Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Blaðsíða 47
DV Síðast en ekki síst LAUGARDAGUR 29. MAÍ2004 47 Ótrúlegt framferði skólastjóra DV hefur að undanförnu sagt fréttir af samskiptum mínum við Þorvarð Elíasson, skólastjóra Versl- unarskóla íslands, vegna meðferðar skólans á máli sonar míns árið 1994. Þar sem verulega skortir á að fféttir blaðsins af þessum atburðum gefi af þeim rétta mynd óska ég eftir að blaðið bbti þær skýringar sem hér fara á eftir. 1. Sonur minn Gunnlaugur stundaði nám í 4. bekk VÍ veturinn 1993-1994. Hann hafði verið kosinn formaður málfundafélags skólans vorið á undan og gegndi því starfi þennan vetur, þó að hann væri að- eins á 2. námsári sínu (skólagangan til stúdentsprófs spannar 3.-6. bekk). Gunnlaugur varð vegna starfa sinna fyrir málfundafélagið sekur um að sækja kennslustundir í skól- anum illa. Var breytni hans í þessu efni svipuð og félaga hans í stjórn skólafélagsins. Þeir voru allir lengra komir í náminu en hann en sam- kvæmt reglum skólans gilm sömu reglur um mætingar án tillits til þess hvar nemendur voru staddir í námi.Tekið skal fram, að aldrei hef- ur verið kvartað yfir því að hann tæki ábyrgð á því í samræmi við þær reglur sem giltu í skólanum um sllkt. 2. Nemendum eru gefnar ársein- kunnir í einstökum námsgreinum fyrir frammistöðu sína yfir veturinn, eins og tíðkast í mörgum öðrum skólum. Árseinkunn gildir til jafns við prófseinkunn að vori til útreikn- ings á aðaleinkunn. Til þess að kom- ast inn í lærdómsdeild skólans í 5. bekk þurftu nemendur í 4. bekk að fá 6,5 eða hærra í aðaleinkunn. 3. Jólapróf eru haldin í öllum námsgreinum í desember, eftir að u.þ.b. hálft skólaárið er að baki. Gunnlaugur fékk 8,75 í meðal- einkunn á jólaprófunum, en 8,17 ef Jón Steinar Gunnlaugsson skýrirandúð sínaá Þorvarði Elíassyni, skólastjóra Verslunarskólans. Kiallari reiknuð var með einkunnin 0,0 sem hann verðskuldað fékk fyrir skóla- sókn. 4. Við lok vetrar fékk Gunnlaugur árseinkunnir sínar. Meðaleinkunn hans var 5,07 en 4,75 ef reiknuð var með einkunn fyrir skólasókn 0,0. Var greinilegt að kennarar í 7 greinum höfðu gengið fram á furðulegan hátt við að lækka einkunnir hans frá því sem verið hafði á jólaprófum. Gróf- asta dæmið var bókfærsla, þar sem gefnar voru tvær einkunnir. Hafði Gunnlaugur fengið 2x10,0 á jóla- prófi en fékk 2x2,0! í árseinkunn. Tekið skal fram að skólasókn var að- eins 58,9% (þar sem skróp munu vera dregin tvisvar frá) og skróp 100 skipti. Einkunn fyrir skólasókn var 0,0, eins og verðugt var. 5. Ég sá strax að hér var ekki allt með felldu. Ég hafði þó engin af- skipti af málinu að sinni. Ljóst var að Gunnlaugur þurfti að fá 8,25 á vor- prófinu til að ná inn í lærdómsdeild skólans. Hann fór í prófin og fékk einkunnina 8,70. Meðaleinkunn árs- einkunnar og vorprófs varð þannig 6,73. Kurteislegt bréf 6. Þegar þetta var að baki skrifaði ég skólastjóranum kurteislegt bréf. Meginefni þess var að spyrjast fyrir um hvort einhverjar skráðar eða óskráðar reglur giltu við skólann um ákvörðun árseinkunna. Jafnframt óskaði ég eftir upplýsingum um • Sjálfstæðismenn ræða það nú sín á meðal að ef Davíð Oddsson hætti sem formaður flokksins, geti bara einn komið til greina sem arftaki hans. GeirH. Haarde þykir hafa spilað vel úr sínum kortum gagnvart almennum flokksmönnum, einbeitt sér að flokksstarfinu og haft sig h'tið í frammi á opinberum vett- vangi. Hann hafi því