Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Blaðsíða 36
36 LAUGARDACUR 29. MAl2004
Sport DV
9
LANOSBANKA
DEILDIN
LANDSBANKA
DEILDIN
íslandsmeistarar KR fengu sín fyrstu stig á tímabilinu þegar þeir mörðu sigur gegn
nýliðum Víkings í Frostaskjólinu, 2-1. Víkingar voru síst lakara liðið í leiknum en
17 ára strákur í KR-liðinu sá til þess að heimamenn fengu öll stigin þrjú.
KR-VÍKINGUR 2-1
3. umf. - KR-völlur -27. mal
Dómari: Jóhannes Valgeirsson (1).
Ahorfendur: 1772. G»0i lciks: 2.
Gul spjöld: KR: Kristján F. (68),
Kjartan (82.). Víkingur: Sigursteinn
(90.).
Rauð spjöld: Sigursteinn (90.).
Mörk
0-1 Egill Atlason 15.
skot úr teig Grétar
1-1 Ágúst Gylfason 34.
viti Kjartan
2-1 Arnar Jón Sigurgeirsson 52.
skot úr teig Kjartan
Leikmenn KR:
Kristján Finnbogason 2
GunnarEinarsson 1
(55., Kristinn Magnússon 3)
Kristján Örn Sigurðsson 4
Petr Podzemsky 4
Jökull Elísabetarson 1
Bjarní Þorsteinsson 1
Kristinn Hafliöason 2
Ágúst Gylfason 3
Arnar Jón Sigurgeirsson 2
Sölvi Davtðsson 1
(90., Ólafur Páll Johnson -)
Kjartan Henry Finnbogason 4
(86., Guðmundur Benediktsson -)
Leikmenn Víkings:
Martin Trancik 3
Steinþór Gíslason 4
(90., Andri Tómas Gunnarsson -)
Sigurjón Þorri Ólafsson 1
(63., Þorvaldur M. Guðmundsson 1)
Sölvi Geir Ottesen 3
Höskuldur Eiriksson 2
Vilhjálmur Ragnar Vilhjálmsson 4
Sigursteinn Gíslason 2
Kári Árnason 1
Daniel Hjaltason 1
Egill Atlason 2
(73.,Stefán Örn Arnarson -)
Grétar Sigurðsson 3
Tölfræðin:
Skot (á mark): 10-9 (5-6)
Varin skot: Kristján 3 -Trancik 3.
Horn: 2-2 Rangstöður: 2-4
Aukaspyrnur fcngnar: 17-18.
BESTURÁ VELLINUM:
Kjartan Henry Finnbogason, KR
GRINDAVÍK-FYLKIR 0-2
3. umf. - Grindavikurvöllur -27. mal
Dómari: Magnús Þórisson (2).
Ahorfandun 700. Gæði lciks: 2.
Gul spjöld: Grindavfk: Gestur (45.),
Óðinn (54.), Kekic (56.), McShane (90.)
cv - Fylkir: Gunnar Þór (86.), Kristján
(88.).
Rauð spjöld: Engin.
Mörk
0-1 Sævar Þór Gíslason 59.
skot úr teig Þorbjörn Atli
0-2 Þorbjörn Atli Sveinsson 68.
skot úr markteig Sævar Þór
Leikmenn Grindavíkur:
Albert Sævarsson 3
Ray Anthony Jónsson 3
Slnisa Kekic 4
Óðinn Árnason 4
Guðmundur Andri Bjarnason 3
(62., Óskar Hauksson 2)
». Paul McShane 2
Eysteinn Hauksson 1
(65., Eyþór Atli Einarsson 2)
Gestur Gylfason 2
Orri Freyr Óskarsson 2
Óli Stefán Flóventsson 1
(75., Jóhann Helgi Aðalgeirsson -)
Grétar Hjartarson 3
Leikmenn Fylkis:
Bjarni Þórður Halldórsson 5
Guðni Rúnar Helgason 3
Þórhallur Dan Jóhannsson 4
Valur Fannar Gfslason 3
Gunnar Þór Pétursson 3
Ragnar Sigurðsson 2
(67„KristjánValdimarsson 2)
Helgi Valur Daníelsson 1
■ Finnur Kolbeinsson 2
Sævar Þór Gíslason 3
(83., Eyjólfur Héöinsson -)
Þorbjörn Atli Sveinsson 3
(73., BjörgólfurTakefusa -)
Ólafur Páll Snorrason 2
Tölfræðin:
Skot (á mark): 17-8 (6-3)
Varin skot: Albert 1 - Bjarni 6.
