Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1944, Síða 5
4. Þyri Lovísa Karólfna Amalía Agústa Elísabet, fædd 14. marz 1880.
B. Kristján Friðrekur Vilhjálmur Vaidemar Gústzv, fæddur 4. marz 1887.
B. Dagmar Lovísa Elísabet, fædd 23. maí 1890, gift 23. nóv. 1922 Hof-
jægermester Kammerjunker Jörgen Karl Gustav Castenskiold á Kong«
stedlund, fæddum 30. nóv. 1893.
Samkvæmt Iögum um ákvörðun tímans 16. nóv. 1907, skal hvarvetna á
íslandi telja tímann eftir miðtíma á 15. lengdarstigi fyrir vestan Greenwich.
/ almanaki þessu eru því allar stundir taldar eftir þessum svonefnda íslenzka
miðtíma, 27 minútum 43,2 sekúndum á undan miðtíma Reykjavíkur.
í þessu almanaki er tími alls staðar reiknaður í klukkustundum og mín-
útum frá síðast liðnu miðnætti. Sólarhringurinn byrjar á miðnætti (0 00) og
endar á næsta miðnætti (24 00). Miðnætti milli 15. og 16. ágúst verður þá
annaðhvort 15. ágúst 24 00, eða 16. ágúst 0 00. Sú stund sólarhrings, sem áður
var kölluð kl. 12 35 f. m., heitir nú aðeins 0 35, en sú stund, sem áöur var
kölluð kl. 5 13 e. m., heitir nú 17 13. Frekari skýring ætti að vera óþörf, þar
sem flestum mun þessi tímareikningur kunnur úr útvarpinu.
Með iögum nr. 8, 16. febr. 1917, er ríkisstjórninni heimilað að flýta klukk-
unni, ef það þykir henta (»sumartími«), og verður, ef það er gert, að sjálfsögðu
*ö taka tillit til þess við notkun almanaksins.
(3)