stimplað sig vel inn sem maður flokksins, sem geti tekið við flokknum, hvenær sem Dav- íð kýs að stíga niður... • Hins vegar er minni ánægja meö framgöngu Björns Bjarnasonar. Það eru ekld mörg ár síðan litið var til hans sem framtíðarleiðtoga. Hann hefur einnig séð það íljóma að geta fetað í fótspor föð- ur síns, sem nýtur mikillar aðdáunar sjálfstæðismanna. Bjöm tapaði miklu þegar honum mistókst að leiða sjálfstæðismenn til sigurs í Reykjavík og uppskar reyndar stærsta tap flokksins í borginni í seinni tíð. Frá því hann varð dómsmálaráðherra hef- ur Bjöm lfka lent f ógöngum með hvert málið á fætur öðm. Hann dró til baka fangafrumvarpið, var neyddur til að draga í land í hlerunarmálinu og fann fyrir mikilli andstöðu við útlend- ingafrumvarpið... • Það mál sem hefur þó orðið hon- um erfiðast er skipun Olafe Barkar Þorvaldssonar í stól hæstaréttardóm- ara gegn vilja Hæstaréttar og í bága við jafnréttislög og rétta málsmeðferð. Viðbrögð Björns við hvers kyns gagnrýni og at- hugasemdum hafa ekki orðið til þess að vinna honum inn prik hjá flokks- mönnum sem mörgum þykir hann harðsvíraður. í samtölum við sjálfetæðismenn hafa æ fleiri orðið til að taka undir með þeim sem sagði í viðtah við DV í vetur að þeir sem héldu að Bjöm yrði formaður í Sjálfstæðisflokknum, hlytu að búa á annarri plánetu... hvort skólastjóranum væri kunnugt um einhver dæmi, t.d. 10 ár aftur í tímann, sem jafna mætti við dæmi Gunnlaugs að þessu leyti. Óskaði ég eftir skriflegu svari. Þegar ég gekk eftir svari.vildi skólastjórinn að ég kæmi í skólann til að hitta sig. Hann hefur sennilega ekki viljað festa við- brögð sín á blað. Sá fundur var ótrú- legur. Þar sem við vomm bara tveir viðstaddir læt ég hjá líða að lýsa flestu af því sem þar fór fram. Ég nefni þó, að skólastjórinn sagðist hafa samþykkt fyrirfram aðför kennaranna að drengnum! f ljós kom líka að aðrir kennarar Gunn- laugs höfðu neitað að taka þátt í þessu. Þá staðfesti hann að Gunn- laugur væri ávaht afar kurteis í fr am- komu. Svörin við spurningum bréfs míns voru, að engar ákveðnar reglur giltu um gjöf árseinkunna og að engin dæmi yrðu nefnd. Tekið skal fram, að síðar fékk ég upplýsingar frá skólanefnd VÍ, að svonefrid al- menn viðmiðun gUti við ákvörðun árs- einkunna. Var þar tekið fram, að miðsvetrareinkunn (jólaprófs- einkunn) skyldi vera hluti af ársein- kunn. Mun hafa verið algengt við skólann að áhrif hennar væru 50- 60%. 7. Við Gunnlaugur fórum nú í að afla sjálfir dæma tíl samanburðar. Við fundum 6 samanburðardæmi, þar sem skróp var í öUum tUvikum meira en hjá Gunnlaugi. Enginn samanburðarnemendanna hafði fengið meðferð sem að neinu leyti nálgaðist meðferðina á honum. Eitt dæmið var af nemanda í 4. bekk sama vetur 1993-1994, sem var með 131 skróp. Hann lækkaði í meðal- einkunn frá jólaprófi úr 5,92 í 5,43. Þessi nemandi var með sama kenn- ara og sama námsefni í bókfærslu þennan vetur og Gunnlaugur. Hann fékk 2x6,5 í árseinkunn. Við vissum ekki hvaða einkunn hann hafði fengið á jólaprófinu en víst var það ekki 2x10,0 eins og hjá Gunnlaugi (sem lækkaði í 2x2,0 eins og fyrr greindi). Hin dæmin voru svipuð. Niðurstaðan af þessu var sú að Gunnlaugur hafði hlotið aðra og miklu verri meðferð í skólanum en nokkur önnur dæmi fundust um. Meðferðin braut að auki í bága við hina almennu viðmiðun, sem við síðar fengum upplýsingar um. 8. Ég sneri mér til skólanefndar VÍ með máhð. Þar kom í ljós, að skólanefndin reyndist alveg ófær um að standa gegn ofríki skólastjór- ans. Virtist hann hafa öll ráð hennar í hendi sér. iin Steínar GunnUiugsion pc,rsúnu ckk! etól aö koma nálseíít skólastarfl. Skólastjóri ónuirlep tauti og líklega vanheill S‘£c5ssws'®=iti _____. , , us7> Wn* **«$*•' iödi M t**« H«'“ ***“ »***»«*• »**««“ A »■»n«» ftíMSíSS —■ • .