Horn: 7-5 Rangstöður: 6-7
Aukaspyrnurfengnar: 20-15.
BESTUR Á VELLINUM:
Bjarni Þórður Halldórsson, Fylki
betrien hanti ror oftei cn
ekkfxktvfí ó undan vttrnor-
mbnhum Vlkfltgi i Iviknum
ÍCU"ÍnÍCS
Það sást greinilega á leik KR og
Víkings á fimmtudag að það er
engin tilviljun að þessi félög
skrapa botninn í Landsbanka-
deildinni. Leikur liðanna var
klassískur botnbaráttuslagur
þar sem góður fótbolti fékk að
víkja fyrir háloftaspyrnum og
baráttu. Mátti vart á milli sjá
hvort liðið var Islandsmeistari
og hvort liðið á að falla lóðrétt
í 1. deild samkvæmt spám sér-
fróðra manna. Það voru þó
íslandsmeistararnir sem
höfðu sigur að lokum í leðju-
slagnum, 2-1.
Það hafði nákvæmlega ekki
nokkur skapaður hlutur gerst í
leiknum þegar Egill Atlason kom
Víkingi yfir með góðu skoti sem
hann fékk að taka óáreittur enda var
maðurinn sem átti að dekka hann
víðs fjarri eins og reyndar oft f
þessum leik. KR-ingar fengu
vafasama vítaspyrnu rúmum tíu
mínútum fyrir leikhlé þegar
arfaslakur dómari leiksins, Jóhannes
Valgeirsson, dæmdi á h'tið brot
Þorra Ólafssonar gegn Kjartani
Finnbogasyni. Ágúst var öryggið
uppmálað á punktinum og jafnaði
leikinn.
Vikingar fengu tvö dauðafæri rétt
fyrir hlé. Fyrst bjargaði Ágúst á línu
frá Dam'el en síðan var Sölvi klaufi er
hann stóð einn andspænis markinu.
Jafnræði var með liðunum í
síðari hálfleik en snilldartaktar
Kjartans Henry á 52. mínútu komu
Arnari Jóni í dauðafæri sem hann
gat ekki annað en skorað úr.
Þegar á allt er Utið voru Víkingar
skárra liðið í þessum leik. Vörðust
vel og voru síðan stórhættulegir í
föstum leikatriðum þar sem
frábærar spyrnur Vilhjálms fengu að
njóta sín. Fyrirliði Vfldngs lét aftur á
móti „kjúklinginn" fara illa með sig í
tvígang og það var of dýrt.
Það voru ekki snilldartaktar
meistaranna sem skiluðu þessum
sigri heldur einstaklingsffamtak
Kjartans. Baráttan í liðinu var ágæt
og þeir fá plús fyrir að vanmeta ekki
andstæðinginn. Miðverðirnir voru
jafn góðir og bakverðirnir voru slakir
og það kom flestum á óvart að
innistæða skyldi hafa verið fyrir
„gúmmítékkanum" Podzemsky sem
fann sig vel í miðverðinum.
Sóknarleikurinn er aftur á móti
mikill höfuðverkur fyrir Willum
enda ákaflega getulaus.
Enn og aftur voru Vfldngar
nálægt stigi en aftur voru þeir
sjálfum sér verstir því þeir nýttu ekki
færin. Vilhjálmur var sprækur gegn
sínum gömlu félögum og spyrnur
hans fúndu oft kollinn á Grétari.
Steinþór stóð síðan upp úr í
vörninni en hann pakkaði Sölva
Davíðssyni saman.
