Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 29. MAÍ2004
Helgarblað DV
Nýjasta stórslysamyndin, The Day AfterTomorrow, var frumsýnd í vikunni. Um-
hverfisverndarsinnar segja atburði myndarinnar, að gróðurhúsaáhrifin muni á
skömmum tíma leiða til nýrrar ísaldar, geta átt sér stað í raunveruleikanum. Aðrir
draga það hins vegar stórlega í efa. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarð-
eðlisfræði, segir viss atriði myndarinnar vissulega byggja á vísindalegum grunni
þótt Hollywood fari heldur frjálslega með staðreyndirnar.
en vafasamt
Kvikmyndin The Day After
Tomorrow segir frá loftlagsfræð-
ingnum Jack Hall. Hann hefur lengi
varað stjómvöld við gróðurhúsaá-
hrifunum og segir þau geta haft
skelfilegar afleiðingar fyrir líf á jörð-
inni. Kallið kemur hins vegar of
seint og þegar stór íshella bráðnar
frá Suðurpólnum hækkar yfirborð
sjávar og sjávarstraumarnir, sem
eru mikilvægur liður í stöðugu hita-
stigi jarðarinnar, riðlast. í kjölfarið
fellur flóðbylgja á New York, það
byrjar að snjóa við miðbaug og
óveðursstormar taka öli völd á jörð-
inni. Gróðurhúsaáhrifin hafa
þannig leitt til nýrrar ísaldar og alit
á þetta sér stað í einum risastormi
sem herjar á alla jörðina.
Byggt á vísindalegum grunni
„Þessi- átburðarás sem myndin
byggir á, að það verð| hlynun á
jörðinni vegna gróðurhúsaáhrifa
sem leiðir til bráðnunar jökla, er
eitthvað sem við virðumst vera að
horfa á núna,“ segir Magnús Tumi
Guðmundsson prófessor í jarðeðl-
isfræði við Háskóla íslands. „Af því
Ieiðir að mikið ferskvatn kemur í út-
höfin og eitthvað af ísjökum vegna
þess að pólamir byrja að brotna.
Ferskvatnið getur myndað lag ofan
á sjónum vegna þess að það er létt-
ara og þannig getur slokknað á
golfstraumnum sem flytur varma
meðfram norðurströnd Bandaríkj-
anna og norður til okkar. Svona er
þessu í það minnsta stillt upp í
myndinni sem er svo sem raun-
hæft,“ segir Magnús og segir að
þetta geti gerst nokkuð hratt. „Þetta
getur átt
sér
stað '
til-
MagnusTumi Guð-
mundsson Prófessorl
jarðeölisfræði við Háskóla
Islands segiratburði
myndarinnar The Day Aft-
er Tomorrow byggja á vís-
indalegum grunni.
tölulega hratt sem leiðir til kólnun-
ar og við fáum loftslag sem er líkara
því sem þekkist í austurhluta
Kanada. Þetta eru allt hlutir sem
menn hafa verið að velta fyrir sér að
hafi komið fyrir áður en siðmenn-
ing hófst fyrir einhverjum 10 þús-
und árum. Hugmynd kvikmyndar-
innar The Day After Tomorrow er
að þessir atburðir leiði af sér nýja
ísöld og það er vissulega eitthvað
sem vísindamenn hafa velt fyrir sér.
Það má því segja að myndin byggi á
vfsindalegtun vangaveltum," segir
Magnús en tekur fram að slíkt gæti
aldrei gerst á svipstundu likt og í
myndinni.
Eðlileg Hollywood meðferð
„Tímaskalinn á þessu yrði hins
vegar tugir eða hundruðir ái;a en
ekld nokkrir dagar. Grunnhug-
myndin að Hiyndinni er því eitt-
hVað sém menn hafa verið að velta
fyrir sér en það myndi aldrei koma
ísöld í einum stórum súperstormi
Hkt og í myndinni," segir Magnús
og bætir við að þetta sé svo sem hin
eðlilega Hollywood meðferð.
„Þarna er Hollywood farið að taka
yfir vísindin. Að þetta ferli myndi
leiða af sér allsherjar storm, eldgos,
jarðskjálfta, flóðbylgjur - eina helj-
arinnar katastrófu - hefur bara ekk-
ert með raunveruleikann að gera.
Við því er svo sem ekkert að segja -
þetta er bara eðlileg Hollywood
meðferð á sögunni," segir Magnús.
„Hlýnunin er eitthvað sem við
erum að sjá gerast og bráðnun
jöklanna líka. En hitt, að þetta geti
leitt til svona mótsagnakenndra
áhrifa eins og ísaldar, er eitthvað
sem menn eru ekki sammála um.
Margir taka þær hugmyndir reynd-
ar alvarlega en það eru meiri spek-
úlasjónir að þetta geti leitt til ísald-
ar,“ segir Magnús sem telur þó
ágætt að myndin hafi vakið upp
umræðu um gróðurhúsaáhrifin al-
mennt. „Það er ágætt að þessi
mynd skuli vekja upp þessa um-
ræðu þótt raunvenúeikinn á bak
við myndina sé ekki mikill."
