Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1921, Side 24
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI.
! þriðja dálki hvers mánaðar og í töflunni á eptir December-
mánuði er sýnt, hvað klukkan er eptir íslenzkum meðaltíma, þegar
tunglið og sólin eru í hádegisstað í Reykjavík. En vilji menn vita,
hvað klukkan sje eptir íslenzkum meðaltíma, þegar tunglið eða sólin
er í hádegisstað á öðrum stöðum á íslandi, þá verða menn að gera
svo nefnda „lengdar-leiðrjetting“ á Reykjavíkurtölunni. Verður
hún — 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur a u s t a r
en Reykjavík, og + 4 m. fyrir hvert lengdarstig, sem stað'urinn liggur
vestar en Reykjavík, t. d. á Seyðisfirði — 32 m., á Akureyri —
16 m., á Isafirði + 5 m. 17. Febrúar er tunglið t. d. f hádegisstað í
Reykjavík kl. 8. 22' e. m.; sama kveldið er það þá í hádegisstað á
Seyðisfirði kl. 7.50', á Akureyri kl. 8.6', á tsafirði kl. 8.27', alt
eptir íslenzkum meðaltima.
Á þeim tölum, sem sýna sólarupprás og sólarlag, verða menn
auk lengdar-leiðrjettinganna að gera „breiddar-leiðrjetting.“ Hún
verður á þeim”stöðum, sem liggja 2° og 1° (stigi) norðar en Reykjavík,
sem hjer segir:
26. Jan. 23. Febr. 23. Marts 20. Apr. 18. Maí
2° N. + 21 m. + 8 m. T 1 m. + 11 m. + 27 m
1° N. + 10 m. + 4 m. 0 m. + 5 m. + 12 m
3- Ág. 31. Ag. 28. Sept. 26. Okt. 23. Nóv.
2° N. + 21 m. + 8 m. + lm. + 11 m. + 26 m
1° N. T 10 m. + 4 m. 0 m. + 5 m. + 12 m
og sýnir þá efra teiknið á undan tölunum sólarupprás, en hið neðra
sólarlagið.
Sem dæmi má taka Akureyri, sem er 1% breiddarstigi norðar
en Reykjavík;
23. Nóvember í Reykjavík s. u. 9. 24' s. 1. 3. 4'
lengdar-leiðrjetting — 16 — 16
breiddar-leiðrjetting +19 — 19
23. Nóvember á Akureyri s. u. 9.27' s. 1. 2.29'
eptir íslenzkum meðaltíma.
Um uppkomu og undirgöngu tunglsins er alment þetta að segja:
Kringum þann dag, er við stendur i 4. dálki hvers mánaðar „tungl
lægst á lopti", er tunglið, þegar það er í hádegisstað, hjerumbil 6 stig
fyrir ofan sjóndeildarhringinn. Kringum þann dag, er við stendur
„tungl hæst á lopti“, er tunglið, þegar Þaö er í hádegisstað, hjer-
umbil 45 stig fyrir ofan sjóndeildarhr'nS'nn- Viku á undan og viku
á eptir þessum dögum er tunglið hjerumb‘l 26 stig fyrir ofan sjón-
deildarhringinn, þegar það er í hádeg‘?sta®- kemur upp f austri 6
stundum áður og gengur undir í vestri 6 stundum sfðar.