Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 28

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2005, Qupperneq 28
RÁÐSTEFNUR, NÁMSKEIÐ OG FUNDIR Alþjóðaráðstefna Ijósmæðra í Brisbane Síðast liðið sumar var 27. Alþjóðaráð- stefna ljósmæðra haldin í Brisbane í Ástralíu dagana 24.-28. júli. Heiti ráð- stefnunnar var Midwifery: Pathways to Healthy Nations og þarna komu sanran tæplega 2000 ljósmæður víða að úr heiminum. Eins og alltaf þegar hópur ljósmæðra hittist var rnikil stemning, ekki síst á opnunarhátíðinni þegar aðildarfélög ICM (International Con- fideration of Midwives) frá um það bil 70 löndum og fúlltrúar þeirra voru kynntir, margir í skrautlegum þjóðbún- ingum veifandi fána. íslensku Ijósmœöurnar á opnunarhátíðinni: Sía, Ólöf Ásta, Hafrún og Hulda Þórey. Aðalfúndur alþjóðasamtaka ljós- mæðra var haldinn dagana fyrir ráð- stefnuna og benda má á heimsíðu þeirra www.intemationalmidwives.org til að fá upplýsingar unr lielstu samstarfs- verkefni og samþykktir. Þar er m.a. að finna endurkoðaða skilgreiningu á hlut- verki ljósmæðra sem samþykkt var á fundinum, sjá bls. 31. Samþykkt var yfirlýsing um meðferð á þriðja stigi fæðingar til að koma í veg fyrir blæð- ingu, en margar ljósmæður voru ekki sáttar við klínískar leiðbeiningar sem ICM stóð að ásamt alþjóðasamtökum kvensjúkdómalækna FIGO. Það sást m.a. á því að salurinn troðfylltist þegar Dr. Hora Soltani hélt fyrirlestur um þetta efni. Ákveðið var að við endur- skoðun leiðbeininganna ætti að leggja Horftyfir Brisbane aukna áherslu á lífeðlisfræðilega með- ferð eins og fjallað var um í Ljós- mæðrablaðinu í júní 2005. Ágreiningur hefúr verið um hvernig færni í fæð- ingarhjálp (skilled birth attendants) í þróunarlöndunum er skilgreind og hvaða menntun ætti að leggja áherslu á. Gerð var samþykkt um að til að geta tekið þátt í samstarfi með Alþjóða- heilbrigðisstofnuninni og FIGO ætti að taka tillit til þess að þjálfún í ljós- nróðurfræði er lykilatriði og alltaf ætti að velja fagfólk með þá menntun fyrst en ekki t.d. hjúkrunarfræðinga. Frá Islandi voru mættar um langan veg eða eiginlega eins langt og hægt var að komast, fjórar ljósmæður. Tvær bú- settar og starfandi í útlöndum, nánar tiltekið kom Hulda Þórey Garðarsdóttir frá Hong Kong og ffá Svíþjóð kom Haffún Finnbogadóttir. Sigríður Sía Jónsdóttir og undirrituð Ólöf Ásta Sigríður Sía Jónsdóttir og Caroline Weaver, forseti alþjóðasamtaka Ijósmœðra. Ólafsdóttir komu svo að heinran, nreð viðkomu í Hong Kong. Ég fékk meðal annars að fylgjast með Huldu í heima- þjónustu og hér neðar má sjá fræðslu um brjóstagjöfina i alþjóðlegu sam- hengi! Tveir herramenn voru svo í fylgdar- liði íslensku ljósmæðranna. Hafsjó frjóðleiks var að sjálfsögðu að finna á ráðstefnunni, þar sem ljós- mæður kynntu fjölbreyttar rannsóknir sínar og störf héðan og þaðan og erfitt gat verið að velja á milli fyrirlestra og atriða sem voru á dagskrá. Aðalfyrir- lesarar fjölluðu flestir um mikilvægi samstarfs heilbrigðisstarfsmanna og samtaka til að efla Ijósmæðraþjónustu í þróunarlöndum þar sem aðstæður eru mjög ólíkar og í hinum vestræna heimi- Hulda Þórey veitir frœðslu um brjóstagjöf Þar deyja á ári hverju yfir hálf milljón kvenna við barnsburð og fjórar millj' ónir barna á fyrsta degi eftir fæðingu. Athygli vakti aðalfyrirlestur Inúita ljósmóður frá Quebec sem sagði fra velheppnuðu verkefni, sem hafði það að markmiði að snúa við þeirri þeirn þróun að allar konur frá svæðinu Nunavik þyrftu að ferðast langa leið að heiman allt að 6 klukkustundir til að eiga börn. Stofnuð var ljósmæðraþjón- usta og nám í þorpinu Inukjuak til að endurvekja hlutverk ljósnróðurinnar i samfélaginu og færa fæðinguna heim til Inúitakvenna. Landslagsmyndir fra 28 Ljósmæðrablaðið nóvember 2005

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.