Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1906, Qupperneq 42
mök viö menska menn, og varð keisarinn þannig í
raun réttri að eins hálfheilagur æðsti prestur pjóðar-
innar, enda var svo fram á vora daga, sem nú lifum,
að enginn maður nema fjölskylda hans og nánustu
pjónar fékk nokkru sinni að sjá hann, nema pað
helzt, að á einni stórliátíð á ári fengu helztu menn að
koma inn í berbergi, par sem keisarinn sat bak við
fortjald og rétti stóru tána bera fram undan tjald-
skörinni; hana fengu peir að kyssa, en annað fengu
peir ekki af honum að sjá.
FjTstu kynni Evrópumanna af Japan stöfuðu frá
sæfaranum fræg'a Marco Polo frá Feneyjum ál3. öld.
En pó vita menn ekki til, að nokkur Norðurálfumað-
ur kæmi til Japan fyr en 1543, að Portúgalsmenn
komu pangað og höfðu upp frá pvi um sinn nokkur
verzlunarviðskifti við landið, og boðuðu Jesúítar par
kristna trú, qg var pví vel tekið, svo að 38 árum síð-
ar vóru par 200 kyrkjur og 150,000 kristinna manna.
Síðar kornu Hollendingar og Bretar pangað og' rægðu
Portúgalsmenn við keisara til að bola peim frá verzl-
unar-samkeppni. Pá voru kristnir menn par í landi
orðnir 600,000. Peir fengu keisara til að reka Portú-
galsmenn og Jesúíta úr landi og öfsækja kristna menn
parlenda. Var 37,000 af peim slátrað i einni ofsókn-
inni, og 1637 var allri kristni útrýmt úr landinu, og
afleiðing pess varð sú, að öllum útlendingum var
harðlega bannað að koma til landsins, nema hvað
Hollendingum og Sínverjum var leyft að sigla árlega
fáeinum skipum á 2—3 hafnir. Við petta luktu Jap-
anar sig alveg út frá öllum viðskiftum við umheim-
inn og áhrifum frá honum, og við pað staðnaði öll
framför pessarrar gáfuðu pjóðar um margar aldir,
og stóð svo fram til 1854, að Bandaríkjamenn í Norð-
ur-Ameríku knúðu Japana til að opna sér nokkrar
hafnir og gera við sig verzlunarsáttmála. Svo komu
Bretar og íleiri Evrópupjóðir áeftirí kjölfar Ameríku-
manna, en gekk tregt að fá verzlunarsamninga, en
(28)