Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Blaðsíða 48
JT1 f t j Cl^Jj í 0 í Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^jnafnleyndar er gætt. r-J 550 5000 SKAFTAHLÍÐ24, 105RBYKJAVÍK[ STOFNAÐ 1910 \ SÍMI550S000 • Mikil ánægja er á meðal sjálf- stæðisfólks með 75 ára afmæli Sjálfstæðisflokks- ins sem haldið var á Baugshótel- inu Nordica í vik- unni. Færri komust að en vildu. Athygli vakti hins vegar aldurs- samsetning gesta samkomunn- ar. Á öllum myndum sem birtust úr hófinu, sást að í meirihluta voru svokallaðir heldri borgarar, fólk komið vel á aldur, af léttasta skeiði. Þetta fólk er harðasti kjarninn og hefur fylgt forystu sjálfstæðismanna gegnum þunnt og þykkt. Einhverjir gam- ansamir menn hafa hent þetta á lofti og sagt að þarna hafi verið á ferðinni endurfundir þeirra sem urðu 75 ára á árinu, eins og Sj álfstæðisflokkurinn... • Metsöluhöfundurinn Óttar Sveinsson er á ferð og flugi Hann hefur grísað þessa dagana að safna efni og skrifa næstu Útkallsbók sem væntanlega á eftir að renna út eins og heitar lummur eins og undanfarin ár. Að þessu sinni tekur Óttar fyrir land- helgisstríð Breta og íslendinga. Ótt- ar ræðir bæði við Breta og íslend- inga og er búist við að nýju ljósi verði varpað á atburði... • Sýslumaðurinn JóhannBene- diktsson á Keflavíkurflugvelli hef- ur þótt standa sig vel í embætti og náð mörgum þrjótinum sem reynt hef- ur að komast inn í landið með eiturlyf eða á öðrum annarlegum forsendum. Frammistaða hans hefur vakið athygli erlendis og þykir embættið og starfsmenn þess standa framarlega á þessu sviði. Þetta þykja góðar forvarnir því glæpamenn ann- arra landa þurfa að hugsa sig um tvisvar áður en þeir drepa niður fæti á Fróni.. Halldop a Bessastöðum Valdi forseta uæsina í stað forsetans HalldórÁsgrímsson gerði sér ferð á Bessastaði í vikunni stuttu eftir að hið umdeilda fjölmiðlafrumvarp var samþykkt á Álþingi. Vegfarendur segja framsóknarforingjann hafa verið einn á ferð á stórum svörtum Pajero-jeppa. Hann hafi beygt inn á Bessastaðaafleggjarann og keyrt sem leið liggur upp að bústað Ólafs Ragnars Grímssonar. Mörgum þykir líklegt að Halldór hafi viljað gera sér ferð til að sættast við forsetann eftir árásir Davíðs í sjónvarpinu á dögunum. Aðrir segja að hann hafi viljað sætta eigin flokk með því að styrkja sambandið við Ólaf Ragnar en framsókn hefur oft verið talin hliðholl undir forsetann. Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðar- maður HaUdórs, staðfestir að Hall- dór hafi keyrt að Bessastöðum. Hann neitar því hins vegar staðfast- lega að Halldór hafi hitt Olaf Ragnar; hann hafi einfaldlega verið í fugla- skoðun. „Jú, hann fór til þess að skoða sjaldgæfa gæs sem stoppar þarna á Álftanesi í tvær vikur á ári,“ segir Björn Ingi. DV hafði samband við ýmsa fuglafræðinga sem staðfestu að blómlegt fuglalíf væri á Álftanesinu. Einn þeirra minntist á gæs sem ým- ist er kölluð hin austræna eða vest- ræna Margæs. f hópi fuglaskoðunar- fræðinga er hún hins vegar alltaf kölluð forsetafugl- inn eða forseta- gæsin. Ástæðan ku vera sú að hún stoppar alltaf á túninu við Bessa- staði á leið sinni vestur um haf Halldór og Bessastaðir „Jú, hann fór til þess að skoða sjatdgæfa P . , . gæssemstopparþarnaáÁlftanesiitværvikuráári,“segirBjörnIngi ... , r. umveruHalldórsáÁlftanesi. DVsamsettmynd vilja feta í fótspor Halldórs og skoða forsetagæsina þá heldur hún sig einnig á Kasthúsa- Sn eða Breiðabólsstaðatjörn á anesinu. Margæsin er h'tÚ, dökk gæs og eyðir mestum tíma sínum á sjó þegar hún er ekki að ala upp unga. Ekki fékkst hins vegar staðfest hvort Ólafur Ragnar hafi slegist í för með Halldóri umrætt kvöld og hitt fyrir kollega sinn úr fuglalífinu. jpfc IJk ÍIIÍISI á sviöi fasteignalána ÞoiAui lon-.son, .M.iíltur fastnÍQn.is.ili, <»t rúðgjafi i'i viðskiptasviði Frjálsi fjárfestingarbankirm hefur á að skipa hópi fagfólks með viðtæka reynslu, ríka þjónustulunci og sérfræðiþekkingu á öilum sviðum lánastarfsemi; viðskíptafræðingum, löggiltum fasteignsölum on iögmönnum. Þessu fólki geturðu treyst *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.