Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Side 22

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Side 22
outcome of labour. Baillére's Clinical obstetrics and gynaecology, 12(3),473-481. Gilbert, E.S. og Harmon, J.S. (1993). High Risk Pregnancy & Delivery. St. Louis: Mosby. Goer,H., (1999.) The Thinking woman 's guide to better birth. Perigee Pregnancy childcare. Hofmeyr, G.J. og Drakeley, A.J. (1998). Delivery of twins. Baillére's Clinical Obstetric and gynecology, 12(1), 91-108. Howell, C.J. (2000). Epidural versus non- epidural analgesia for pain relief in labour. The Cochrane Library, issue 4# King, T. (1997). Epidural anesthesia in labor- benefits versus risk. Journal of Nurse- Midwifery, 42(5), 377-388. Lieberman, E., Davidson, K., Lee-Parritz, A., Shearer.E. (2005). Changes in fetal position during labor and their association with epidural analgesia. The American Collegeof Obstetricians and Gynecologists, 105(5), 974-982. Loo, C.C., Dahlgren, G.og Irestedt, L. (2000). Neurological complications in obstetric regional anaesthesia. International Journal of Obstetric Anesthesia, 9, 99-124. Mann, O.H. og Albers, L.L. (1997). Informed consent for epidural analgesia in labor. Journal ofNurse-Midwifery, 42(5), 389-392. Minato, J.F. (2001). Is it time to push? Examining rest in second-stage labor. AWHONN Lifelines - Promoting the health of women and newborns, 4(6), 20-23. O'Sullivan, G. (1997). Epidural analgesia in labour: Recent developments. British Journal of Midwifeiy, 5(9), 555-556. Page, L.A. (2000). Keeping birth normal. í L.A. Page (Ritstj.), The New Midwifery: Science and sensitivity in practice (bls. 109- 112). London:Churchill Livingstone. Ponkey, S.E., Cohen, A.P., Heflher,L.J., Lieber- man,E. (2003). Persistent fetal occiput posterior position:obstetric outcomes. The American College of Obstetricians and Gynecologists, 101(5), 915-920. Roberts, CL., Torvaldsen, S., Cameron, CA., 01ive,E. (2005). Delayed versus early pushing in women with epidural analgesia: a systematic review and meta-analysis. MIDIRS, 15(2),212-217. Robertson, A. (1997). The Midwife Com- panion: The Art and Support During Birth. Camperdown: ACE graphics. Sudlow, C. (2000). Epidural blood patching for preventing and treating post-dural puncture headache. The Cochrane Library, issue 4. Telfer, F.M. (1997). Relief of Pain in Labour. í Sweet, R.S., Tiran, D. (Ritstj.), Mayes' Midwifery (bls.418-434). London: Baillére Tindall. Townley, S.A. (2000). Decubitus ulcers after instituting epidural analgesia for pain relief in labour. Anaesthesia, 55(2), 709-710. Thorp, J.A. og Breedlove, G. (1996). Epidural analgesia in labor:An evaluation of risks and benefits. BIRTH, 23(2), 63-83. Wagner, M. (2000, maí). Childbirth in Iceland in the New Millennium: Who and where. Fyrirlestur fluttur i Námi í Ljósmóðurfræði, Háskóla Islands, Reykjavík. Hringborðsumræður um eðlilega fæðingu Vel var mætt til fyrstu hringborðsumræðna Ijósmæðra í vetur og var hugur í þeim en Valgerður L. Sigurðardóttir stjórnaði þar um- ræðum um eðlilega fæðingu. Ljósmæður veltu því fyrir sér hvað væri eðlileg fæðing og komust að þeirri niðurstöðu að eðlileg fæðing væri þegar kona fæðir án nokkurra inngripa s.s. deyfinga eða örvunar með syntocinon og belgjarofi. Talað var um að eðli- legar fæðingar eigi mjög undir högg að sækja og séu í raun fáar. En hverjar eru þá væntingar og viðhorf kvenna til fæðinga og hvar mótast þær? Ljósmæður voru sammála um að umhverfið mótaði konurnar; mæður, vinkonur, netið, umræðan í samfélag- inu o.fl. Eitt af vandamálunum varðandi inngrip í fæðingu er þegar konur koma of fljótt inn á spítalana og verður þá krafa spitalans um afköst til þess að gripið verður inn í eðlilegt fæð- ingaferli. Mjög erfitt getur reynst að fá konurnar til að fara heim aftur þó að þær hafi í raun ekkert að gera á fæðingadeildinni og væru mikið betur komnar heima í rólegheitum. Hvað hefur farið úrskeiðis; hvers vegna eru konur svo óöruggar; er eitthvað að fræðslunni á meðgöngunni? Gefa ljósmæður