Gróðurhúsaáhrifin eru raun-
veruleg
Umhverfisverndarsinnar og aðr-
ir trjávinir í Bandaríkjunum hafa
síðustu vikur notað myndina í
áróðursskyni og haldið því
fram að þessir at-
burðir geti
raunveru-
lega átt
sér
stað á
The Day After
Tomorrow Byggir a
vísindalegum grunnien
■" raunhæt.
þykir ekki mjög
„Þetta eru allt hlutir
sem menn hafa veríð
að velta fyrír sér að
hafí komið fyrir fyrir
einhverjum löþúsund
árum. Hugmynd kvik-
myndarínnar The Day
After Tomorrow er að
þessir atburðir leiði af
sér nýja ísöld og það er
vissulega eitthvað sem
vísindamenn hafa velt
fyrir sér. Það má því
segja að myndin byggi
á vísindalegum vanga-
veltum.“
næstu árum. Þetta hefur vakið upp
talsverðar deilur þar sem sumir
segja málflutning græningja vera
tóma þvælu. Fræðimenn eru þó
flestir sammála um að gróðurhúsa-
áhrifin séu hægt og rólega að aukast
sem birtist m.a. í hærra sjávarmáli
og auknu hitastigi á jörðinni. Þess
vegna hafa umhverfisverndarsinn-
ar í Amerfku fjölmennt á sýningar
myndarinnar til að dreifa bækling-
um með fýrirsögninni „Gróður-
húsaáhrifin eru ekki bara kvikmynd
heldur framtíðin." Vona þeir að
með þessu nái þeir að vekja al-
menning til umhugsunar um jörð-
ina og meðferðina á henni. Það má
því slá því föstu að gróðurhúsaá-
hrifin geti haft mikil áhrif á lífið á
jörðinni á næstu árum, áratugum
eða öldum ef ekkert verður aðhafst
í málinu. Gróðurhúsaáhrifin munu
þó líklega aldrei valda snöggum
umskiptum I£kt og lýst er í stór-
slysamyndinni The Day After
Tomorrow.
agust@dv.is
Hvað eru
gróðurhúsa-
áhrif?
Jörðinni má likja við gróðurhús. Loft-
hjúpur jarðar hieypir greiðlega I gegn
sólargeislun en heldur inni miklum hluta
varmageistunarinnar sem berst aftur frá
yfirborðinu. Þannig takmarkar lofthjúp-
urinn varmatap frá jörðinni. Þetta er kall-
að gróðurhúsaáhrif, án þeirra værimeö-
alhitastig á jörðinni I kringum - 18°C i
stað + !5°C.Aukning þessara áhrifa, m.a.
vegna mikillar losunar gróðurhúsaloft-
tegunda af mannavöldum, getur valdið
hitaaukningu. Þannig gætu gróðurbelti
færst til, yfirborð sjávar hækkað sem gæti
valdið breytingum á lifsskilyrðum i sjó og
á jörðinni.
Hvað eru
gróður-
taúsaloft-
tegundir?
n Koldíoxíð er mikil-
vægasta gróður-
húsalofttegundin en
auk þess telst vatns-
gufa, koldfoxíð,
metan, óson, df-
köfnunarefnisoxfð,
brennlsteinshexa-
flúorið og ýmis
halógenkolefni tii
þelrra. Þessar loft-
tegundir eru kallað-
ar gróðurhúsaloft-
tegundir vegna
gróðurhúsaáhrifa
semþærvalda.
Helstu uppsprettur
koldioxíðs hérlendis eru
samgöngur, fiskiskip og iðnaður.
Helstu uppsprettur diköfnunarefn-
isoxíðs hérlendis eru notkun tilbú-
ins áburðar og bilaumferð en met-
an sprettur helst upp af húsdýra-
haldi og sorphaugum. Þá losa
spreybrúsar og gamlír ísskápar
einnig frá sér gróðurhúsaloftteg-
undir.
Hvaðer
hægtað
gera?
Nota endurnýtanlega orkugjafa á borð
viö sólar- og vindorku. Nýjungar i kæli-
tækni hafa lika valdið því að ísskápar
nýta ekki ósoneyðandi efni og eru þess
vegna umhverfisvænni. Þegarhafa fjöl-
mörg riki staðfest Kyoto-bókunina sem
miðar að þvi að minnka útstreymi gróð-
urhúsalofttegunda. Bandaríkin eru ein
þeirra þjóða sem ekki hafa samþykkt
Kyoto en þeir eru
ábyrgir fyrir 25%
afútstreymi gróð-
urhúsalofttegunda
þráttfyriraðvera
aðeins um 5% af
arinnar.Eina
leiðin til að
minnkaþetta
útstreymi er
samstillt átak
allra jarðar-
búa.
★ Rafmagnsgítar
magnari poki, ól- snúra -stillir
'7 og auka strengjasett.
★
★
Söngkerfi Trommusett frá
frá 59.900,- 49.900,- stgr.
Gítarinn ehf.
Stórhöfða 27, sími 552-2125
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
Klassískir gítarar
frá 9.900,- stgr.
** ******