«i • rix..«i»» f- i2“ ■ iiUií «*<« “ m ntíiw I v* VWJtsfllW- i I fcng* tiM .N n-ynJi f »**>») m i «•»**» fSgtMiiJíi. TíStrS- 'S?STwS| ““ iæ *sr.£!: uflC txvnaim •* V*'-' “V1 -...* . i ^ lt»nn .et>W M* $ tkuuMð l*w.J 1 yw> iltrnpiíTW 3 KMh Urtwl I wca »v<> MttwmHM***1***, IX- »rns vitni »n«irt •Þu ■ vl.iit syntnáMiwvaoiliaa* líyjt t-utvsiA VI* Oi4 4iit..tiimM 1 uilét CK txbss SKSBSÍ pjwr.it flfirikl kfl-fU' uua tflHuU t ■*«****• vkótavlrt 'V 'lrtl l tm<»i «»**»»* "SÍlavlKursykn"^T^rsvan s Ekkert hé- gómamál Ástæða er til að taka fram, að hér var ekki um neitt hégómamál að ræða. Máhð snerist hreinlega um aðför að nemanda við skólann sem var til þess fallin að binda endi á frekari skólagöngu hans. Það var ekki Þorvarði skólastjóra að þakka að þessi nemandi stóð af sér höggið sem reitt var að honum. Það var svo í 6. bekk, þegar Gunnlaugur las utanskóla fyrir stúd- entspróf, að Þorvarður bannaði að hann tæki þátt í Morfís-ræðukeppni fyrir skólann. Sagði hann ástæðuna vera þá, að utanskólanemendur fengju ekki að vera með. Þremur árum áður hafði utanskólanemandi keppt fyrir VÍ í þessari ræðukeppni auk þess sem tekið var fram í reglum Morfís, að utanskólanemar væru gjaldgengir. Skólastjórinn bannaði lflca, að Gunnlaugur kæmi th greina sem þátttakandi í keppnisliði skól- ans í Gettu betur. Þess skal getið að á sl. vetri keppti utanskólanemandi fyrir VÍ bæði í Morfís og Gettu betur, þannig að reglan sem bannaði þetta var greinilega einnota. Lokakveðjan kom svo við útskrift stúdenta vorið 1996. Gunnláugur Hvað í ósköpunum ertu að gera á fslandl? „Maðurinn minn er hér í viðskiptaferð svo ég er bara hér í fríi. Idag ætlum við að leigja bil og keyra um og sjá alltþað frægasta sem hér er hægt að sjá.” Maggie Espedal og Emma frá Noregi I’ SÍÉÉ fékk ásamt öðrum nem- anda hæstu einkunn í eðlisfræði. Verðlaun voru veitt fyrir besta námsárangur í þeirri grein. Þau fékk hinn nemandinn en Gunnlaugur engin. Ástæðan var sögð vera sú, að utanskólanemendur fengju ekki verðlaun! Sú regla hafði ekki svo vit- að sé heyrst áður á vettvangi skól- ans. Þegar ég sendi Þorvarði skóla- stjóra þungort bréf á dögunum og bað hann að trufla ekki fjölskyldu mína með tilboðum til barnanna um skólavist, brást hann þannig við að hann lét birta það opinberlega. Það var hans ákvörðun en ekki mín. Allir sæmilegir menn hljóta að sjá að ekkert var ofmælt í bréfi mínu. Þetta er maður sem veist hafði með mikilli rangsleitni að velferð sonar míns. Því get ég ekki tekið með jafn- aðargeði. Síðan DV birti frásögn af bréfi mínu hafa mér borist þakkir fyrir að hafa sent það frá fólki sem hefur frá samskiptum sínum við þennan rangláta mann að segja. Við foreldra unglinga sem hyggja á framhaldsnám segi ég bara: Ékki senda börn ykkar í þennan skóla meðan þessi maður situr þar við stjórnvölinn. \ ' ííWWSs VINNINGAR í BODI Reynisvatns og Veimportsins. BoDIÐ VPPÁ GRIU AD l.OKINNl KEPPNl. Þáttökvgjald kr, 4.000, - Upplýsingar ístMA 693-7101 OG Á WWW.REYNISVATN.IS 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.