Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1921, Page 23
Mars er 1 ársbyrjun í Vatnsberamerki og reikar svo, stöðugt
austur á við, gegnum Fiskamerki, Hrútsmerki, Nautsmerki, Tvíbura-
merki, Krabbamerki, Ljónsmerki og Meyjarmerki, og þar er hann
i árslokin. Hann er í hádegisstað: í ársbyrjun kl. 33/4 e. m., í
byrjun Aprílm. kl. 2 e. m., um miðbik Októberm. kl. 10 f. m. og
lok Decemberm. kl. 8 f. m.
Júpíter er í ársbyrjun í Ljónsmerki og færist fyrst um sinn
vestur á við. I byrjun Mai snýr hann við og reikar nú austur á
bóginn gegnum Ljónsmerki og inn i Meyjarmerki, og þar er hann
i árslokin. 5. Marts er hann gegnt sólu. Hann er í hádegisstað: í
ársbyrjun kl. 5 f. m., í byrjun Febrúar kl. 3 f. m., um miðbik Martsm.
um miðnætti, í Apríllok kl. 9 e. m., í byrjun Júlím. kl. 5 e. m.,
í Septemberlok um hádegi, í byrjun Nóvemberm. kl. 10 f. m. og
í Decemberlok kl. 7 f. m.
*
Satúrnus heldur sig allan árshringinn í Meyjarmerki og í.Ljóns-
merki og færist fram í miðjan Maí vestur á bóginn, en úr því austur
á við. 12. Marts er hann gegnt sólu. Hann er í hádegisstað: í árs-
byrjun kl. 5 f. m., í byrjun Martsm. kl. 1 f. m., í Maíbyrjun kl. 9
e. m., í Júlíbyrjun kl. 3 e. m., í byrjuninni á Október um hádegi
og í árslokin kl. 6J4 f. m.
t ,
Uranus og Neptúnus sjást ekki með berum augum. Uranus
beldur sig allan árshringinn í Vatnsberamerki. Hann er 31. Ágúst
gegnt sólu og er þá um miðnæturskeið í hádegisstað 16 stig fyrir ofan
sjóndeildarhring Reykjavíkur. Neptúnus heldur sig allan árshringinn í
Krabbamerki, er 1. Febrúar gegnt sólu, og er þá um miðnæturskeið
í hádegisstað 43 stig fyrir ofan sjóndeildarhringinn.