Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1921, Side 26
1 árslok 1919 höfðu 914 smáplánetur fengið ákveðin númer.
Árið 1919 sáust 2 nýjar halastjörnur. Á skránni yfir hala-
stjömur, sem hafa sjest oftar en einu sinni, voru í Almanakinu 1912
19 númer. Síðan hafa 6 númer bæzt við, sem sje halastjörnur
Borrelly’s, Westphal’s, Giacobini’s,. KopfPs, Brorsen’s (1847),
Schaumasse’s, og er umferðartími þeirra kringum sólina 7, 61, 6 j4,
61/-2, 72 og 8 ár.
Næsta ár, 1922, ber páskana upp á 16. Apríl.
Almanak þetta kostar óinnfest 12 aura, . en innfest 16
aura, alstaðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendals bóka-
verzlan í Kaupmannahöfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld til
að gefa 20 af hundraði í afslátt þeim sem kaupa 50 eða þaðan af
íleiri. Slíkum kaupendum er og heimilt að skila aptur óseldum
almanökum, ef það er gjört innan ársloka 1921-; verður þeim þá
horgað andvirði þeirra, sem ósködduð eru, en þó svo, að hin inn-
festu verða borguð sem óinnfest; skyldir eru þeir og að sýna
reikninga bókaverzlunarinnar, ef kraúzt verður.