Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1944, Síða 73
Torfi Halldórsson.
Eiríkur Briem.
armenn. Um enga slíka fræðslu var að ræða hér á
landi fram yfir miðja 19. öld. Menn, sem vildu læra
til skipstjórnar, urðu að sækja slíka menntun til út-
landa. Þeir urðu fáir, sem gerðust til þess fyrst
framan af, og voru þeir flestir af Vesturlandi, enda
var þörfin mest þar fyrir slíka menn.
Vestfirðingar komu á fót sjómannaskóla á ísafirði
1852. Torfi Halldórsson (f. 1823, d. 1906), síðar lcaup-
maður á Flateyri, annaðist kennsluna. Hann hélt
einnig uppi námskeiðum i sjómannafræði eftir að
hann fluttist til Flateyrar 1857. Einar Ásmundsson,
alþm. í Nesi, og Jón Loptsson, skipstjóri í Efra-Haga-
nesi i Fljótum, urðu fyrstir til að kenna skipstjóra-
efnum í NorðlendingafjórðungL Á Suðurlandi veittu
nokkrir slíka fræðslu, en þeirra fremstir voru síra
Eiríkur Briem, Markús Bjarnason og Hannes Hafliða-
son. — Á Alþingi 1869 var fyrst að ráði rætt um
stofnun sjómannaskóla, en rétt 20 ár liðu þar til sam-
þykkt var frumvarp til laga um slíkan skóla.
Stýrimannaskólinn tók til starfa haustið 1891. Var
Markús F. Bjarnason ráðinn fyrsti skólastjóri hans.
Hafði hann búið sig ágætlega undir þann starfa, afl-
(71)