Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2004, Blaðsíða 13
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 2004 13
. **•
-í }
Amfetamín
fyrir austan
Lögreglumenn sem voru
við umferðareftirlit rétt
fyrir páskana höfðu afskipti
af ökumanni sem var á leið
um Suðurlandsveg vestan
við Selfoss. Vegna við-
bragða ökumannsins álykt-
uðu lögreglumennirnir að
ekki væri allt með felldu hjá
honum. Við nánari athug-
un kom í ljós að hann hafði
í fórum sínum um 60
grömm af amfetamíni. Að
sögn lögreglunnar á Sel-
fossi var maðurinn hand-
tekinn og færður til yflr-
heyrslu. Hann er grunaður
um að hafa ætlað að selja
efnið en ekki er ljóst hvar
salan átti að fara fram.
Innbrot í
nágrenni
lögreglu
Tvær konur og karlmað-
ur voru handtekin í Reykja-
vík um hálf-
fjögur leytið í
fyrrinótt er
lögreglumenn
komu að þeim
þar sem þau
voru að brjót-
ast inn í íbúð í
Bjarnaborg í
næsta ná-
grenni lögreglustöðvarinn-
ar. Fólkið sem er á aldrin-
um 20-25 ára var rétt að
hefjast handa við innbrotið
og hafði spennt upp
gluggakarm á einni íbúð-
inni í Bjarnaborg er lög-
reglumennirnir sáu til þess
og handtóku hópinn. Að
sögn lögreglunnar voru
þremenningarnir í vímu og
fengu gistingu í fanga-
geymslum.
Þjófar í
Kópavogi
Tilkynnt var um m'u
innbrot til lögreglunnar í
Kópavogi yfir hátíðarnar.
Brotist var inn í 6 bifreiðar
og í flestum tilvikum stolið
hljómflutningstækjum og
geisladiskum. Brotist var
inn f tvö fyrirtæki, annars
vegar í Hamraborg, þar
sem tölvum og tölvubún-
aði var stolið, og hins veg-
ar við Hlíðarsmára, þar
sem stafrænni myndavél
var stolið. Einnig var brot-
ist inn í íbúð við Lækjar-
hjalla þar sem DVD-spiiara
og hljómflutningstækjum
var stolið.
Tyrkjaránið á íslandi árið 1627 var alls ekki einangraður eða sjaldgæfur viðburður
því samkvæmt nýju mati Roberts Davis sagnfræðings var þrælahald með kristna
Evrópubúa mun umfangsmeira en áður var talið
Vestmannaeyjar A þriðja hundrað eyjaskeggjum var rænt afalsirskum sjóræningjum
þrælar í barbaríinu
Prófessor við Ohio-ríkisháskólann telur að fjöldi þeirra
evrópsku, kristnu manna sem hnepptir voru í þrældóm af
múslimum í Norður Afríku hafi verið stórlega vanmetinn.
Róbert Davis, prófessor í sögu,
heldur því fram í nýútkominni bók
að þrælarnir sem fluttir voru í bar-
baríið hafi verið á bilinu 1-1,25 millj-
ón. „Samkvæmt skriflegum heimild-
um til þessa hefur mátt ætla að þræl-
amir hafi ekki verið mjög margir og
áhrifin af þessari þrælatöku hafi ekki
verið mikil," segir Davis, „Flestar
heimildir skoða þrælahaldið útfrá
einum stað og í skamman tíma, en
þegar litið er yfir lengri tíma kemur í
ljós að þrælahaldið var mun um-
fangsmeira og áhrifin meiri en áður
var talið.“ Samkvæmt mati fræði-
manna til þessa hefur verið talið að
að hvítir evrópskir þrælar hafi í
mesta lagi verið nokkrir tugir þús-
unda en Davis telur að á árabilinu
1530 til 1780 hafi rúmlega milljón
mönnum verið rænt og þeir hneppt-
ir í þrældóm.
