Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2004, Side 35
DV Sport
LAUGARDAGUR 29. MAÍ2004 35
KA-ÍBV 0-1
3. umf. - Akureyrarvöllur -27. maf
Dómari: Gylfi Orrason (4).
Áhorfendur: 512. Gaeði leiks: 2.
Gul spjöld: KA: Steinn Viðar (84.) (BV:
Einar Hlöðver (60.), Jón (68.), Magnús
Már (89.).
Rauð spjöld: Engin.
Mörk
0-1 Magnús Már Lúðvlksson 90.
skot úr teig Bjarnólfur
Leikmenn KA:
Sandor Matus 4
Óli Þór Birgisson 3
Ronni Hartvig 3
Atli Sveinn Þórarinsson 3
Steinn Viðar Gunnarsson 3
Örn Kató Hauksson 3
(84., Steingrlmur Örn Elðsson -)
Pálmi Rafn Pálmason 4
Kristján Elí Örnólfsson 3
Dean Martin 3
Jóhann Þórhallsson 3
(80., Hreinn Hringsson -)
Elmar Dan Sigþórsson 3
Leikmenn ÍBV:
Birkir Kristinsson 5
Matt Garner 3
Einar Hlöðver Slgurðsson 4
Bjarni GeirViðarsson 3
Einar Þór Danlelsson 4
(46., Andri Ólafsson 4)
Mark Schulte 3
Bjarnólfur Lárusson 3
Pétur Runólfsson 3
(85., Bjarni Rúnar Einarsson -)
Jón Skaftason 3
Magnús Már Lúðvíksson 4
(90., Sindri Viðarsson -)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 3
Tölfræöin:
Skot (á mark): 9-7 (5-5)
Varin skot: Matus 4 - Birkir 5.
Horn: 9-6 Rangstöðun 2-1
Aukaspyrnur fengnar: 17-13.
BESTUR Á VELLINUM:
Birkir Kristinsson, ÍBV
Staðan í Lands- é
bankadeild karla
Fylklr 3 2 1® 0 4-1 7
Keflavík 2 2 0 0 5-2 6
lA 3 1 2 0 3-1 5
(BV 3 1 2 0 3-2 5
Fram 3 1 1 1 4-3 4
FH 2 1 0 1 1-1 3
KA 3 1 0 2 2-3 3
KR 3 1 0 2 3-5 3
Grindavík 3 0 2 1 1-6 2
Víkingur 3 0 0 3 1-6 0
Leikur FH og Keflavík var ekki
búinn þegar DV fór I prentun I
gaerkvöld.
^Éfi^.
Náðum því
sem þurfti
„Við náðum því sem
þurfti í þessum leik. Það er
mikill plús fyrir okkur að ná
í þessi þrjú stig. Við höfum
átt erfitt uppdráttar á mdt-
inu og gott hjá okkur að ná
þessu í lokin eftir að þeir
höfðu sótt að okkur. Ég
fann mig mjög vel í teign-
um. Það er gott þegar mað-
ur finnur sig svona vel og er
þá óhræddur að fara í alla
þessa bolta. Ég átti slæma
reynslu héma frá því í fyrra
en við fengum þrjú mörk á
okkur hér á Akuréyri og svo
þrjú mörk í Vestmannaeyj-
um þannig að það var gott
að halda hreinu á móti
þeim," sagði Birkir Kristins-
son eftir leikinn.
Eyjamenn lögðu KA-menn á Akureyri
Magnús Már
tryggúi 3 sdg
Það má segja að Eyjamenn
hafi stolið sigrinum af KA-
mönnum þegar liðin mættust
á Akureyrarvelli á fimmtudag.
Lítið gerðist í leiknum og virt-
ist allt stefna í steindautt jafn-
tefLi en Magnús Már Lúðvíks-
son skoraði sigurmarkið þegar
hann fékk boltann eftir hræði-
legt úthlaup frá Sandor Matus
þegar vallarklukkan var á 90.
mínútunni en uppbótartím-
inn var um 7 mínútur.
Lítið var að gerast í fyrri hálfleik
en hættulegastur var Jóhann Þór-
hallsson en Birkir Kristinsson var
sem klettur í markinu og átti góðan
leik í markinu í þau skipti sem hann
þurfti að taka á því. KA-menn voru
nálægt því að skora í lok fyrri hálf-
leiks en Einar Hlöðver bjargaði á
línu. Ronni Hartvig var svo nærri því
að skora nokkrum mínútum seinna í
sitt eigið mark en hann hrósar happi
að boltinn fór rétt framhjá markinu.
Eyjamenn líklegir
Eyjamenn komu tvíefldir til leiks
í seinni hálfleiks og voru líklegri en
KA-menn til að gera eitthvað í leikn-
um. En það var ekki fyrr en síðustu
sjö mínútumar að eitthvert h'f kom í
leikinn. Magnús skoraði markið og
þá virtust KA-menn vakna af slæm-
um draumi og reyndu hvað þeir
gátu til að jafna undir lokin.
Það virðist vanta töluvert mikið
upp á leik KA en þeir áttu m.a. m'u
hornspymur í leiknum þar sem h'tið
sem ekkert kom út úr. KA-menn
Það virðist vanta
töluvert mikið upp á
leikKA.
hafa aðeins fengið þijú stig í þremur
leikjum og hafa þeir verið slakari að-
ilinn í leikjunum og er það töluvert
áhyggjuefhi eftir gott gengi í deilda-
bikarnum í vor. jj
Þriggja stiga Magnús Magnús MárLúð-
víksson hefurskorað tvö af þremur mörkum
Eyjamanna isumar og tryggði liðinu
sigurinn gegn KA á Akureyri með marki á
lokamínútum hefbundins leiktíma.
OPNUNARTILBOÐ
SVEFNSÓFAR - SÓFASETT HÆGINDASTÓLAR
VORUMAÐ OPNA NÝJA LAGERVERSLUNIHLÍÐASMÁRANUM
(jíillsteildií!
Allt meölæti, diskar, hnífapör
og glös fylgja með.
Kjötvinnslan Esja býður
starfsmannafélögum og fyrirtækjum
upp á gómsætan grillmat
á mjög hagstæðu verði.
KI ö t v i n ii s I a ii
E5M
Dugguvogi 8,104 Reykjavík
Sími 567 6640
Fax 567 6614
www.esja.is
*«•
M