Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1906, Page 25
2) Tungl.
Tnngl jarðarinnar gengur á 27 dögnm og 8 stundnm í kring-
Um jörðina; meðalfjarlægð þess frá jörðunni er 51800 mílnr; þver-
fflsíl þess er 469 mílnr. 2 tungl fylgja JUars, 7 Jiípíter. 9 Sa-
túrnusi, 4 Vranusi og að minnsta kosti 1 JXeptúnusi. í kring-
um Satúrnus liggur auk þess fyrir innan hið innsta af tjeðum
tunglum hringur, sem líklega er saman settur af fjölda af smá-
tunglnm.
3) Smástirni CAsteroides).
Milium Mars og Júpíters er til sægur af smáplánetum
{Planetoides eða Asteroidcs). f>ær sjást ekki með berum augum.
þær ern velflestar ekki nema fáeinar mílur að þvermáli. Tala
þeirra, sem uppgötvaðar vorij við árslokin 1904, var 553; meðal-
fjarlægð þeirra frá sölu er millum 39 og 85 milj. mílna, og um-
ferðartími þeirra kringum sólina millum 3 og 9 ár. Af þessum
553 smáplánetum er þd ein, Eros, sem var uppgötvuð 1898,
uokkru nær sólu en Mars; meðalfjarlægð hennar frá sólunni er
milj. mílna og umferðartími hennar ki-ingum sólina 13/4 ár.
Sjerhver af þessum smáplánetum er táknuð með ntímeri og
°ftast einnig með sjerstöku nafni. í viðbót við nöfh þau, sem til-
færð voru í almanökum fyrri ára, 1901 — 1905, eru þessi ný nöfn:
360 Carlóva. 394 Ardúína. 456 Abntíba. 460 Scanía. 462
Eriphýla. 482 Petrína. 483 Seppína. 484 Pittsburghía. 488
Kreusa. 493 Gríseldís. 496 Gryphía. 498 Tokíó. 499 VenrSsía.
H03 Evelyn. 507 Laódica. 509 Jólanda. 512 Tárínensis. 516
Atnherstía. 521 Brixía. 532 Hercúlína.
4) Halastjörnur.
Af hinum rásbundnu halastjörnum eru 18 kunnar; þær hafa
verið taldar í almanökum fyrri ára, 1901—1903. Tvær af þeim
saust aptur árið 1904, sem sje Encke’s og Tempel’s II. Auk
þess sáust árið 1904 þrjár nýjar halastjörnur, en engin þeirra
varð þó sjen með berum augum. Eás einnar þeirra benti á, að
hún mundi koma aptur að 7 árum liðnum.
í sambandi við halastjörnur standa stjörnuhröp. Jiau sjást
tl hverri heiðskírri ndtt. En á vissum nóttum á árinu eru meiri
úrögð að þeim en venjulega. Slíkar nætur eru: næturnar kringum
22. Apríl, næturnar kringum 10. Agúst, næturnar um miðjan Nd-
vember og stundum einnig næturnar kringum 27. Nóvember.
Næsta ár, 1907, ber páskana upp á 31. Marts.