Hvít og svört þrælasala eins
Fræðimaðurirm vill að þræla-
verslun með hvíta menn við Mið-
jarðarhaf sé metið á sama hátt og
þrælaverslun yfir Atlantshaf með
svarta Afríkubúa til Ameríku. Á milli
1500 og 1650 voru 10-12 milljónir
Afríkubúar hnepptir í járn og seldir
til Ameríku. Telur Davis að á upp-
hafsdögum svörtu þrælaverslunar-
innar hafi sú hvíta við Miðjarðarhaf-
ið verið mun umfangsmeiri.
„Svo virðist að almenningur og
margir fræðimenn líti á þrælahald
sem kynþáttafyrirbæri og að allir
þrælar hafi verið svartir," segir Davis
prófessor. „Við getum ekki horft á
þrælahald sem eitthvað sem hvítir
gerðu á hlut þeldökkra." Á því tíma-
skeiði sem Davis skoðaði voru það
miklu fremur trúarbrögð sem réðu
því hver var gerður að þræli en hör-
undslitur." Á þessum tíma var það
raunveruleg hætta allra sem ferðuð-
ust á Miðjarðarhafssvæðinu að
lenda í þrældómi og sama má segja
um þá sem bjuggu við strendur ítal-
íu, Frakklands, Spánar, Portúgals og
norður til Englands og fslands."
Algengast var að sjóræningjar frá
borgum eins og Túnis og Alsír
rændu fólki á skipum á Miðjarðar-
hafi og Atlantshafi en einnig var far-
ið ránshendi um sjávarþorp og
íbúar settir í þrælahlekki. A
sumum tímum var hættan svo
mikil að byggð lagðist af á löng-
um strandlengjuköflum á Ítalíu
og Spáni. Þegar hvíta þrælasal-
an var í mestum blóma voru
eyðingaráhrif á sumum svæð-
um jafnvel meiri en þau sem
evrópskir þrælakaupmenn áttu
síðar eftir að valda í Afríku.
Áhrif „Tyrkjarána" teygðu sig langt
norður og telur Davis til að mynda
að alla sautjándu öldina hafi Eng-
lendingar misst 400 sjómenn á ári í
þrældóm.
Ekki kórrétt umfjöllunarefni
Sjálfur telur Davis prófessor að
ástæða þess að menn hafi ekki skoð-
að í heild þetta þrælahald sé að eng-
inn hafi beina hagsmuni af því að
beina sjónum sínum að því. Þræla-
verslun með kristna Evrópubúa falli
ekki að þema nýlendustefnu og
heimsyfirráða sem menn tengi við
evrópska menningu þessa tíma. Mörg
þau lönd sem gerðu sig gildandi í
þrælaverslun síðar eins og Spánn og
Portúgal þurftu áður að þola það að
landsmönnum þeirra var rænt í stór-
um stíl til sölu í barbaríinu. Davis tel-
ur því að sá fræðilegi rétttrúnaður að
Algeirsborg Verslunarstaöur með um-
fangsmikil viðskipti með evrópska þræla.
h'ta á Evrópu miðalda sem heltekna
af „illri" heimsvaldastefnu hindri að
menn meti Evrópuþjóðir sem
þolendur. Fyrir utan réttrúnaðinn
hefur skortur á áreiðanlegiun gögn-
um valdið því að erfitt hafi verið að
mæla umfang hvítu þrælasölunnar.
Davis fer þá leið að meta umfangið
með því að skilgreina hversu margir
þrælar voru á hverjum tí'ma á þræla-
strönd Norður-Afríku og meta síðan
endumýjunarþörf mannaflakosts-
ins. Það er mat Davis að fjórðung
þrælahópsins hafi þurft að „endur-
nýja" á hverju ári og sé það vísbend-
ing um það að harðræði það sem
þeir þurftu að þola hafi verið síst
minna en það sem svartir Afríku-
þrælar urðu fyrir síðar.
Rafmagnsgítar
^ magnari poki, ól- snúra -stillir
★
★
★
★
cec c
★★★
Söngkerfi Trommusett frá
frá 59.900,- 49.900,- stgr.
Gítarinn ehf.
Stórhöföa 27, sími 552-2125
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
Klassískir gítarar
frá 9.900,- stgr.