Lesa blöðin of mikið
„Það getur verið býsna þungt að
ýta kyrrstæðum vagni af stað en
þegar það loksins hefst þá er
auðveldara að láta hann rúlla í ff am-
haldinu," sagði Willum Þór Þórsson,
þjálfari KR, í leikslok en honum var
auðsjáanlega létt enda búinn að
vera undir mikilh pressu.
Sigurður Jónsson, þjálfari
Vfldngs, var hundfúll í leikslok og
langt frá því að vera sáttur við
Jóhannes Valgeirsson, dómara
leiksins.
„Við erum litla liðið sem er að
koma upp og það hafa allir verið að
lesa blöðin sem spá okkur niður
aftur. Ég er ansi hræddur um að
þessir dómarar séu að lesa þessi
blöð of mfldð og taka þetta nærri
sér," sagði Sigurður vondur. „Við
vorum mikið betri og óheppnir að fá
ekkert út úr þessum leik."
henry@dv.is, vignir@dv.is
m
V:
Löng og enfið fæðing
Fylkismenn komnir á toppinn í Landsbankadeildinni eftir sigur á Grindavík
Fylkismenn gerðu það sem þurfti
Hann var ekki rishár knatt-
spyrnuleikurinn sem Grindvfldngar
og Fylkismenn buðu upp á í
Grindavfk á fimmtudaginn. Það má
segja að eini munurinn á liðunum
hafi verið sá að Fylkismenn kláruðu
sín færi en skot Grindvíkinga
strönduðu á Bjarna Þórði Halldórs-
syni, mjög góðum markverði Fylkis-
manna. Þegar uppi var staðið höfðu
Fylkismenn skorað tvívegis án þess
að Grindvfldngar næðu að svara fyrir
sig.
Leikmenn liðanna spfluðu mjög
varfærnislega, sóttu á fáum mönn-
um og það var greinflegt að þjálfarar
beggja liða ætluðu sér ekld að taka
óþarfa áhættu.
Lflct og í fyrstu tveimur leikjunum
voru Grindvfldngar vel skipulagðir
varnarlega lengst af, boltinn gekk á
körflum ágætlega en sóknarleik-
urinn var hugmyndasnauður og htið
beittur. Þeir sóttu á fáum mönnum
sem að hluta til skýrist af því að tveir
miðjumanna liðsins, Eysteinn
Hauksson og Gestur Gylfason, voru
eins og dráttarklárar á vellinum,
hreyfðust hægt hvort heldur sem
það var fram eða til baka.
Lflct og í síðustu leikjum voru
miðverðirnir Sinisa Kekic og Óðinn
Árnason þeirra bestu menn. Kekic
gerði sig reyndar sekan um sjaldséð
mistök í fyrra markinu en var annars
eins og klettur í vörninni. Hann
lífgaði líka upp sóknarleikinn hjá
Grindavflc undir lokin þegar hann
var færður fram, reyndar á kostnað
varnarinnar sem var mun óöruggari
fyrir vikið.
Það er meistarafnykur af Fylkis-
mönnum. Það er reyndar fáránlegt
að slá þá til riddara strax en miðað
við hvernig þeir spiluðu þennan leik
þá geta þeir eldd verið annað en
bjartsýnir. Þeir voru mjög þéttir
varnarlega, virkuðu á stundum eins
og órjúfanieg heild og frammi hafa
þeir leflcmenn, sem geta breytt
mistökum andstæðinganna í mörk.
Það gerðu þeir í tvígang gegn
Grindavflc og segir sína sögu um
styrk liðsins. f markinu stendur
síðan ungur markvörður, Bjarni
Þórður Halldórsson, sem spilar eins
og hann hafi verið tíu ár í defldinni.
Lukkan var með Fylkismönnum í
þessum leik en öll lið sem ætla sér
að vera í toppbaráttunni þurfa á
henni að halda. Þeir gerðu það sem
þurfti í þessum leik, ekJd hótinu
meira.
Grindvfldngar gáfu tvö mörk á
silfurfati og svo virðist sem þeirra
bíði botnbarátta. oskar@dv.is
Sævar fagnar Sævar Þór Gíslason skoraði
fyrra mark Fylkis gegn Grindavík.