Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Blaðsíða 44
Febrúar 3. Norðmenn ganga á þing, í Kristjaníu; konungur
helgar sjálíur þir.gið.
— 4. Waddington tekur við stjórnarformennsku á Frakklandi,
eptir Duf'aure.
— s. d. Auglýstur samningur milli þjóðverja og Austurríkis-
manna, dags. 11. október 1878, er lýsir ógilda 5. gr.
Pragarsáttmálans, frá 1866, um að norðurhjeruð Sljesyíkur
skuli hverfa apturtilDanmerkur, ef íbúar þeirra kjósi það.
— 8. Staðfestur friður með Rússakeisara o_g Tyrkjasoldáni,
í Miklagarði. Soldán skyldi greiða 600 milj. kr. í hernaðar-
kostnað, á 7 ára fresti; ljet og meira en helming landa
sinna í Európu, sumt að fullu og öllu, sumt að hálfu leyti.
— 12. þjóðverjar ganga á þing, alríkisþingið, í Berlín.
— 16. Auersperg leggur niður stjórnarformennsku í Austur-
ríki, en Stremayr tekur við.
— 18. Ospektir í Kairó, vaktar afEgiptajarli sjálfum, vegna
hlutsemi Norðurálfustórveldanna um stjórn hans._ Hann
tekur stjórnarformennsku af Núbar, fylgismanni þeirra, og
fær hana Tewfik, elzta syni sínum.
— 19. Alríkisþing þjóðverja synjar stjórninni (Bismarck) nær
í einu hljóði leyfis að lögsækja tvo þingmenn lir liði
jafnaðarmanna, þá Fritzsche og Hasselmann.
—■ 21. Andast Ali konungur í Afganistan, af fótarmeini.
— s. d. Yeginn Krapotkin landshöfðingi í Karkow á Rúss-
landi, af gjöreyðendum.
—■ s. d. A þinginu í Versölum samþykkir fulltrúadeildin
lagafrumvarp um uppgjöf saka við flesta upphlaupsmenn
frá París 1871; öldungadeildin fjellst og a það skömmu
síðar.
— 23. Andast Roon marskálkur í Berlin, 76 ára.
— s. d. Bolgarar ganga á þing, í Tirnóvu, að setja sjer
stjórnarlög og kjósa yfir sig höfðingja.
— 25. Svartadauða vart í Pjetursborg, að haldið var, en
sannaðist ekki. I lok mánaðarins var sóttinni slegiðniður
að mestu syðra, við ána Volga neðantil, þar sem hún
hafði gengið frá því um haustið áður.
Marz 7. Martinez Campos hershöfðingi tekur að sjer stjórnar-
formennsku á Spáni, eptir Canovas del Castillo.
s. d. Andast Elíhú Búrrit, hinn nafnkenndi friðarpostuli
frá Vesturheimi, i New-York, sjötugur.
— 11. Alríkisþing þjóðverja hrindir „múlbands“-lagafrum-
varpi Bismarcks, um refsivald fyrir þingvíti.
— 13. Borgin Szegedin á Ungverjalandi eyðist í vatns-
flóði, úr ánni Teis.
— s. d. Fulltrúadeildin á þinginu í Versölum hafnar tillögu
um málsókn gegn ráðaneytinu frá 16. maí 1877, þeim
Broglie og hans fjelögum, með 317 atkv. gegn 159.
— s. d. Brúðkaup Arthurs, hertoga af Connaught, þriðja