konan þarf að vera tilbúin að taka við hpplýsingununt og vinna úr þeim. Stundum vill það brenna við að konan hefúr ekki aflað sér nægrar vitneskju á meðgöngu hvort sem er í mæðravernd, á netinu í bókum eða bæklingum. Ákvörðun hennar um deyfinguna getur þá ákvarðast af samfélagsumræðu, sem oft virkar mjög sterk en er varhugaverð þar sem hún getur byggst á persónu- legri upplifun í stað fræðilegra stað- reynda. Ákveði hún að fá deyfinguna þegar í fæðinguna er komið þá veltur það á ljósmóður og svæfingalækni sem konan hittir hversu miklar upplýsingar hún fær. Oftast er þá einungis tími fyrir aðalatriðin og fræðslan verður því yfir- borðskennd en ætti þó að fara fram ef konan á að fá deyfinguna. Konur eiga rétt á að þekkja möguleg áhrif þess sem gert er i fæðingunni. Lokaorð í greininni hefúr verið fjallað um notkun mænurótardeyfingar í fæðingu. Upphaflega var deyfingin ætluð konum með áhættuþætti en vegna góðrar reynslu þessara kvenna hefúr sívaxandi hópur kvenna óskað eftir henni í fæð- ingu. Notkun hennar hefurþví aukist án þess að nægar rannsóknir séu til staðar um áhrif deyfingarinnar. Greinarhöf- undur telur að deyfingin sé of mikið notuð hjá konum í eðlilegu barneignar- ferli miðað við hversu áhrif hennar eru lítið rannsökuð. Þar sem ljósmæður eru í mikilli nálægð við konur og börn þeirra í bameignarferlinu, er þetta svið þar sem þær gætu látið til sín taka. Rannsóknir vantar t.d. um hvort mæður hafi verið ánægðar með deyfinguna, hvort sömu konur velji að fá hana aftur, ástæður að baki ákvörðunar þeirra, vitneskju kvenna um deyfinguna og hvernig andleg líðan þeirra er eftir notkun deyfingarinnar. Sömuleiðis þyrfti að rannsaka bæði skammtíma- og langtímaáhrif deyfingarinnar á líkam- lega og andlega þætti. Hér á landi virðast engar rannsóknir hafa verið gerðar um áhrif mænurótardeyfingar í fæðingu og því óþijótandi efni sem hægt væri að taka fyrir. Höfundur styður þá skoðun fræði- manna að fræðsla um mænurótardeyf- ingu eigi að fara fram í mæðravernd þar sem konur hafa tíma og eru í ástandi til að meta allar tiltækar upplýsingar áður en þær (og mögulega stuðningsaðili þeirra) taka ákvörðun. Taki konan ákvörðun um að fæða án lyfja þarf ljósmóðirin að vera tilbúin að aðstoða hana við það og draga úr þáttum sem aukið geta verki konunnar. Þrátt íyrir stöðuga innreið hátækni eru ljósmæður oftast að aðstoða heilbrigðar konur sem eru að ganga í gegnum eðlilegt ferli. Þvi er það mikilvægt verkefni að ljós- mæður styðji og efli sjálfsöryggi kvenna í fæðingu. Líkt og ffam kemur í greininni þá telja vísindamenn að fæst inngrip verði í tengslum við deyfinguna á öðru stigi, ef bætt er á deyfinguna eftir að útvíkk- un líkur og beðið eftir að konan fái ósjálffáðan rembing. Þetta ættu ljós- mæður og læknar að hafa hugfast svo draga megi úr áhættu sem deyfingunni fylgir. Ljóst er að notkun mænurótar- deyfinga hefur aukist síðastliðin ár hér á landi. Margir velta fyrir sér hvað sé til ráða. Greinarhöfundur telur mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk haldi áfram að afla sér nægrar vitneskju um deyfing- una og deili henni á skýran og hlut- lausan hátt til barnshafandi kvenna og stuðningsaðila þeirra þannig að fúll- nægjandi upplýsingar fáist, sem aftur getur skilað sér í minnkandi notkun á deyfingunni í eðlilegum fæðingum Höfundur telur einnig að það sé hlut- verk ljósmæðra og svæfinga- og fæðingalækna að fræða almenning um mænurótardeyfingu til að efla viðhorf sem gæti dregið úr notkun hennar. Heilbrigðisstarfsfólk vill veita sem besta heilbrigðisþjónustu. Felst það ekki m.a. i því að börn komi ekki undir áhrifum lyfja í heiminn? Heimildaskrá Ástríður Jóhannesdóttir (2000, febrúar). Deyf- ingar og verkjalyf í fœðingu. Fyrirlestur fluttur í námi í Ljósmóðurfræði, HÍ, Reykja- vík. Balaskas, J. (1991). New Active Birth; A Concise Guide to Natural Childbirth, London: Thorsons. Bevis, R. (1999). Obstetric anaesthesia and operations. í V.R. Bennett og L.K. Brown, (Ritstj.), Myles Textbookfor Midwives (539- 564). London: Churchill Livingstone. Dozer, J.og Baruth, S. (1999). Epidural epidemic. Drugs in labor: Are they really necessary... and even safe? (veraldarvef- urinn). www.mothering.com. Eltzchig, H.K., Lieberman, E.S., Camann, W.R. (2003). Regional anesthesia and analgesia for labor and delivery. The New England Journal of Medicine, 348(4),319- 333. Enkin, M., Keirse, M.J.N.C., Renfrew, M. og Neilson, J. (1995). A Guide to Effective Care in Pregnancy & Childbirth. Oxford: Oxford University Press. Evans, J. (1997). Can a twinbirth be a positive experience? Midwifery Matters, 74, 6-11. Finster, M. og Santos, A.C. (1998). The effects of epidural analgesia on the course and Llösmæðrablaðið nóvember 2005 21

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.