þau skilaboð að meðganga og fæðing sé eitthvað til að hræðast og valda þannig bjargarleysi kvenna og gera þær algjörlega háðar þeim? Alla meðgönguna hefúr verið reynt að finna eitthvað að konunni: Meðgangan og fæðingin hafa verið sjúkdómsgerð og sjúkdómar eru ekkert fyrir hinn almenna borgara að fást við. Vísindi eða náttúra - það eru gömul sannindi að þar fer náttúran halloka. í bókinni Normal Childbirth fjallar Soo Downe um nýjar leiðir ljósmæðra til að tala við konur um verki í fæðingu og bendir þar á að þær leggi áherslu á innri bjargráð en fari ekki beint í að telja upp verkjameðferðir. Töldu Ijósmæður slíkar áherslur í heiðri hafðar í meðgöngufræðslu á Islandi. Ljósmæður hafa áhyggjur af vaxandi tíðni hátækniverkja- meðferða í landinu s.s. epidural og tölur erlendis frá sýna svo ekki verður urn villst að slíkar áhyggjur eru vissulega á rökum reistar. Ljósmæður vilja kalla hlutina sínum réttu nöfnum og hætta að tala um epidural sem deyfingu því að hér er um aðgerð að ræða og konur sem gangast undir hana þarfnast gjörgæslu við. En hvers vegna er þessu svo farið? Aftur og aftur komu ljós- mæður að því að greitt aðgengi að hátækni væri eðlilegum fæð- ingum fjölur unt fót. Konur koina oft inn með fyrirfram ákveðnar skoðanir á því að fá epiduraldeyfingu, einnig finnst mörgum læknum það sjálfsagður hlutur. Ljósmæðrum finnst vanta ffæðslu um aukaverkanir epiduraldeyfinga og álíta að þær þurfi að vera duglegri i framtíðinni að kynna konum þá hlið á málunum. Talað var um „panódílkynslóð" sem væri svo vön að taka inn lyf að það væri henni eðlilegt, auk þess sem hún væri ekki tilbúin í tveggja sólarhringa fæðingarferli eins og formæður þeirra gátu upplifað. I þessu sambandi var talið nauðsynlegt að leggja áherslu á orða- lagið - að ekki væri um verki að ræða heldur hríðir. Uti á landi þar sem hátækni í verkjameðferð er ekki í boði er andrúmsloft við fæðingar oftast mun afslappaðara en þar sem hún er til staðar. Hátækni á ekki að vera sjálfsögð án skýringa á tilgangi, t.d. eru mónitorar truflandi þáttur í fæðingu og sýnt hefur verið fram á að ekki sé nauðsynlegt að taka komurit af konum í eðlilegri með- göngu. Ljósmæður voru sammála um að þær ættu að standa saman að því að láta ekki óþarfa hátækni yfir sig og skjólstæð- inga sína ganga. Verklagsreglur og leiðbeiningar fengu nokkra umræðu og veltu ljósmæður fyrir sér hvernig klínískar leiðbein- ingar um eðlilega fæðingu litu út, hvort þær yrðu eins og verk- lagsreglur urn eðlilega fæðingu og hvort að yfirleitt væri hægt að gera slíkar leiðbeiningar þar sem því fylgdi ósjálfrátt alltaf ein- hver stjórnun. Nauðsynlegt er að í boði séu aðrir valkostir fýrir konur í fæð- ingu: Fæðingaheimili og heimafæðingar voru nefnd i þessu samhengi. Ljósmæður eru á þvi að stofna þurfi teymi ljósmæðra sem gætu hugsað sér að starfa við heimafæðingar, sem aftur gæti orðið til stofnunar fæðingaheimilis og létu nokkrar Ijósmæður i ljós áhuga á að starfa í slíku teymi. Ljósmæðrafélagið hefur fest kaup á Ijósmóðurtöskum til að auðvelda ljósmæðrum að stunda heimafæðingar. Lagt var til að stofna nefnd ljósmæðra sem leit- aði leiða til að stuðla að eðlilegum fæðingum. Einnig voru ljós- mæður sammála um að þær þyrftu að vera sýnilegri í allri um- ræðu um fæðingar og þá ekki síst um eðlilegar fæðingar. Rauði þráðurinn í gegnum allar umræður á fundinum var nær- vera og yfirseta. Sýnt hefúr verið ffam á að yfirseta Ijósmóður hefur gífurleg áhrif á fæðingartíma og verkjameðferðir. Einnig veltu ljósmæður því fyrir sér hvort fara verði út fyrir hátækni- spítala til að eiga meiri möguleika á eðlilegri fæðingu. Afrakstur gagnvirks ferlis sjálfstæðra og öruggra kvenna og Ijósmæðra ef góð fæðing, hér er upplýsing og eftirfylgd lykilatriði. Undirritaðri hlotnaðist sá heiður að fá að vera fluga á vegg \ hringborðsumræðum ljósmæðra uin eðlilega fæðingu, en ég er i mastersnámi í mannfræði og lokaverkefnið mitt fjallar urn fæðingat- Elva Björg EinarsdótW' 22 Ljósmæðrablaðið nóvember 2005

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.