Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1876, Side 37
November 7. Auglýsíng stjórnarráðsins fyrir ísland, sem
bannar að flytja sauðfé frá Sviariki til Islands.
~ *°- aðalfundur í Iðnaðarmanna fél. i Rvik (stofnuðu upp-
haflega 3. Febr. 1867); fors. endurk. Einar Jðnsson snikkari.
~ d. Reglugjörð bæjarstjórnarinnar (5. Nov.) um ábyrgð
Neykjavíkur kaupstaðar fyrir eldsvoða i húsum bæjarins
_ staðfest af landshöfðíngja.
~ 24- Auglýsins landshöfðíngja um póstmálefni (breytingar,
sem koma skulu frá 1. Januar 1875).
~ s- d. Aætlun um ferðir póstgufuskipsins og ferðir póst-
anna á Islandi 1875.
December 7. andaðist frú Olöf Björnsdóttir í Rvík, ekkja
;■ í eptir skólameistara Jens Sigurðsson (fædd ’1/?. 1830).
8. aðal ársfnndur verzlunar-hlutaléiagsins í Reykjavik.
x5(?)- Tómbóla Iðnaðarmanna-félagsins í Reykjavik.
~~ 25. andaðist sira Gisli Thorarensen, prestur að Stokks-
eyri, hastarlega (fædd. 1813).
FORN MÁNAÐANÖFN OG VETRARKOMA.
Gormánuð þann gumnar kalla,
sem gjörir byrja veturinn,
Ý1 i r miskunn veitir varla,
vondan tel eg Mörsuginn;
þá er von á Þorra tetri
þenki’ eg Góu lítið betri;
Einmánuður gengur grár
Gaukmánuður þar næst stár.
Eggtið honum eptir rólar,
allvel lifir jörðin þá;
minnist eg á mánuð sólar,
mun eg fleira segja frá:
fjóra daga sá inn setur,
sem sumar lengra finnst en vetur,
Miðsumar og Tvímán tel,
tek svo Hausþmánuði vel.
I fornu letri finnst það skráð, | færist þetta svo í lag:
vil því segja ef vel fæ gáð | vetur komi á laugardag.
TÖLUGÁTA.
(Handrit frá hérumbil 1600 í Arna Magn. safni 193. 8vo.)
Karl kom inn á hallar gólf
hafði I hendi stafina tólf,
en á hverjum stafnum kvistirnir tólf;
en á hverjum kvistinum laufin tólf,
á hverju laufinu púngarnir tólf,
á hverjum púnginum teníngarnir tólf
á hverjum teníngnum augun tólf. —
Hversu margt var af öllum staf?
(35)