Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1881, Qupperneq 70
7. Við fyrsta í'arg skal gæta þess, að pressa fisldnn
eptir því sem hann heíir fengið þurrk tii.
8. J>ar ríður á, að stakkarnir sjeu vel hlaðnir, svo að
ekki standi vatn á þeim. Bezt er að hafa þá ekki mikla um
sig. Níu eða tíu skippund af fiski er mátulegt í einn stakk.
Stakkarnir mega ekki standa á kletti, og því síður þar sem
gras er undir eða í flagi; malarstjett er bezt undir þá.
9. þar á ofan eiga stakkarnir að vera vel þaktir með
hærum og mottum allt í kring, og huldir að ofan með
horðum eða grjóti, svo að þeim sje óhætt fyrir rigningum og
súgvindi. Fargið þarf að vera bjerumbil jafnþungt því sem "
undir því er, t. d. á 10 skippunda stakk 10 skpd. af grjóti.
Hraungijót er óhentugt í farg, of fyrirferðarmikið eptir
þyngslum; blágrjti eða malargrjót bezt.
10. Mjög er áríðandi, að fiskurinn sje vel þurrkaður í
gegn áður en hann er látinn í hús.
11. Geyma skal fiskinn í vel þurru húsi er hann er
fullverkaður, þar sem ekki lekur og enginn raki eða drag-
súgur.
12. J>að þykir hafa vel gefizt að fela formönuum á
hendur söltun og hirðing alla á fiskinum, og láta ekki salt-
fisk korna til skipta fyr en hann er fullverkaður.
AL{ INGISKOSNINGAREGLUR.
Kosningarrjettur. Enginn getur átt kosningarrjett
til alþingis, nema hann hafi óflekkaS mannorð, liann sje fjár
sins ráðandi og ekki gjaldþrota, hann þiggi ekki af sveit og
hafi ekki þegið sveitarstyrk, utan sveitarstyrkurinn sje annað-
hvort endurgoldinn eða gefinn upp, hann sje 25 ára, er ‘
kosningin fer fram, og hafi þá verið heimilisfastur í kjördæm-
inu eitt ár [þ. e. fullt ár samfleytt frá kosningardeginumj,
og hann sje enníremur annaðhvort bóndi, semhefir grasnyt
og geldur nokkuð til allra stjetta, eða kaupstaðarborgari,
sem geldur til sveitar að minnsta kosti 8 kr. á ári, eða
þurrabúðarmaður, sem geldur til sveitar að minnsta kosti
12 kr. á ári, eða embættismaður, sem annaðhvort hefir :
konunglegt veitingarbrjef eða er skipaður af því yfirvaldi,
sem konungur hefir veitt heimild til þess, eða þá loksins
maður, sem hefir tekið lærdómspróf við háskólanu eða em-
bættispróf við prestaskólann eða eitthvert annað þess háttar
opinbert próf som nú er eða kann að verða sett [t. d.
embættispróf við læknaskólann], þótt ekki sje hann í embætti,
ef hann er ekki öðrum háður. — Bóndi, sem með sjerstaklegri
ákvörðun er undan skiliun einhverju þegnskyldugjaldi, missir
(66)